Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
18. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi Hornafjarðar mánudaginn 25. janúar 2010 kl. 16.00. Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Skúli Skúlason og Hrafnhildur Hannessdóttir voru í síma. Einnig: Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, og Þorvarður Árnason, ráðgjafi.
Dagskrá.
1. Drög að verndaráætlun og stefnumótun.
Þorvarður Árnason fór yfir drög að verndaráætlun. Samþykkt að senda drögin til hagsmunaaðila til yfirlestrar og athugasemda. Stefnt að opnun fundi í lok janúar eða byrjun febrúar.
2. Fjárhagsáætlun 2010
(Þórður Ólafsson, framkvæmdastjóri mætti á fundinn undir þessum lið).
Lögð fram drög að rekstraráætlun fyrir suðursvæði. Kom fram að sértekjur hafa aukist mikið. Óskað eftir að sjá sundurliðað hvernig starfsmenn skiptast á milli landvarða og annarra starfsmanna. Óskað eftir að fá rekstraráætlun senda í tölvupósti til fundarmanna.
Svæðisráð samþykkir fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti.
3. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið 18.22


