Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur

16. fundur

 

Fundur haldinn fimmtudaginn 10. september 2009 í Hæðum í Skaftafelli kl. 10:00.

 Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ingimundardóttir. Skúli Skúlason var í síma.

Einnig:  Regína Hreinsdóttir þjóðgarðsvörður.   Þorvarður Árnason og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir frá Fræðasetri Háskóla Íslands á Hornafirði.

 1.                  Gjaldtaka fyrir komur gesta  í þjóðgarðinn

Hjalti gerði grein fyrir umræðum í stjórn þjóðgarðsins um gjaldtöku.  Lýsti að rætt hafi verið um tvennskonar gjald, annars vegar almennt gjald á ferðamenn sem koma til landsins og hins  vegar gjald á ferðamenn sem koma á ákveðið svæði.

Regína taldi að seinni leiðin væri auðveldari í framkvæmd en benti jafnframt að rukka mætti fyrir sérstaka þjónustu, s.s. salerni. Guðrún tók undir með Regínu.

Skúli benti á að um viðkvæmt mál væri að ræða.  Sagði að almennt væri skilningur á meðal ferðamanna að gjald mætti taka af ákveðinni aðstöðu frekar en sem inngangseyri á ákveðið svæði og vísaði til reynslu Útivistar af rekstri ferðaþjónustustaða á hálendi Íslands.

Sigurlaug ræddi um vandkvæði við að rukka inn aðgangseyri í þjóðgarðinn en sagði sjálfsagt að rukka aðstöðugjald fyrir veitta þjónustu. Ekki væri sjálfsagt að byggja ætti upp grillaðstöðu, salernisaðstöðu og fleira þess háttar án þess að notendur greiddu fyrir það.  Taldi einnig að það gæti reynst neikvætt fyrir þjóðgarðinn að taka upp aðgangseyri að svæðinu á meðan önnur svæði á landinu gerðu það ekki.

Björn Ingi óttaðist að almenn gjaldtaka af komu ferðamanna myndu ekki skila sér til þjóðgarðsins en benti jafnframt á kostnað við að rukka aðgangseyri í þjóðgarðinn. 

Sigrún Inga taldi að það myndi vera jákvæðara fyrir upplifun ferðamannsins að borga skatt frekar en aðgangseyri.  Það gæti leitt til þess að fólk upplifði að landsvæði væri lokað.

Þorvarður sagði frá spurningakönnun sem framkvæmd var alls staðar kringum þjóðgarðinn sl sumar.  Þar var m.a. spurt um hvort fólk væri tilbúið að greiða fyrir aðgang að þjóðgarðinum.  Niðurstaðan var sú að um helmingur svarenda væru jákvæðir fyrir að borga fyrir aðgang.  Þá benti Þorvarður á gjöld á kolefnisútblástur af flugferðum í Frakklandi.  Sagði hann hafa fylgst með þessari umræðu lengi og verið fyrst frekar hlynntur almennu gjaldi en benti á hættuna á að þeir fjármunir renni ekki þangað þar sem þeirra er þörf.

Hjalti greindi frá þeirri skoðun sinni að almenn gjaldtaka hugnaðist honum síður en sérstök gjöld fyrir komu fólks í garðinn.

Svæðisráð sammála um að halda umræðu um gjaldtöku áfram í haust.

 2.                  Verndaráætlun

Þorvarður og Sigrún Inga fóru yfir vinnu sumarsins og lögðu fram drög að áfangaskýrslu.   Rætt um tímamörk, kostnað og framsetningu.  Mikil umræða skapaðist um samráð.

 3.                  Ferð um þjóðgarðssvæðið

Regína skipuleggur ferð með starfsmönnum garðsins á svæðinu og svæðisráði núna í haust.

 4.                  Atvinnustefna fyrir þjóðgarðinn

Lagt fram minnisblað dags. 7. september 2009 um atvinnustefnustefnu þjóðgarðsins.  Lögð áhersla á að reglur yrðu settar um rekstur fyrirtækja innan þjóðgarðsmarka og samvinnu á milli þjóðgarðs og fyrirtækja á nærsvæði.      

Sigurlaug spurði um ferð til Cairngorms.  Í kjölfar skapaðist umræða um samspil þjóðgarðs og ferðaþjónustufyrirtækja og samvinnu á milli svæða þjóðgarðsins.

Skúli lagði áherslu á að greina ólíka hópa sem koma í þjóðgarðinn.  Á grunni þeirri greiningar væru etv. hægt að sjá tækifæri sem ekki hefur enn verið komið auga á.

 5.                  Önnur mál.

·         Sigurlaug lýsti yfir vonbrigðum sínum yfir aðstöðuhús fyrirtækja í Skaftafelli.  Taldi hún að húsin sómi sér vel ein og sér en saman myndi þau enga heildarmynd.  Lagði hún til að gætt verði að samræmi í framtíðinni.  Einnig greindi hún frá vonbrigðum sínum með að ekki hafi verið rekinn metnaðarfyllri veitingasala í sumar.  Regína sagði upplifun ferðamanna vera mjög misjafna af húsunum en flestir Íslendinga væru óánægðir með húsin.

·         Regína kynnti starfsemi í Skaftafelli í sumar.

 Fundi slitið 11.45.


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica