Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð Almannavarnarnefndar

21. fundur

Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar fimmtudaginn 17. október 2002 kl.12:00 í húsi Slysavarnafélagsins við Álaugarveg.

Mættir eru: Páll Björnsson,Helgi Már Pálsson, Guðbrandur Jóhannsson,Albert Eymundsson, Ólafur Sigurðsson og Baldur Thorsteinsson.

1. Fundargerð síðasta fundar

Ekki athugasemd við síðustu fundargerð.

Rætt um uppbyggingu stjórnstöðvarinnar og rifjuð upp umræða frá síðasta fundi. Ítrekað mikilvægi þess að ljúka málinu.

2. Starfið framundan

Formaður lagði til að Ásgeir Núpan verði tengiliður við Flugmálastjórn , Árna Birgisson vegna átaks í björgunarmálun við áætlunarflugvelli.

Björgunaræfing við Hornafjarðarhöfn og innsiglingu

Samþykkt að skipa starfshóp til að dagsetja og undirbúa æfingu samkvæmt ósk hafnarstjórnar með bréfi dags. 7.apríl 2002. Óskað verður eftir að eftirtaldir aðilar skipi fulltrúa í starfshópinn:

  • Almannavarnanefnd
  • Björgunarfélagið
  • Slökkvilið
  • Rauði krossinn
  • HSSA
  • Lögreglan
  • Hafnarstjórn

Ákveðið að boða starfshópinn á fyrsta fund mánudaginn 28. október n.k..kl. 20:00.

Samþykkt að Guðbrandur verði fulltrúi almannavarnanefndar í hópnum.

3. Drög að erindisbréfi almannavarnanefndar

Samþykkt að fela Albert að gera eðlilegar breytingar á erindisbréfi og aðlaga það breyttu umhverfi.

4. Landshlutafundir AVRIK

Samþykkt að Páll mæti að fund AVRIK á Egilsstöðum 21. október n.k. og hafi samband við þá aðila sem málið snertir.

5. Önnur mál

Páll kynnti sýnishorn um samkomulag um skipan hjálparliðs almannavarna.

Samþykkt að Páll verði formaður nefndarinnar og Albert varaformaður. Nefndarmenn skiptast á að rita fundargerðir.

                                                                                   

Fundi slitið kl. 13:15

Páll Björnsson                                                             

Albert Eymundsson

Helgi Már Pálsson

Ólafur Sigurðsson

Guðbrandur Jóhannsson

Baldur Thorsteinsen



 



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica