Almannavarnarnefnd A-Skaft.
Fundargerð Almannavarnanefndar 27
27. fundur
Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 7. desember 2004 k1. 16:00 í húsi Slysavarnafélagsins.
Mættir eru: Páll Björnsson, Albert Eymundsson, Jón Einarsson,Steinþór Hafsteinsson, Ólafur Sigurðsson. Einnig undir lið 3: Páll Kristjánsson RARIK, Gunnar Ásgeirsson og Ingvi Sigurðsson frá Skinney ? Þinganes og Björn Traustason frá Skeggey.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir komu fram.
2. Uppbygging á aðstöðu og búnaðarkaup
Umræðu frestað þar til fjárhagsáætlun sveitarfélagsins verður frágengin.
3. Áhrif og afleiðingar rafmagnsleysis
Undir þessu lið mættu ofangreindir aðilar til að fara yfir og ræða afleiðingar og áhrif af rafmagnsleysinu eins kom fyrir þegar línur beggja vegna Hornafjarðar í vestri og austri gáfu sig.
Lýstu þessir aðilar vandræðum sem upp komu við þessar aðstæður og vinnsla er í fullum gangi hjá fyrirtækjum. Niðurstaða umræðunnar var sú að mikilvægast væri að fá aukið varaafl með vélum í rafstöðina. Ákveðið að skrifa LV og Rarik bréf um málið. Sömuleiðis að skoða tengingar frá skipum inn ákerfið. Albert falið að kanna hvort með nýju þili og þekju á Krosseyjarbryggju mætti koma fyrir tenginum sem verði til staðar þar.
4. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 17.45


