Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 21. fundur
21. fundur
Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis mánudaginn, 9. ágúst 2010 í Ráðhúsi á Höfn kl. 13:00.
Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Skúli Skúlason og Hrafnhildur Hannesdóttir voru í síma. Björn Ingi Jónsson boðaði forföll.
Gengið var til dagskrár:
1. Athugasemdir við verndaráætlun
- Akstur á Lambatungnajökul.
· Kom fram að hugmynd með þessari leið í verndaráætlun var ekki sú að heimila akstur yfir sumartímann heldur að benda á að algengt sé að fara á Vatnajökul um Lambatungnajökul yfir vetrartímann, á snævi þakinni jörðu.
- Veglagning upp úr Hoffellsdal.
· Hjalti gerði grein fyrir málinu og umræðum við landeigendur. Sagði að tvennt væri í stöðunni, annars vegar að ljúka við veglagningu með bílastæðum og hugsanlegri uppbyggingu þjónustu þar á „góðum“ stað og hins vegar að finna vegstæði að jökli. Það væri ekki möguleiki að snúa til baka. Vegurinn væri kominn.
· Sigurlaug ræddi um að umræddur vegur væri núna utan þjóðgarðsmarka og sagði að slóðar og vegir væru nauðsynlegir til að opna svæði fyrir ferðamönnum.
· Guðrún ræddi um að mikilvægt væri að vanda stjórnsýslu í þess háttar málum.
· Hrafnhildur spurði um hvar viðhald og umsjón með þessum vegi væri. Hjalti upplýsti að hann teldi að það yrði í höndum vegagerðar og landeigenda.
· Skúli sagði í hópi félagsmanna í SAMÚT að ýmsir hefðu sterkar skoðanir á móti þessum vegi og aðrir settu spurningarmerki um af hverju væri að opna á nýjar leiðir þegar þjóðgarðurinn væri að stefna að lokum annarra slóða sem hefðu verið vinsælar.
· Hjalti upplýsti að hann stefndi á ferð á svæðið ásamt landeigendum og tæki saman skýrslu um málið í kjölfarið.
· Hrafnhildur sagði að hún héldi að þetta mál þyrfti betri umræðu einkum vegna þess að þetta væri eitt af fáum svæðum þar sem ekki er opið fyrir akandi umferð. Málið hefði verið unnið í flýti og þyrfti betri yfirlegu.
· Svæðisráð ræddi framhaldið og í hvaða farveg ætti að setja málið. Skúli ræddi um hversu mikið þetta væri á borði svæðisráðs ef þetta er fyrir utan þjóðgarðsmörk. Guðrún taldi mikilvægt að fá að sjá myndir af svæðinu. Hrafnhildur taldi mikilvægt að fá fulltrúa mismunandi hagsmunaaðila til að ræða þessi mál.
· Hrafnhildur og Skúli bentu á að veglagning upp Goðahrygg gæti verið erfið vegna viðhalds og umferð á vetrartíma.
· Svæðisráð tekur málið fyrir að nýju þegar skýrsla Hjalta liggur fyrir.
- Þjónustu- og vetraríþróttasvæði á Goðahrygg
· Sigurlaug lagði til að settar verði á fót rannsóknir á svæðinu um forsendur þess að hafa þjónustusvæði yfir höfuð á því. Ræddi m.a. um veðurfar í því sambandi. Með þessu sagði hún ekki vera að leggjast á móti hugmyndinni.
· Guðrún ræddi um að Goðhryggur væri í mikilli hæð og það þyrfti að rannsaka veður þar sérstaklega. Sagði hún að með því að opna svæðið þarna fyrir vetraríþróttir mætti hugsa sér að hafa það opið fyrir skíðafólk á sumrin.
· Hjalti sagði að ræða þyrfti þjónustu við ferðamenn og fleira út frá því hvar vegurinn myndi enda. Byggja þyrfti upp þjónustu í framtíðinni við enda á veginum.
- Akstur að Fláajökli
· Hjalti gerði grein fyrir aðdragandanum og sagði að hugmyndin hafi verið mótuð í stórum hópi. Hugmyndin væri ekki að heimila akstur upp á jökul.
· Hrafnhildur spurði um hvort veglagning raski jökulöldum. Sigurlaug benti á að fyrirhuguð lenging vegarins lægi að mestu leyti um gamlan árfarveg.
· Sigurlaug sagði frá nýjum hugmyndum sem gerðu ráð fyrir göngubrú eða kláf yfir Hólmsá og þar með væri þörf fyrir lengingu á slóðanum við austanverðan jökulinn úr sögunni.
· Svæðisráð er sammála um að gera tillögu um að akstur að Fláajökli verði ekki heimilaður.
- Slóðinn í Heinabergsdal
· Skúli gerði grein fyrir sjónarmiðum á meðal útivistarfélaga. Sagði að mörgum hefði ekki þótt rétt að aðgengi um veginn væri háð því að vera í „pakkaferð“. Sagði að með opnun á veginum væri verið að opna á marga skemmtilega staði fyrir almenning, t.d. Humarkló og Vatnsdal. Með veginum væri verið að gera Heinabergsdal að áhugaverðara útivistarsvæði.
· Hrafnhildur tók undir orð Skúla og sagði umræðuna í sinum hóp hafa verið svipaðar. Sagði að þar sem slóðinn væri kominn væri ekki rétt að hindra rétt almennings um dalinn.
· Skúli og Hrafnhildur fóru jafnframt yfir dóm sem féll um slóðann inn í Hrafntinnusker sem styður að slóðar sem lagðir eru fyrir almannafé séu opnir almenningi.
· Sigurlaug rifjaði upp að starfshópur um Heinabergssvæðið, sem hitt hafi fjölmarga hagsmunaaðila, hafi lagt til að slóðinn skyldi vera opinn almenningi.
· Svæðisráð sammála um að gera tillögu um að slóðanum verði haldið opnum og gert yrði gott bílastæði við enda hans til að koma í veg fyrir utanvegaakstur.
- Aðgangur akandi umferðar að skálum í Esjufjöllum.
· Skúli sagði að í reynd væri í dag keyrt að skálunum. Sagði að á vorin stæðu skálarnir upp úr snjó.
· Svæðisráð sammála um að akstur að skála á Grímsfjalli skaði ekki lífríki. Svæðisráð jafnframt sammála um að reglur um umgengni í Esjufjöllum verði óbreyttar frá því sem hefur verið.
- Önnur mál.
- Guðrún spurðist fyrir um þjónustusamninga við landeigendur hér á svæðinu. Spurði hún um hvort þeir væru allstaðar eins. Sagði hún einnig mikilvægt væri að koma upp merkingum fyrir ferðamenn um hvar þeir geta sótt þjónustu.
- Sigurlaug spurði um samninga á milli landeigenda og ráðuneytis um Jökulfell.
- Hrafnhildur spurðist fyrir um framhald vinnu við verndaráætlun.
- Hjalti svaraði fyrirspurnum.
Fundi slitið 14.20


