Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
9. fundur
Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis mánudaginn, 8. september 2008 í Ráðhúsi á Höfn kl. 10:00.
Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir, Sigurlaug Gissurardóttir og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, starfsmaður Háskólaseturs. Regína Hreinsdóttir og Skúli Skúlason voru í síma. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólaseturs kom á fundinn í síma kl. 11.20.
1. Verndaráætlun
Sigrún Inga gerði grein fyrir að sumarstarfsmaður Háskólasetursins myndi skila skýrslu um miðjan þennan mánuð um framvinduna í sumar. Kom fram að gróðurhluti hafi verið kortlagður, fyrirliggjandi gögnum um náttúru svæðisins safnað og kannað hvar væri þörf á frekari rannsóknum.
Regína gerði grein fyrir könnun sinni hjá Náttúrufræðistofnun.
Hjalti gerði grein fyrir hvernig staðið verði að vinnu við verndaráætlun á hverju svæði og hvernig samræmingu á milli svæða yrði háttað.
Sigurlaug ræddi um samráð við landeigendur og aðra hagsmunaaðila. Hjalti gerði grein fyrir að forstöðumaður Háskólaseturs muni skila í október nákvæmri áætlun um samráð.
2. Samstarf Jöklasýningar og þjóðgarðs
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við framkvæmdastjóra og formann stjórnar þjóðgarðsins um Jöklasýningu. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar hefur unnið skýrslu um stofnkostnað og rekstur sýningarinnar sem send verður stjórn. Skýrslan lögð fram og send í kjölfarið á svæðisráð.
3. Viljayfirlýsing um viðræður milli landeigenda og Vatnajökulsþjóðgarðs á suðursvæði
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við landeigendur. Upplýsti hann að viljayfirlýsing hafi verið undirrituð á milli þjóðgarðs og landeigenda Miðfells og Hoffells. Stefnt sé að skrifa undir viljayfirlýsingu við fleiri landeigendur.
Viljayfirlýsingin felur í sér að gengið er til viðræðna um gerð samnings þar sem hluti af landi í eigu umræddra landeigenda verði hluti af Vatnajökulsþjóðgarði með það að markmiði að stuðla að náttúruvernd, auknum möguleikum fólks til útvistar og til þess að efla byggð og atvinnulíf í nágrenni umrædds lands.
Í samningunum verður fjallað um þjónustu við gesti þjóðgarðsins svo sem landvörslu og uppbyggingu mannvirkja á viðkomandi svæði, s.s. göngustíga, göngubrýr, upplýsingaskilti og aðra upplýsingaþjónustu við ferðamenn og gesti þjóðgarðsins. Jafnframt verði rætt um verndarstig umrætts lands, stjórnun þess og áframhaldandi hefðbundna nýtingu á því landi sem verður innan Vatnajökulsþjóðgarðs.
Unnið verður samkvæmt viðræðuáætlun sem lögð verður fram í upphafi viðræðna.
4. Aðstaða fyrir landverði
Regína sagði frá að 12 starfsmenn hefðu verið í Skaftafelli þegar mest var. Sex herbergi eru fyrir landverði í Skaftafelli en tveir starfsmenn búa í Öræfum. Sagði Regína að húsnæðismál hefðu verið einu vandræðin sem komið höfðu upp í tengslum við starfsmenn í sumar.
Regína taldi að góð aðstaða og húsnæði fyrir landverði væri forsenda þess að fá gott starfsfólk til starfa.
Í kjölfarið voru ýmsar hugmyndir ræddar um úrbætur í húsnæðismálum. Rætt um endurbætur á Sandaseli, Bölta og hugsanlega lausn í samvinnu þjóðgarðs og ferðaþjónustuaðila í Öræfum sem glíma við svipað verkefni.
Regínu falið að taka saman hugmyndir um úrbætur og leggja fyrir svæðisráðið.
5. Uppbygging á Heinabergssvæði (Göngubrýr, vegslóðar, merkingar, gönguleiðir, landvarsla)
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við ferðaþjónustubændur, landeigendur, starfsfólk þjóðgarðs og ráðgjafa um skipulag og uppbyggingu á svæðinu. Taka þarf afstöðu til aðgangs að svæðinu, staðsetningu landvörslustöðvar, staðsetningu upplýsingastöðvar og staðsetningu göngubrúa.
Sigurlaug lagði áherslu á að í skýrslu ráðgjafarnefndar væri talað upp upplýsingamiðstöð á Skálafelli og landvörslustöð á Heinabergssvæði. Benti hún á að þessar áherslur hefðu verið kynntar fyrir ráðherra þegar hún heimsótti svæðisráðið í febrúar. Þá benti hún á að Jökulfell á Mýrum væri á kortum innan marka þjóðgarðs en ekki hafi verið rætt við landeigendur um þau mörk.
Háskólasetrinu og starfsfólki þjóðgarðsins falið að gera tillögu um þau atriði sem rædd voru á fundinum. Lögð áhersla á að vinna við stefnu um uppbyggingu á Heinabergssvæðinu verði lokið um áramót.
Hjalti lagði til að slóðin á mörkum Flateyjar og Sævarhóla verði sléttuð og koma þannig í veg fyrir utanvegaakstur. Einnig að laga slóðann inn í Heinabergsdal. Svæðisráðið samþykkir það fyrir sitt leyti en bendir á að með því sé ekki verið að taka afstöðu til framtíðaraðkomu leiðar inn á svæðið.
6. Starfslýsingar og skipurit
Lögð fram drög dags. 28. ágúst 2008. Svæðisráð lýsir yfir ánægju með að þessi drög séu komin fram. Formanni falið að koma athugasemdum á framfæri við stjórn þjóðgarðsins.
7. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 12.00.


