Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur

19. fundur

 

Fundur haldinn mánudaginn 12. apríl 2010 kl. 16.00.  Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Skúli Skúlason og Hrafnhildur Hannesdóttir.  Einnig: Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, og Halldóra Hreggviðsdóttir ráðgjafi.  Árni Geirsson ráðgjafi og Þórður Ólafsson framkvæmdastjóri mættu á fundinn kl. 18.10.

 Dagskrá.

 1.       Drög að stjórnunar – og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs (SVVÞ)

Hjalti bauð fundarmenn velkomna.  Halldóra gerði grein fyrir stöðu við vinnu að SVVÞ.  Sú vinna byggir á samráðsfundi sem haldinn var í Elliðarárdal sl. haust, skýrslu ráðgjafa svæðisráða, samráði og vinnu við þjóðgarðsvörð á Suðursvæði og þeim lagagrunni sem Vatnajökulsþjóðgarður hvílir á. 

 Eftirfarandi kom m.a. fram í máli Halldóru

·         Að vinna að verndar- og stjórnunaráætlun miðaðist við að leggja hana fram á því formi sem skipulagsáætlanir og lög gera ráð fyrir.  Komið hefur jákvæð umsögn frá umhverfisráðuneytinu um þá nálgun sem beitt hefur í þessari vinnu.  Hins vegar hefur ekki enn komið formlegt heiti á SVVÞ en reynt er að finna gott heiti á afraksturinn sem á að vera stefna um nýtingu, verndun og stjórnun þjóðgarðsins. 

·         Í drögum að SVVÞ er tillaga um að VÞ falli undir verndarflokk II hjá IUCN.  Sú vernd gengur út á verndun landslags og menningarminja en takmarkar ekki atvinnustarfsemi enda sé hún byggð upp samkvæmt sjónarmiðum sjálfbærrar þróunar.

·         Eitt af skilgreindum víðernum er jökulhettan en í texta er sérstaklega tekið fram að jökulhettan sé aðgengilegust að sunnanverðu og sé vettvangur margvíslegar útivistar og ferðaþjónustu, t.d. gönguferða um skriðjökla og á fjallstinda, vélsleðaferða og jeppaferða. Af þeim sökum þarf ekki að óttast takmörkun á þeirri atvinnustarfsemi sem þar er stunduð.

·         Varðandi samgöngur í þjóðgarði hefur verið rætt við Vegaerð um framsetningu og allar leiðir verða skilgreindar sem vegir en ekki slóðar.  Umræða á sér stað við Vegagerðina um veghald.  Svæðisráð er sammála um að vegir verði ekki uppbyggðir en allar megin aðkomuleiðir lagðar bundnu slitlagii.

 Regína gerði grein fyrir málum er sérstaklega varðar skipulag á suðursvæði:

·         Farið yfir einstök atriði er varðar notkun skálanna í Esjufjöllum, Grímsfjalli og Goðahnúkum í kafla 9.5 um aðra landnotkun.  Þar kemur  fram að setja verði í skilmála að skálarnir verði einnig opnir til útivistar og ferðaþjónustu í samræmi við það sem stendur undir svæði með sérstökum áherslum. Mikil umræða skapaðist um Esjufjöll, Grímsfjall og Goðahnúk og að mikilvægt sé að halda þeim opnum fyrir ferðaþjónustu og útivist.

·         Kafli 9.1. fjallar um svæði með sérstökum verndarákvæðum á Suðursvæði þar sem dregin eru fram svæði sem eru áhugaverð fyrir ferðamenn og til útivistar og eins hvernig verja beri svæðin fyrir skemmdum.  Þessi umfjöllun byggir á úttekt ráðgjafa svæðisráðs Suðursvæðis. Einnig rætt um að í ákvæði um jaðra skriðjökla verði heimild að lengja vegslóða við Fláajökul.

·         Í kafla 9.2. er fjallað um samgöngur.  Svæðisráð fjallaði sérstaklega um veginn í Heinabergsdal.  Upplýst að starfshópur um Heinabergssvæði hafi séð not fyrir hann vegna smalanna á vegum bænda og fulltrúar útivistarsamtaka hafi lagt áherslu á að aka veginn vegna skipulagðra ferða á Humarkló eða aðra tinda í umhverfinu.  Starfshópurinn hafi ekki viljað hleypa almennri umferð lengra en að fyrirhugðum áningarstað við Heinabergslón.  Svæðisráð leggur því til að vegurinn verði lokaður fyrir almennri umferð en þjóðgarðsvörður geti heimilað akstur um hann og að bændur hafi heimild til að fara um veginn vegna smölunnar sem og hreindýraveiðimenn.  Rætt um að mæta mætti sjónarmiðum útivistarsamtaka með skálabyggingu í Heinabergsdal.  Einnig gerði tillaga um að taka þyrfti fram að fyrirhuguð er samfellt göngusvæði frá Lónsöræfum að Skálafelli.  Jafnframt að taka þarf fram gönguleið frá Humarkló niður í Heinabergsdal. Gerð tillaga um að taka fram um fyrirhugaða vegi að gert sé ráð fyrir lenginu vegar inn Hoffellsdal og að Goðahrygg.

·         Farið yfir kafla 9.4 um þjónustusvæði. 

o   Rætt um að tjöldun væri óheimil nema á þar til gerðum tjaldstæðum á suðursvæði.  Gerð tillaga um að bæta við undir kaflann um tjaldsvæði að tjöldun utan merktra tjaldsvæða í Hoffelli og Skálafelli sé óheimil.

o   Farið sérstaklega yfir markmið með uppbyggingu í Skaftafell, Heinabergssvæði, Hjallanesi, Hoffelli, Höfn og Stafafellsfjöllum.

o   Gerð tillaga um að undir umfjöllun um Heinabergssvæði verði gert ráð fyrir að deiliskipulag staðsetji tvo gönguskála, annan við Jökulfell og hinn í Heinabergsfjöllum.

o   Gerð tillaga um að tilgreina landvörslu undir umræðu um samstarf við landeigendur.

o   Gerð tillaga um að upplýsingahlið/skilti verði sett upp við þjóðgarðsmörk þar sem ekið er inn í Skaftafell, á þjóðgarðsmörkum á Heinabergssvæðinu, við Hoffellsjökul, Jöklasel, og einnig að sett verði hlið við Gígjukvísl, Háöldu, Morsá, eldra útfall Skeiðarár og Hjallanes þar sem gengið er inn í þjóðgarð.

·         Regína lagði áherslu á að gerð yrði beitarþolsmæling á suðursvæði til að hægt verði að vakta hvort markmið með sjálfbærni væri ógnað.

 Fundarmenn þökkuðu ráðgjöfum suðursvæðis, ráðgjöfum Alta og starfsmönnum þjóðgarðsins fyrir vel unnin störf hingað til við vinnu að verndaráætlun.

 2.      Önnur mál

Engin.

Fundi slitið 18.45


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica