Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
25. fundur
Fundur haldinn þriðjudaginn 1. febrúar 2011 kl. 20.00 í ráðhúsinu á Höfn. Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Regína Hreinsdóttir. Skúli Skúlason og Þórður Ólafsson voru í síma.
Dagskrá.
1. Rekstraráætlun
Þórður kynnti drög að uppgjöri fyrir árið 2010. Kom fram að niðurstaða stefnir í að verða betri en áætlað er vegna hærri sértekna. Þá kynnti Þórður áætlun fyrir 2011. Sagði að frá að laun hækki, einkum vegna þess að viðvera 3ja starfsmanns í Skaftafelli eykst á árinu. Einnig hækkar aðkeypt þjónusta þjóðgarðsins, til dæmis vegna samninga við landeigendur og Jöklasýningu á Höfn. Sértekjur garðsins hafa vaxið mikið undanfarin ár, úr 28 m.kr árið 2008 í 62 m.kr. árið 2010. Gjöld umfram sértekjur árið 2010 eru 19,6 m.kr. en voru árið 2008 alls 28,2 m.kr. Niðurstaðan árið 2011 er áætluð 21,2 m.kr.
Guðrún lýsti ánægju með áætlunina og hrósaði starfsmönnum garðsins fyrir vel unnin störf.
Hjalti taldi mikilvægt að benda á þá staðreynd að þegar umsvif hafa aukist sem nemur auknum útgjöldum upp á 30 m.kr. að þá hefur framlag lækkað um 7 m.kr. Þjóðgarðurinn sé þannig ekki aðeins einn af aðal seglum svæðisins heldur einnig nærri því sjálfbær rekstrareining.
Sigurlaug tók undir orð Guðrúnar og Hjalta. Nefndi sérstaklega mikilvægi heilsársopnunar í Skaftafelli.
Svæðisráð samþykkir framlagða áætlun fyrir sitt leyti.
2. Aðgerðaáætlun
Þórður sagði að aðgerðaáætlun væri unnin upp úr stjórnunar- og verndaráætlun.
Regína kynnti 1. drög að aðgerðaáætlun.
Umræður sköpuðust um einstaka liði. Fundarmenn sammála um að kominn sé fram góður rammi til að vinna eftir á næstu árum. Spurt um hvort þjóðgarðurinn hafi mannskap til að vinna að þeim verkefnum sem stefnt er að á árinu 2011. Eins spurning um hvort búið er að kostnaðarmeta einstaka liði. Sagði Regína að margt hafi þegar verið undirbúið og er bjartsýn á að markmið náist. Sagði Þórður að verið sé að vinna að kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdir áranna 2011-2120.
Sagði Sigurlaug að mikilvægt er að þjóðgarðurinn og aðilar á nærsvæði tali saman um aðgerðir og stilli saman strengi sína.
Upplýst að áfram verði unnið að gerð áætlunarinnar og fjallað um hana á næstu fundum svæðisráðsins.
3. Framkvæmdaáætlun 2011
Þórður kynnti framkvæmdaáætlun. Sagði hann frá áherslum stjórnar um aukinn sýnileika þjóðgarðsins. Nefndi hann áherslur garðsins á árinu 2011, stígagerð, merkingar og bæklingagerð auk annarra verkefna sem ráðist verður í.
Fundarmenn lýstu ánægju með framkomnar tillögur og vinnubrögðin.
Tillagan verður send á svæðisráðið eftir frekari vinnu starfsmanna.
4. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið 21.30


