Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34

34. fundur

Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

 

Fundur haldinn mánudaginn 17. janúar 2013 kl. 16.10 í Ráðhúsinu á Höfn. 

 

Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir, Hildur Þórsdóttir, Björn Ingi Jónsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Þórður Ólafsson framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs var í síma.    Hjalti ritaði fundargerð

 

Dagskrá.

 

1.                  Rekstraráætlun 2013.

Regína og Þórður kynntu drög að rekstraráætlun 2013.  Þórður gerði grein fyrir aukningu á fjárlögum ársins 2013 frá fyrra ári.  Kom fram að síðan 2008 hafa umsvif á suðursvæði nærri því þrefaldast á meðan gjöld umfram sértekjur hafa hækkað mun minna.  Samkvæmt drögum eru breytingar þær helstar að gert er ráð fyrir aukningu í launalið um 13% vegna aukinna umsvifa á Höfn og önnur gjöld hækka um 14,7%.  Sértekjur hækka að sama skapi um 5,8% en á milli áranna 2011 og 2012 hækkuðu þær um 50,6%.  Í rekstrarforsendum er gert ráð fyrir tveimur fastráðnum starfsmönnum á Höfn allt árið og þremur í Skaftafelli.  Alls eru landvarðavikur 217, þar af 182 í Skaftafelli.

Benti Björn Ingi á að áhugavert væri að sjá yfirlit yfir innkaup á endursöluvörum aðskilið frá rekstrarvörum.  

Kom fram hjá Regínu að gestakomur í Skaftafell hafi verið nálægt 300.000 talsins árið 2012.

Svæðisráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti.  

 

2.                  Framkvæmdaáætlun 2013.

Regína og Þórður gerðu grein fyrir framkvæmdaáætlun 2013.  Í drögum að framkvæmdaáætlun kemur fram að upplýsinga- og fræðslusýning í Gömlubúð er forgangsverkefni 2013.  Margar framkvæmdir bíða í Skaftafelli, s.s. hitaveita, lagfæringar á tjaldstæði, vatnsbóli, gerð göngubrúar yfir Morsá og fleira.  Ennfremur rætt um göngustíga að Skaftafellsjökli, Heitulækjum, útivistaraðstöðu við Hjallanes og Söguslóð í Skaftafelli.  Þá er stefnan að setja upp merkingar og skilti til leiðbeininga og fræðslu við þjóðveg og áningarstaði.

Hildur spurði um kortagerð af Lónsöræfum og staðsetningu rotþróar við Múlaskála.  Sigurlaug upplýsti um stöðu mála varðandi kortagerð og Regína um rotþró.

 

3.                  Önnur mál.

Guðrún spurði um hvort haft hafi verið samband af aðilum sem lýstu áhuga sínum um uppbyggingu í Skaftafelli.  Hjalti upplýsti um þau samskipti.

Björn Ingi spurði hvort Alpaklúbburinn hafi fylgt eftir hugmyndum sínum um uppbyggingu fjallaskýlis.  Regína sagðist senda bréf til að upplýsa um afstöðu svæðisráðs frá síðasta fundi.

Sigurlaug spurði um hvar vinna við atvinnustefnu væri stödd.  Hjalti og Þórður greindu frá vinnu og umræðu innan stjórnar garðsins.  Taldi Þórður raunhæft að ljúka vinnu í vor.  Jafnframt upplýst að þjóðgarðurinn sé að vinna að innleiðingu Vakans.

 

 

 

Fundi slitið 17.10


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica