Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnanefndar 34

34. fundur

 

Fundur í Almannavarnanefnd haldinn í slysavarnahúsi,mánudaginn 19. október 2009 og hófst hann kl. 12:00

Fundinn sátu:

Björn Ingi Jónsson, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson, Friðrik Jónas Friðriksson, Páll Björnsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV),  

 Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

 Dagskrá:

1.      200910044 - Inflúensa A(H1N1)v

Björn Ingi gerði grein fyrir forgangsröðun um bólusetningu vegna inflúensu. Kom fram að alls hafi 50 skammtar komið fyrir helgi og búið er að bólusetja þá sem er fyrstir í forgangi. Von er á fleiri skömmtum á næstu viku og verður unnið að bólusetningu skv. forgangsröðun. Björn Ingi hvatti fundarmenn að kynna sér viðbragðsáætlun á vef ríkislögreglustjóra. Lögð fram tengiliðaskrá sem lögreglan hefur unnið.

Fundarmenn sammála um að skiptast á upplýsingum um ástandið í tölvupósti og setja á fund ef ástæða er að virkja viðbragðsáætlun.

2.      200705114 - Önnur mál

Engin.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   12:30



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica