Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur

10. fundur

Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis fimmtudaginn, 30. október 2008 á Höfn í Hornafirði kl. 12:00.

 

Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir, Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólaseturs og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir.  Skúli Skúlason, Hrafnhildur Hannesdóttir og Björn Ingi Jónsson voru í síma.

 

Gengið var til dagskrár:

1.      Samráðsfundur á Mývatni, haldinn 2. október 2008.

Sigurlaug lagði fram minnispunkta og gerði grein fyrir umræðum á fundinum.  Niðurstöður fundarins verða nýttar til vinnu að verndaráætlun.  Sigurlaug greindi frá því að fundarmenn hafi skipst í fjóra vinnuhópa sem fjölluðu um ferðaþjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði; gönguleiðakerfi og útivist; verndun líffræðilegrar fjölbreytni og skipulag og aðgengi að svæðinu og jaðarsvæði þjóðgarðsins.  Kom fram hjá Þorvarði að fundurinn hafi skilað mikilvægum niðurstöðum.  Ræddu Sigurlaug og Þorvarður um að viðhorf til náttúruverndar og þjóðgarðsins eru ólík eftir svæðum.  Skúli sagði að fundurinn hafi verið góður og gagnlegur. 

Sigurlaug og Þorvarður lögðu áherslu á virkt samráð um gerð verndaráætlunar.

 

2.      Staða við gerð verndaráætlunar

Þorvarður lagði til að Sigrún Inga sæti fundi svæðisráðsins sem áheyrnarfulltrúi. Það var samþykkt.  Ræddi Þorvarður um vöktunarverkefni um áhrif þjóðgarðsins á nærsvæði hans sem kynnt verður á ráðstefnu um atvinnulíf og þjóðgarða 7. – 8. nóvember nk..  Þá gerði Þorvarður grein fyrir stöðu að vinnu að verndaráætlun.

 

3.      Heinabergssvæðið

Hjalti lagði til að einn fulltrúi úr svæðisráði og ráðgjafi myndu fá það hlutverk að gera tillögu að uppbyggingu svæðisins.  Svæðisráðið samþykkir að Sigurlaug Gissurardóttir verði fulltrúi svæðisráðs.  Svæðisráðið leggur ríka áherslu á mikið samráð við landeigendur í nágrenni við svæðið, ferðaþjónustuaðila, ferðafélagið og náttúruverndarsamtök.   

 

4.      Önnur mál.

·         Sigurlaug Gissurardóttir gerði NEED ráðstefnuna að umtalsefni.  Ræddi sérstaklega hugmyndir um upplýsingagjöf til ferðamanna í þjóðgörðum og að verja þurfi meiri fjármunum í þann þátt í starfsemi þjóðgarðsins í staðinn fyrir að byggja upp stórar og miklar gestastofur.  Hrafnhildur sagði í kjölfarið frá umræðu sem á sér stað meðal kollega hennar um þá miklu fjármuni sem fara í gestastofur.  Sagði hún að fólk hafi komið að máli við sig um að peningum yrði betur varið í að byggja upp aðstöðu innan garðsins sjálfs og til að auka fræðslu og þjónustu við gesti garðsins.

 

 

Fundi slitið 13.20

Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica