Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
30. fundur
Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 30. fundur
Fundur haldinn fimmtudaginn 18. janúar 2012 kl. 16.00 í ráðhúsinu á Höfn.
Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir, Hildur Þórsdóttir, Björn Ingi Jónsson. Karl Ingólfsson, Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, og Þórður H. Ólafsson, framkvæmdastjóri voru í síma. Sigurlaug Gissurardóttir boðaði forföll.
Dagskrá.
1. Rekstraráætlun 2012
Þórður fór yfir framlagða rekstraráætlun 2012. Kom fram að rekstrarkostnaður verði alls 106,7 m.kr. og þar af laun 54 m.kr. Sértekjur verða 70 m.kr. sem er 66,6% af rekstrarkostnaði á svæðinu. Áætlunin gerir ráð fyrir opnun nýrrar sýningar- og upplýsingaþjónustu í Gömlubúð á Höfn og rekstri hennar. Jafnframt er aukið við landvörslu í Skaftafelli, Heinabergssvæði og væntanlegu nýju svæði við Jökulsárlón.
Björn Ingi spurði hvort áætlun um aukningu á sértekjum séu raunhæfar, hvar samningar við landeigendur komi fram og hvaða upphæðir séu í samningunum.
Þórður útskýrði áætlun um sértekjur, taldi að ef ekki riðu áföll yfir líkt og síðasta sumar væru forsendur fyrir því að ná þessari áætlun. Jafnframt ræddi Þórður um samninga við landeigendur.
Guðrún spurði um vörur til endursölu. Þórður sagði að þegar borin er saman áætlun um uppgjör 2011 og áætlun 2012 eigi eftir að taka tillit til birgða.
Svæðisráð samþykkir framlagða rekstraráætlun fyrir sitt leyti.
2. Aðgerðaáætlun
Þórður og Regína kynntu aðgerðaáætlun næstu ára. Sögðu þau að áætlunin sé unnin á grunni stjórnunar- og verndaráætlunar.
3. Framkvæmdaáætlun 2012
Þórður og Regína gerðu grein fyrir helstu framkvæmdum ársins 2012. Í Skaftafelli verður hafinn undirbúningur á nýju bílastæði skv. nýju skipulagi, lagfæringar á Skaftafellsstofu og við Sandasel, þurrsalerni verður sett upp í Morsárdal, upplýsinga- og sýningaraðstaða í Gömlubúð á Höfn verður opnuð, lagfæringar gerðar á Múlakoti á Lónsöræfum, unnið áfram að stígagerð í Skaftafelli, Heitulækjum, Hjallanesi og Heinabergi, sett upp ný brú á Stóralæk við Svartafoss og lokið við tröppur í grennd og sett upp fræðsluskilti við þjóðveg og á svæðum þjóðgarðsins.
Guðrún saknaði þess að sjá ekki í framkvæmdaáætlun hvar eigi að merkja þjóðgarðsmörk, þar sem annað hvort er ekið inn í garðinn eða á fjölförnum gönguleiðum. Regína upplýsti um áform í þessa veru á Heinabergssvæði.
Karl ræddi um hönnun göngubrúa.
Hildur spurði um breytingar í Múlakoti. Regína greindi frá hugmyndum um að stúka húsið betur niður, m.a. til að það nýtist til upplýsingagjafar.
Þórður greindi frá því að gróf kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir framkvæmdum alls upp á 30 m.kr.
4. Erindi ÍSALP
Regína greindi frá vinnu á milli funda og fyrirspurnir til ÍSALP er verkefnið varðar. Karl sagði frá verkefninu og umræðu innan Alpaklúbbsins um verkefnið síðustu ár. Greindi frá að skýli af þessari gerð séu víða í Ölpunum. Þau rúmi yfirleitt 4-6 einstaklinga, eru opin fyrir alla og yfirleitt staðsett á klöpp.
Málinu frestað til næstu fundar.
5. Kynning á deiliskipulagi í Skaftafelli
Regína greindi frá helstu breytingum milli funda. Svæðisráð stefnir að fundi í Skaftafelli í vor og þá verði hægt að greina skipulagið betur.
Björn Ingi spurði um hvernig hugsað væri fyrir rotþróm. Regína sagði að það hefði ekki verið áætlaðir nýir staðir en taldi nægt rými við núverandi rotþró þurfi að bæta við.
Karl sagði mikilvægt að fela bílastæði með trjágróðri og hafa byggingar eins lágstemmdar og frekast er hægt.
6. Önnur mál
· Regína upplýsti að sá einstaklingur sem stýrt hefur sjálfboðaliðastarfi undanfarin ár muni láta af störfum á næstunni. Lýstu hún yfir vissum áhyggjum af breytingum sem kunna að verða í kjölfarið. Taldi mikilvægt að stjórn og framkvæmdastjóri tækju málið upp við Umhverfisstofnun því sjálfboðaliðar hafi skilað ómetanlegri vinnu á undanförnum árum. Þórður upplýsti um samtöl við forstjóra UST um málið.
Fundi slitið kl. 17.20


