Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
33. fundur
Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 32. fundur
Fundur haldinn mánudaginn 5. nóvember 2012 kl. 20.00 í Ráðhúsinu á Höfn.
Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir, Hildur Þórsdóttir, Björn Ingi Jónsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Karl Ingólfsson sem var í síma, Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Þórður Ólafsson framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs og Þórunn Þorgrímsdóttir sýningarhönnuður. Hjalti ritaði fundargerð
Dagskrá.
1. Sýning í Gömlubúð.
Þórður og Þórunn gerðu grein fyrir hugmyndum um uppsetningu fræðslusýningar um náttúru suðursvæðis þjóðgarðsins í víðu samhengi, um áhrif Vatnajökuls á landmótun, dýralíf og gróður en einnig mannlífið sem þrifist hefur milli illfæra jökulfljóta um aldir. Þórður þakkaði fyrir frumkvæði heimamanna að samstarfi um uppsetningu sýningar og leigu á húsnæði. Þórunn kynnti meginhugmyndir að uppbyggingu sýningarinnar en fyrir fundinum lá tillaga hennar um rýmisnotkun og innihald fræðslusýningar.
Karl taldi mikilvægt að hugsað yrði fyrir hljóðvist í húsinu. Hildur lagði áherslu á að í rými þar sem gera á jöklafræði og jarðfræði skil ásamt því að hafa möguleika á fyrirlestrum að þessu tvennu verði ekki blandað saman þannig að ónæði skapist. Guðrún lýsti yfir ánægju með að sjá sýninguna í þessum anda og sæi ekki verðugara hlutverk fyrir sér fyrir Gömlubúð.
Þórður og Þórunn kynntu drög að hugmyndum um breytingu á rýmisnotkun í þjónustumiðstöð í Skaftafelli. Þar verði lögð áhersla á fræðslusýningu, upplýsingagjöf, verslun og veitingar.
2. Stjórnunar- og verndaráætlun.
Þórður gerði grein fyrir tímasetningum er varðar breytingar á stjórnunar- og verndaráætlun. Ástæðan er fyrst og fremst stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs yfir Langasjó og samgöngumál en þá var ákveðið að nýta það ferli til að gera breytingar á áætluninni ef vilji svæðisráða og stjórnar lúta að því.
Þórður og Þórunn véku af fundi kl. 21.30.
Regína fór yfir samantekt sem hún hafði unnið um álitamál um stjórnunar- og verndaráætlun. Svæðisráð fór yfir skjalið og lagði niður áherslur í einstökum málum sem það felur formanni að koma á framfæri við stjórn þjóðgarðsins.
3. Atvinnustefna.
Lagt fram bréf dags 23. október 2012 frá Öræfaferðum um samskipti fyrirtækisins við Vatnajökulsþjóðgarð. Regína gerði grein fyrir samskiptum við eigendur Öræfaferða. Fundarmenn fjölluðu um þróun starfsemi fjallaferðaþjónustufyrirtækja í Öræfum. Rætt um sýnileika þessara fyrirtækja í Skaftafelli. Þeir sem ekki eru með skúr hafi ekki sama sýnileika og aðrir. Umræður sköpuðust um hvernig best er að standa að samstarfi við fyrirtæki sem vilja tengja sig við þjóðgarðinn og koma þjónustu sinni á framfæri við gesti sem heimsækja þjónustumiðstöðvar hans. Hjalti greindi frá umræðum um atvinnustefnu þjóðgarðsins á síðasta fundi stjórnar. Þar var ákveðið að hefja vinnu við mótun stefnu sem tæki m.a. mið af því hvernig þjóðgarðurinn geti byggt upp atvinnu á nærsvæði garðsins.
Svæðisráð telur mikilvægt við mótun atvinnustefnu að lagðar verði línur um hvernig sýnileika fyrirtækja í og við meginþjónustumiðstöðvar þjóðgarðsins verði háttað. Gæta þurfi jafnræðis meðal fyrirtækjanna og móta þurfi almennar leikreglur fyrir þjóðgarðinn í þessum efnum. Einnig þurfi að taka tillit til fyrirtækja sem eru starfandi á nærsvæði þjóðgarðsins og eru með starfsemi allt árið. Þá telur Svæðisráð mikilvægt að fyrirtæki og einstaklingar sem vilja starfa innan þjóðgarðs njóti hvatningar og stuðnings þjóðgarðsins til þess. Þá telur Svæðisráð áhugavert að skoða að setja fyrirtækjum skilyrði um að gerast aðili að gæðakerfi eins og Vakanum. Þau fyrirtæki sem geri slíkt fái til dæmis kynningu á vegum þjóðgarðsins í gegnum bæklinga og heimasíðu hans. Jafnframt er mikilvægt að þjóðgarðurinn komi að rannsóknar- og þróunarstarfi til að byggja upp þekkingu á gæðum hans sem geta nýst við atvinnusköpun. Hildur benti á möguleika sem gætu falist í stórum samráðsfundi um möguleika sem felast í Vatnajökulsþjóðgarði.
4. Önnur mál.
Engin.
Fundi slitið 22.50


