Almannavarnarnefnd A-Skaft.
Fundargerð almannavarnanefndar 31
31. fundur
Almannavarnarnefnd Hornafjarðar kom saman til fundar mánudaginn 20. október 2008 kl 12.00 í Ráðhúsinu á Höfn
Mættir voru: Reynir Arnarson, Björn Ingi Jónsson og Friðrik Jónas Friðriksson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
1. Ný lög um almannavarnir
Umræða um ný lög um almannavarnir. Rætt um hlutverk almannavarnarnefndar, aðgerðarstjórnar og vettvangsstjórn. Nefndin sammála um að mikilvægt er að fá fulltrúa almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra til að kynna nýju lögin og breytingar á þeim. Rætt um tengsl á milli svæðisstjórnar og aðgerðarstjórnar í héraði. Samþykkt að óskað eftir fundi með lögreglustjóra.
2. Kosning formanns og varaformanns
Samþykkt að Björn Ingi Jónsson verði formaður og Páll Björnsson varaformaður.
3. Önnur mál
Samþykkt að óska eftir að fulltrúi lögreglunnar sitji fundi nefndarinnar í framtíðinni.
Fundi slitið kl 12.40


