Almannavarnarnefnd A-Skaft.
Fundargerð Almannavarnarnefndar
20. fundur
Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 6. mars 2001 kl. 16:00 í húsi Slysavarnafélagsins við Álaugarveg.
Mættir eru: Steinþór Hafsteinsson, Jón Malmquist, Baldur Thorsteinsson, Ólafur Sigurðsson og Páll Björnsson.
1. Uppbygging stjórnstöðvar í slysavarnahúsi.
Rifjuð var upp fundargerð síðasta fundar og rætt um næstu skref í uppbyggingu stjórnstöðvar. Nefndin er sammála um að hraða skuli uppsetningu símkerfis og keyptar verði tölvur og töflur.
Páll kynnti erindi RKÍ um ákvarðanir um fjöldahjálparstöðvar á svæði nefndarinnar. Nefndin sammála um að hafa Hofgarð í Öræfum, Hrollaugsstaði í Suðursveit, og Nesjaskóla sem fjöldahjálparstöðvar til viðbótar við Heppuskóla á Höfn. Nefndin samþykkti að Ekran á Höfn verði ekki fjöldahjáparstöð.
Nefndin sammála um að senda tvo menn á vettvangsstjórnarnámskeið næsta haust á Egilsstöðum, þar af einn lögreglumann.
Almennar umræður um endurbætur skv. ábendingum í skýrslu um flugslysaæfingu.
Fundi slitið kl. 17:20
Ólafur Sigurðsson Páll Björnsson
Baldur Thorsteinsen
Steinþór Hafsteinsson
Jón Malmquist


