Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur

Fundur haldinn í ráðhúsi Hornafjarðar 5. janúar 2010 kl. 16.00.  Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson.  Skúli Skúlason og Hrafnhildur Hannessdóttir voru í síma. Einnig: Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður.

 Dagskrá.

 1.       Drög að verndaráætlun og stefnumótun.

Farið yfir drög að verndaráætlun og stefnumótun.  Í umræðum kom fram að töluvert væri um endurtekningar, þörf væri á betri ritstýringu, draga þyrfti saman helstu aðgerðir og koma skýrar á framfæri því sem stefnt er að.  Þá var bent á að það komi fram í reglugerð að ef eitthvað eigi að framkvæma innan þjóðgarðs að þá þurfi að hafa það í verndaráætlun.  Mikilvægt væri að verndaráætlun væri stefnumótun en ekki stöðumat.  Áður en farið verði í samráð þurfi að draga fram skýrari línur um að hverju eigi að stefna og einnig hvað verði bannað og hvað verði leyfilegt.  Slíkar spurningar brenni á íbúum og hagsmunaaðilum.

 2.      Samráð

Eftirfarandi verkáætlun samþykkt.

5. jan miðvikudagur Fundur í svæðisráði
11.jan mánudagur Ritstýring
12.jan þriðjudagur Ritstýring
13.jan miðvikudagur Ritstýring
14.jan fimmtudagur Ritstýring
15.jan föstudagur Ritstýring
18.jan mánudagur Fundur í svæðisráði
20.jan miðvikudagur Fundur með ferðafélaginu, Samút, Skotvís, 4x4, björgunarfélagið og fjallafélaginu
21.jan fimmtudagur Fundur með landeigendum
22.jan föstudagur Fundur með atvinnurekendum sem starfa innan þjóðgarðs
25.jan mánudagur Fundur með stjórn ferðamálafélagsins og stjórn Ríki Vatnajökuls
27.jan miðvikudagur Fundur í svæðisráði þar sem gengið verður frá 1. drögum að tillögu fyrir svæðið
30.jan laugardagur

Almennur íbúafundur.  Umræður á fundinum móta næstu skref. 

Hvort svæðisráð sendir tillögur frá sér eða endurskoðar að hluta.

  

3.      Önnur mál

·         Spurt um fjárhagsstöðu þjóðgarðsins.  Kom fram að skorið hefur verið niður framkvæmdafé en rekstur verði óbreyttur á árinu 2010.  Von er á framkvæmdastjóra í janúar mánuði til að kynna rekstraráætlun.

·         Sigurlaug fagnaði að þjóðgarðurinn hefði lengt opnunartíma og bætt þjónustu í Skaftafelli yfir vetrarmánuðina.  Sagði þetta samdóma álit ferðaþjónustuaðila og meðal þeirra ríkir mikil ánægja með framtakið.  Þetta hefði þegar leitt til aukiningar á fjölda ferðamanna sem væri mikið hagsmunamál fyrir ferðaþjónustuna.

Fundi slitið 17.25


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica