Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð Almannavarnanefndar 26

26. fundur

Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 16. júní 2004 k1. 16:00 í húsi Slysavarnafélagsins.
Mættir eru: Páll Björnsson, Helgi Már Pálsson , Steinþór Hafsteinsson og Albert Eymundsson.

Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
2. Staða verkefna
3. Önnur mál

1. Fundargerð síðasta fundar
Páll fór yfir síðustu fundargerð.
Hann upplýsti að búið væri að gera samning við Björgunarfélag Hornafjarðar og Björgunarsveitina Kára. Sömuleiðis við Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands.
2. Staða verkefna
Rætt um skipan aðgerðarstjórnar og skipulag hennar.
Farið yfir búnað og tækjakaup. Vel hefur þokast í þeim málum og næsta forgangsverkefni er að stækka stjórnstöðina í slysavarnahúsinu.
3. Önnur mál
Einar Sigurjónsson lögreglumaður fór á vettvangsstjóranámskeið á vegum sýslumanns og mikilvægt að fleiri aðilar sæki slík námskeið.

Fundi slitið kl. 16:50

Albert Eymundsson
Steinþór Hafsteinsson
Helgi Már Pálsson
Páll Björnsson



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica