Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur

20. fundur

Fundur haldinn föstudaginn 23. apríl 2010 kl. 15.00 í Ráðhúsi Hornafjarðar.  Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir og  Skúli Skúlason.  Einnig: Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Helga Davids sérfræðingur og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir ráðgjafi.

 

Dagskrá.


1. Verndaráætlun Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs – tillögur ráðgjafa

Hjalti bauð fundarmenn velkomna.  Sigurlaug spurði um samspil tillögur ráðgjafa fyrir suðursvæði og samræmdrar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð í heild sinni.  Hjalti upplýsti að tillögur ráðgjafa á hverju rekstrarsvæði fyrir sig mynduðu grunn að samræmdri stjórnunar- og verndaráætlun.  Tillögur ráðgjafa væri mun ítarlegri og yfirgripsmeiri en samræmda áætlunin drægi fram þá þætti sem mikilvægastir væru m.t.t. til uppbyggingar þjóðgarðsins og þjónustu.

Sigrún Inga, Regína og Helga kynntu þar næst tillögurnar.  Á meðan kynningu stóð var farið yfir ýmiss atriði þar sem eftirfarandi kom fram:

 

  • Björn Ingi vakti máls á umræðu í skýrslunni um sjálfbæra nýtingu, víðerni og umferð á Vatnajökli í samhengi við verndarlokk II hjá IUCN.  Svæðisráð leggur ríka áherslu á að ef setja á verndarflokk II fyrir þjóðgarðinn að þá verði það ekki til að draga úr möguleika á ferðamennsku og sjálfbærri nýtingu (sauðfjárbeit og veiðar) í Hoffelli og Heinabergssvæði og að útivist og ferðamennska á jökulhettu Vatnajökuls geti verið með óbreyttu sniði og jafnvel aukist í framtíðinni.
  • Regína gerði verndun náttúrulegs gróðurfars í Morsárdal að umtalsefni og sagði það sína skoðun að ekki ætti að beita úrræðum sem fælu í sér notkun eiturefna.  Lagði frekar til að fleiri úrræði væru skoðuð.  Um er að ræða meira en 30 ha lands.  Svæðisráð fjallaði um málið og samþykkti að í skilmálum verði sett sú stefna að fá fagstofanir til samráðs um útrýmingu lúpínu á svæðinu.
  • Guðrún Ingimundardóttir lagði til að hugtakinu ferðamannavegur yrði skipt út fyrir frístundaveg.
  • Rætt um tjöldun á víðernum. Svæðisráð sammála um að almannaréttur eins og hann er skilgreindur í lögum eigi við um víðerni í þjóðgarðinum.
  • Sigurlaug lagði áherslu á að nýjasta upplýsingatækni verði notuð við upplýsingagjöf í þjóðgarðinum og upplýsingar verði aðgengilegar sem víðast á þjónustustöðum í nágrenni garðsins.
  • Umræða skapaðist um húsnæði fyrir heilsársstarfsmenn.  Svæðisráð er sammála um að ekki ætti að setja markmið um að tryggja öllum heilsársstarfsmönnum húsnæði heldur meta aðstæður hverju sinni.

 

Eftir yfirferð og lagfæringar sem gerðar voru á fundinum voru tillögur ráðgjafa samþykktar.  Svæðisráð vísar Verndaráætlun Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs til stjórnar.

 

Svæðisráð þakkar ráðgjöfum og starfsmönnum fyrir mikla og vandaða vinnu við gerð tillögu að verndaráætlun.

 

2. Önnur mál

 

 

Fundi slitið 17.30

 



Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica