Almannavarnarnefnd A-Skaft.
Fundargerð Almannavarnanefndar 23
23. Fundur
Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 9. september 2003 kl. 16:00 í húsi Slysavarnafélagsins..
Mættir eru:Páll Björnsson, Baldur Thorsteinsen, Guðbrandur Jóhannsson, Ólafur Sigurðsson, Steinþór Hafsteinsson, Helgi Már Pálsson og Albert Eymundsson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Ekki gerðar athugasemdir við fundargerð.
Steinþór sagði frá æfingu sem haldin var 17. maí með björgunarsveitinni, slökkviliði og starfsmönnum hafnarinnar um borð í Birni lóðs. Tilganginum náð sem var að samhæfa hafnarstarfsmenn og önnur björgunarlið og sérstaklega að æfa björgunaraðgerðir með Birni lóðs.
2. Samningar við björgunarlið
Páll dreifði drögum að samningum milli almannavarnarnefndar annars vegar og björgunarsveita og Rauða krossins hins vegar. Ákveðið að taka samningana fyrir á næsta fundi eftir umsagnir félaganna og reyna að ljúka þeim sem fyrst.
3. Staðan í uppbyggingu stjórnstöðvar
Farið yfir minnisblað yfir atriði sem framkvæma þarf í stjórnstöð. Steinþór tók að sér að kanna rafmagnstengingu milli stjórnstöðvar og Rarikhússins. Farið í skoðunarferð.
4. Önnur mál
Ólafur vakti athygli á aðgerðum vegna fjölmennari slysa. Rifjaði hann upp slys s.l. sumar og vandkvæði í því sambandi. Ýmislegt mætti bæta varðandi þessi mál. Sérstök áhersla er lögð á að fenginn verði annar sjúkrabíll til viðbótar við þann sem fyrir er. . Ákveðið að senda réttum aðilum erindi varðandi þau mál.
Fundi slitið kl. 17:15
Páll Björnsson
Albert Eymundsson
Steinþór Hafsteinsson
Ólafur Sigurðsson
Guðbrandur Jóhannsson
Baldur Thorsteinsson
Helgi Már Pálsson


