Almannavarnarnefnd A-Skaft.
Fundargerð almannavarnanefndar 33
33. fundur
Fundur íalmannavarnanefnd mánudaginn 4. maí 2009 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Björn Ingi Jónsson, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson, Friðrik Jónas Friðriksson, Páll Björnsson, Einar Sigurjónsson, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Hjalti Þór Vignisson (HÞV),
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, Bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200904100 - Viðbragðsáætlun almannavarna við heimsfaraldri inflúensu
Guðrún Júlía Jónsdóttir og Ester Þorvaldsdóttur gerðu grein fyrir landsáætlun vegna heimsafaraldurs inflúensu og aðrar áætlanir sem málið varða. Í kjölfarið var farið yfir umræðu um hlutverk almannavarnarnefndar. Einar Sigurjónsson upplýsti að hugsunin væri sú að sett yrði á fót aðgerðastjórn/vettvangsstjórn fyrir svæðið.
Í þessari umræðu var rætt um húsnæði sem þyrfti að vera til staðar, viðbragðsáætlanir stofnana og hlutverk einstakra aðila.
Rætt um að mikilvægt væri að senda erindi til lögreglunnar, heilbrigðisstofnunar, sóttvarnarlæknis og fleiri aðila sem vinna að viðbragðsáætlun um atriði er þau telja að almannavarnarnefnd þurfi að fjalla um.
Estar Þorvaldsdóttir taldi að almannavarnarnefnd þyrfti að ákveða eftirfarandi varðandi heimsinflúensufaraldur:
1. Hvert á flytja fólk ef þörf er að rýma hjúkrunardeildina
Tillaga: Hafnarskóli
2. Staðsetning viðbótar líkhúss
Tillaga: Fá kæligáma.
3. Hvar á að vera inflúensumóttaka í heimsfaraldri
Tillaga: Hafnarbraut 40
4. Tengsl við fjölmiðla á meðan ástand varir
Tillaga: fyrirspurnum fjölmiðla yrði vísað til aðgerðastjórnar
Rætt um að setja upp vinnudag með þeim aðilum sem vinna að heilbrigðismálum, hópslysum, björgunaraðgerðum og þess háttar sem getur kallað samhæfð viðbrögð aðila.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


