Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð Almannavarnanefndar 28

28. fundur

Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 25. janúar 2006 í Slysavarnafélagsins á Höfn. Mættir eru: Páll Björnsson, Steinþór Hafsteinsson, Ólafur Sigurðsson, Ragnhildur Magnúsdóttir, Jón Malmquist, Guðbrandur Jóhannsson, Helgi M. Pálsson, og Albert Eymundsson

 1. Fundargerð síðasta fundar

Engar athugasemdir komu fram.

2. Aðstaða í stjórnstöð

Farið yfir það sem hefur áunnist og minnislista. Búið er að kaupa vararafstöð sem almannavarnanefnd fjármagnar en björgunarfélagið hefur umsjón með og getur notað þegar sveitin þarf. Ragnhildur gerði talstöðvarmál og skipulag þeirra að umtalsefni. Fundarmenn sammála um að taka þessi má til skoðunar svo og aðrar athugsemdir sem fram komu í skýrslu um flugslysaæfinguna árið 2000.

3. Bréf frá flugmálastjórn vegna æfinga

Í bréfinu er tillaga um að halda flugslysaæfingu 13. maí n.k... Formanni falið að svara jákvætt og skoða nánar dagsetningu.

4. Önnur mál

Samþykkt að halda fljótlega annan fund og fara yfir síðustu flugslysaæfingu og skipun aðgerðarstjórnar. Skoða þarf neyðaráætlun fyrir flugvöllinn Guðbrandi og Steinþóri falið að gera það. Ragnheiður ræddi um rafmagnsmál á heilsugæslustöð. Neyðarlýsing hefur verið aukin en nauðsynlegra úrbóta er þörf á vararafmagni. Samþykkt að skoða hvaða möguleikar eru í stöðinni, þörf, staðsetning, gerð o.fl.. Formanni, nefndar verði falið að skrifa bréf vegna rafmagnsmála á heilsugæslustöð.

Fundi slitið kl. 17:15





 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica