Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
12. fundur
Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – SuðursvæðiFundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis þriðjudaginn, 10. mars 2009 í Ráðhúsi á Höfn kl. 13:00.
Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir. Skúli Skúlason var í síma. Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson boðuðu forföll. Einnig: Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Þórður Ólafsson, framkvæmdastjóri og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, starfsmaður Háskólaseturs.
Gengið var til dagskrár:
1. Rekstraráætlun
Þórður Ólafsson og Regína Hreinsdóttir gerðu grein fyrir rekstraráætlun þjóðgarðsins fyrir árið 2009. Reksturinn byggir á sömu forsendum og árið 2008. Þá var bætt töluvert við landvarðarvikur í Skaftafelli. Laun eru áætluð 35,6 m.kr., önnur gjöld alls 21,7 m.kr. eða alls 57,3 m.kr. Sértekjur er áætlaðar 32,8 m.kr. og framlag ríkissjóðs til reksturs í Skaftafelli alls 24,5 m.kr. Kom fram að um 60 m.kr. hafi farið í endurbætur í þjónustumiðstöð, skrifstofuhúsnæði og snyrtingum á Skaftafelli og jafnframt að meginþungi starfs sjálfboðaliða á vernduðum svæðum á Íslandi er í Skaftafelli.
Sigurlaug lagði áherslu á að gestastofan í Skaftafelli yrði opinn allt árið.
2. Veitingarekstur í Skaftafelli
Þórður Ólafsson fór yfir veitingarekstur í Skaftafelli og hugmyndir um að þjóðgarðurinn tæki yfir reksturinn. Rökin fyrst og fremst þau að þannig fær þjóðgarðurinn vitneskju um tekjumöguleika og áttar sig betur á hvert sanngjarn leiguverð er. Tók Regína undir þessi sjónarmið.
Sigurlaug lagði áherslu á að ef þessi leið verði farinn megi rekstur þjóðgarðsins ekki undirbjóða samkeppnisaðila og að taka verði húsaleigu af rekstri veitingasölu. Einnig að þetta yrði til þess að lengja opnunartíma þjóðgarðsins. Var í framhaldi rætt um að þjóðgarðurinn væri nú þegar í samkeppnisrekstri, m.a. um rekstur tjaldsvæðis. Kom fram að hugmyndin væri að þjóðgarðsvörður bæri ekki ábyrgð á veitingarekstri og hann yrði alveg aðskilinn í bókhaldi frá annarri starfsemi þjóðgarðsins.
Svæðisráð leggur til að veitingareksturinn verði á könnu þjóðgarðsins í sumar en staðan endurskoðuð við lok árs.
3. Uppbygging á Heinabergssvæði
(Þorvarður Árnason kom á fundinn kl. 14.00).
Sigurlaug Gissurardóttir gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þess hóps sem vann að tillögum um uppbyggingu á Heinabergssvæði. Sagði hún að hópurinn hafi haft samband við aðila sem hafi hagsmuna að gæta á svæðinu t.d. vegna ferðamennsku, sauðfjárbeitar og veiðimennsku auk eldra fólks og annarra með þekkingu á svæðinu. Gerð er tillaga um vegi inn á svæðið og bílastæði, aðstöðu á áningarstöðum, göngustígagerð, landvörslu, fræðslu, upplýsingaskilti, útsýnisskífur og bæklinga. Var tekið fram að svæðið henti sérstaklega fyrir reiðhjól. Rætt um að 4 miljónir króna væru áætlaðar til uppbyggingar á Heinabergssvæði á árinu 2009.
Svæðisráðið óskar eftir að hugmyndirnar séu kostnaðarmetnar og sett upp verkáætlun um framkvæmdir. Þegar áætlun er tilbúinn verði settur á fundur með helst hagsmunaaðilum og íbúum á nærsvæði.
Að lokum þakkaði Hjalti fyrir vel unnar tillögur.
4. Verndaráætlun
Þorvarður og Sigrún Inga gerðu grein fyrir vinnu að verndaráætlun. Kom fram að ráðgjafar hittust allir á Kirkjubæjarklaustri fyrir fjórum vikum. Unnið er núna að grunnvinnu í kortagerð og söfnun upplýsinga. Taldi Þorvarður að vinnu ætti að ljúka á tilsettum tíma.
5. Gestastofa
Hjalti fór yfir umræður í yfirstjórn um gestastofur og heildarstefnumótun fyrir þjóðgarðinn.
6. Deiliskipulag í Skaftafelli
Hjalti gerði grein fyrir umræðum um staðsetningu húsa heilsársstarfsmanna í Skaftafelli, uppbyggingu á vegum Íslenskra fjallaleiðsögumanna og uppbyggingu þjónustumiðstöðvar og tjaldsvæðis. Svæðisráð leggur til að farið verði í heildar skipulagsvinnu fyrir Skaftafell og nærsvæði.
(Þorvarður og Þórður viku af fundi kl. 15.50).
7. Endurskoðun á aðalskipulagi Hornafjarðar
Svæðisráð gerði tillögu að texta í greinargerð fyrir aðalskipulag Hornafjarðar.
8. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið 16.10


