Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð Almannavarnarnefndar

22. fundur

Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 5. mars 2003 kl. 16:00 í húsi Slysavarnafélagsins við Álaugarveg.

Mættir eru: Páll Björnsson, , Guðbrandur Jóhannsson, Steinþór Hafsteinsson, Jón Einarsson og Albert Eymundsson. Forföll boðuðu Helgi Már Pálsson, Ólafur Sigurðsson og Baldur Thorsteinsson.



1. Fundargerð síðasta fundar

Farið yfir síðustu fundargerð með tilliti til verkefna sem vinna átti samkvæmt henni.

Rætt um fund sem haldinn var með fulltrúum flugmálastjórnar inni á flugvelli á síðasta ári. Meðal annars var rætt um farartæki, loftpúðabát eða annað sem kemst um fjörðinn á flóði og fjöru.



2. Björgunaræfing við Hornafjarðarhöfn og innsiglingu

Guðbrandur upplýsti að undirbúningshópur æfingarinnar hafi fundað og ákveðið að stefna á æfingu í mars/apríl. Hópurinn verður boðaður á næstunni til að undirbúa æfinguna. Guðbrandur og Steinþór sjá um boðunina.

Guðbrandur skýrði frá námskeiði sem hann sótti.

3. Aðbúnaður og aðstaða

Fundarmenn ítrekuðu nauðsyn þess að ljúka við frágang á aðbúnaði í Slysavarnahúsinu, s.s. símkerfið tölvubúnað o.fl..

4. Önnur mál

Engin.

Fundi slitið kl. 17:00

Páll Björnsson Albert Eymundsson

Steinþór Hafsteinsson

Guðbrandur Jóhannesson

Jón Malmquist








 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica