Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28

28. fundur

 

Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Fundur haldinn þriðjudaginn 4. október 2011 kl. 17.15 í ráðhúsinu á Höfn. 

Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir, Hildur Þórsdóttir, Björn Ingi Jónsson, Karl Ingólfsson og Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður.  Sigurlaug Gissurardóttir boðaði forföll.

Dagskrá.

1.       Starfið á Suðursvæði

Regína kynnti starfið framan af árinu.  Þrír heilsársstarfsmenn eru á svæðinu (2 í Skaftafelli og 1 á Höfn), 14 sumarstarfsmenn (3-4 í upplýsingamiðstöð, 3-4 í landvörslu, 2 í ræstingum, 6 vikur í Lónsöræfum og 3 mánuðir í upplýsingamiðstöð/Jöklasýningu og landvörslu á Höfn).  Samstarf er við landeigendur í Hólmi, Hoffelli og Skálafelli sem Regína sagði að gengið hafi vel.  Þeir halda dagbók sem eftir á að fara í gegnum.  Farið var með alla starfsmenn um Suðursvæðið og ferðaþjónustuaðilar heimsóttir sem hafi skipt miklu máli fyrir upplýsingamiðlun.  Helstu framkvæmdir fólust í breytingum og viðhaldi á aðstöðu starfsmanna og sjálfboðaliða í Sandaseli, gönguleið að Skaftafellsjökli var gerð fær hjólastólum, pallar/tröppur/brú er í smíðum við Svartafoss með það fyrir augum að geta tekið á móti miklum fjölda og að aðgengi sé gott allt árið, ný gönguleið stikuð á Heinabergssvæðinu, unnið að stikun gönguleiða í Lónsöræfum og stikuð ný göngu- og hjólaleið yfir Morsárdal að Réttargili.  Sagði Regína að hún hafi fundað um vegi á Heinabergssvæði með Vegagerðinni sem hafi lagfært þá í kjölfarið.  Upplýsti Regína um talningar á sex stöðum innan Suðursvæðis.  Sýndi tölur fyrir Skaftafellsstofu frá maí – sept. árin 2009-2011.  Kom fram að gestakomur í  september árið 2011 hafi verið yfir 16.000 en voru 11.000 árið 2009.  Einnig er unnið að ýmsum verkefnum, s.s. uppsetningu skilta við Hoffellsjökul, nýjum bæklingi fyrir Skaftafell, þremur skiltum við þjóðveginn, þremur skiltum við Heinabergsjökul, lokið var við jarðfræðikafla í handbók fyrir starfsmenn í upplýsingagjöf, talsverður hluti af vinnu aðstoðarmanns þjóðgarðsvarðar felst í umsjón með heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs og dagskrá í þjóðgarðinum (fyrirlestrar, brennur og skólaheimsóknir) og útgáfu leyfa vegna rannsókna og kvikmyndatöku.  Boðið var upp á gönguferðir við Heinaberg sem fengið hafi nokkuð góða aðsókn.  Sagði að svæðið væri smám saman að stimpla sig inn í hugum ferðamanna.  Greindi jafnframt frá ýmsu öðru, s.s. rýmingu á tjaldsvæði og lokun svæðis vegna Grímsvatnagoss 22.-26 maí.  

Fundarmenn þökkuðu Regínu yfir gott og ítarlegt yfirlit. Jafnframt hrósuðu nefndarmenn starfsmönnum á svæðinu fyrir öflugt og fjölbreytt starf.

2.       Innkaup og uppgjör á verslunarvöru í Skaftafelli

Regína fylgdi málinu úr hlaði og sagði umsvif í verslun í Skaftafelli vera orðinn mjög umfangsmikil  Taldi brýna þörf á að sérstakur starfsmaður yrði ráðinn til að halda utan um verslun.  Sagði að frá um 15. júní hafi nær allur tími þjóðgarðsvarðar farið í verslunina og ræddi jafnframt um mikilvægi þess að afla sértekna í Skaftafelli.   Benti Regína á að hugsa þurfi málið heildstætt, meðal annars út frá húsnæðismálum starfsmanna.  Karl sagði að starfsmaður sem einbeitti sér að þessu verkefni gæti aukið sértekjur enn frekar í Skaftafelli. Svæðisráð beinir því til stjórnar að taka málið til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012. 

3.       Sameining stofnana á sviði náttúruverndar

Hjalti upplýsti um útkomu Hvítbókar um náttúruvernd sem unnin var á vegum umhverfisráðuneytisins.  Sagði mikilvægt að svæðisráð gefi sér tíma til að ræða hana og þá vinnu sem fer fram á vegum Umhverfisráðuneytis um stjórn þjóðgarða.  Í kjölfarið ræddu fundarmenn um kosti og galla þess að sameina stjórnsýslu þjóðgarða og friðlýstra svæða.  Fundarmenn samála um að taka málið upp á næsta fundi ráðsins.

4.       Gestastofa á Höfn

Hjalti kynnti viðræður um uppbyggingu gestastofu á Höfn.  Karl sagði mikilvægt að tryggja fjárveitingar inná svæðin, til úrbóta þar.  Guðrún taldi mikilvægt að opna sýningu á Höfn meðal annars til að dreifa álagi frá Skaftafelli. Karl sagði mikilvægt að ef opna á upplýsingaveitu á vegum þjóðgarðsins að þá eigi frá fyrsta degi að hugsa fyrir sértekjum í rekstri.

5.       Sóknaráætlun 2020

Hjalti kynnti tillögu sem send var til stjórnar Sambands sveitarfélag á Suðurlandi um verkefni í Sóknaráætlun 2020.  Sagði að framkvæmdir á Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs hafi verið eitt af sex verkefnum sem stjórn SASS hafi lagt til að kæmust á dagskrá stjórnvalda í tengslum við 2020 áætlunina. 

6.       Önnur mál

Guðrún sagði frá heimsókn sinni í Snæfellsstofu þar sem hún hafi séð minjagripi sem gerðir voru eftir fyrirmynd af dýrum sem lifa innan Austursvæðis. Sagði Guðrún að Suðursvæðið státi af einu sérstöku náttúrufyrirbæri sem sé jöklamúsin.  Taldi áhugavert að skoða hvort ekki mætti þróa minjagrip með jöklamús sem fyrirmynd.

Regína greindi frá bréfi ÍSALP sem hafa áhuga á að koma upp skýli við Svínafellsjökul til að auka möguleika á ferðum á því svæði.  Von er á formlegu erindi frá félaginu á næstunni.

Regína greindi frá því að hreindýr á Heinabergssvæði væru með vír fastan á hornum.  Hjalti sagði frá viðræðum við aðila sem tengjast málinu og væri bjartsýnn á góða lausn.

Regína upplýsti um utanvegaakstur í Lónsöræfum, líklega á mótorhjólum við smölum.  Svæðisráð harmar utanvegaaksturinn og bendir á að notkun mótorhjóla, annarra en fjórhjóla, er bönnuð við smölun.

 Fundi slitið 19.10


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica