Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31

31. fundur

Fundur haldinn þriðjudaginn 7. febrúar 2012 kl. 17.15 í ráðhúsinu á Höfn. 

Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir, Hildur Þórsdóttir, Björn Ingi Jónsson, Sigurlaug Gissurardóttir og Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður. Karl Ingólfsson var í síma.

Dagskrá.

1.      Umfjöllun og ályktanir starfshóps um athugasemdir hagsmunaaðila um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði

Fyrir fundinum lá skýrsla starfshóps um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði dags. 2. desember 2011.  Svæðisráðið fjallaði um skýrsluna og ályktaði um eftirfarandi mál:

 ·         Ákvörðunarvald þjóðgarðsvarða og lokanir vega (bls. 10).

Svæðisráð telur að setja eigi almennar reglur um lokanir, hvenær eigi að auglýsa þær formlega og hvenær ekki. Jafnframt þarf að setja reglur um lokanir á svæðum vegna sérstakra hagsmuna, s.s. kvikmyndagerðar.  Bent er á að lokanir geta bæði verið skyndilegar, t.d. vegna aurbleytu, svellalaga eða grjóthruns, og eins vegna fyrirséðra atburða sem þá verða auglýstir.  Einnig ættu þjóðgarðsverðir að hafa samráð við almannavarnir eða Landsbjörg ef svæði er lokað vegna náttúruvár.  Jafnvel eigi slík tilmæli að koma þaðan en starfsmenn þjóðgarðsins að aðstoða við framkvæmdina. 

 ·         Viðhald á stofnvegum og skyldar ábendingar (bls. 11).

Svæðisráðið telur mikilvægt að í þessu samhengi verði þolmörk leiða skoðuð og þau nýtt sem stjórntæki.  Einnig er mikilvægt að halda áfram viðræðum við vegagerðina um umsjón og viðhald allra vega innan þjóðgarðsins.

 ·         Esjufjöll (bls. 13).

Í ályktun starfshópsins segir að ekki sé ástæða til að breyta reglum en áréttuð þörf fyrir að gefa út nánari skýringar hvað varðar aðgengi almennra ferðamanna í Esjufjöllum.  Svæðisráð bendir á að staðan í dag er þannig að fyrirtæki sem bjóða upp á fjalla- og jöklaferðir eru með ferðir þar sem gist er í Esjufjöllum, oft í skála JÖRFÍ.  Þannig að nú þegar er önnur umferð um svæðið en í vísindalegum tilgangi.

 Svæðisráðið telur að stjórnunar- og verndaráætlun sé skýr hvað þetta varðar en bendir á að skynsamlegt kunni að vera að breyta 5. lið þannig:  Þjóðgarðsverði, að höfðu samráði við svæðisráð, er heimilt að auglýsa ár hvert hnitsett svæði þar sem má tjalda á snjólausu landi.

 ·         Hestar í Vatnajökulsþjóðgarði (bls. 16).

Svæðisráðið telur að leita þurfi eftir samstarfi við UST um málið enda eru Lónsöræfi formlega á ábyrgð stofnunarinnar þar sem nokkuð er um hestaferðir.  Svæðisráðið bendir á að skoða þurfi þolmörk hvers svæðis fyrir sig og ein regla gangi varla fyrir þjóðgarðinn í heild.  Svæðisráðið leggur því til að settar verði reglur um fjölda hesta og leiðir fyrir hvert svæði fyrir sig, þ.e. Skaftafell, Heinaberg, Hoffell og Lónsöræfi.  Sérstaklega skal tekið tillit til fornra reiðleiða.

 ·          Merking aðkomuleiða á jökulhettuna (bls. 17).

Svæðisráðið tekur undir að ákjósanlegt væri að hnitsetja aðkomuleiðir að jökli í samvinnu við 4x4 og björgunarsveitir.  Ekki er skynsamlegt að merkja með skiltum við þjóðveg, til dæmis vegna misvísandi skilaboða sem slíkt geti valdið óvönu fólki á illa útbúnum faratækjum.  Svæðisráðið leggur áherslu á að hér er átt við akstur á snjó og ís á suðursvæði, nema á þar til gerðum vegum til dæmis að Jöklaseli. 

 ·         Skeiðará (bls. 20).

Svæðisráðið telur að stjórnunar – og verndaráætlun sé fullnægjandi hvað þennan veg varðar.

 ·         Tjöldun (bls. 24).

Svæðisráðið leggur ekki til breytingar á ákvæðum stjórnunar- og verndaráætlun um tjöldun.

 

2.      Undirbúningur breytinga á stjórnskipan þjóðgarða

Hjalti gerði grein fyrir umræðum á fundi stjórnar þjóðgarðsins og bókun stjórnar um málið og bréfi sem unnið hefur verið að í samstarfi bæjar- og sveitarstjóra umhverfis jökulinn.

Svæðisráð tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bréfinu og áréttar að breytingar verði gerðar í nánu samstarfi ríkis, útivistarfólks, ferðaþjónustunnar, náttúruverndarfólks, bænda og sveitarstjórna.

 

3.      Ársfundur á Suðursvæði

Ákveðið að hafa fundinn laugardaginn 24. mars.  Óskað eftir að Regína geri tillögu um dagskrá og fundarstað.

 

4.      Önnur mál

Engin.

 Fundi slitið kl. 18.40


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica