Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur

11. fundur

  

Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis miðvikudaginn, 14. janúar 2009 í Ráðhúsi á Höfn kl. 16:00.

 

Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson.  Skúli Skúlason var í síma. Einnig: Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður, Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólaseturs og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, starfsmaður Háskólasetur. 

 

Gengið var til dagskrár:

1.         Uppgjör á rekstrarárinu 2008

Lögð fram rekstrarniðurstaða fyrir suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins.  Útgjöld eru í samræmi við áætlun en sértekjur eru alls 25 m.kr. en gert var ráð fyrir 33 m.kr.  Regína upplýsti að hún væri að fara yfir rekstrartölur og muni fara yfir þær með framkvæmdastjóra innan tíðar. 

Lagt fram gróft yfirlit af tekjumyndun í Skaftafelli af tjaldstæði, vörusölu og öðrum þáttum.  Regína upplýsti að engin sala hafi átt sér stað fram til 18. júní vegna endurbóta á Skaftafellsstofu.  Svæðisráðið óskar eftir endalegu uppgjöri þegar það liggur fyrir og úttekt á tekjumyndum í þjóðgarðinum 2008.  Skúli spurði um fjölda gistinátta og upplýsti Regína að þær hafi verið yfir 20.000.

Svæðisráðið leggur áherslu á að tekjumyndum í Skaftafelli verði nýtt til að efla enn frekar starfsemi þar en ekki á öðrum stöðum þjóðgarðsins, þ.m.t. önnur svæði suðursvæðis.  Mikilvægt sé að fjárveitingar til einstakra svæða taki mið af umfangi starfsemi og þjónustu á hverjum stað en ekki sértekjum.

 

2.         Erindi Íslenskra fjallaleiðsögumanna og deiliskipulag fyrir Skaftafell

Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við forsvarsmenn Íslenskra fjallaleiðsögumana og umræðum í yfirstjórn.  Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs er sammála því að deiliskipulagsuppdrætti fyrir Skaftafell sem Ulla Pedersen hefur unnið, verði breytt m.t.t. til óska Íslenskra fjallaleiðsögumanna. Þá hvetur svæðisráð yfirstjórn til að ganga nú þegar til viðræðna við Íslenska fjallaleiðsögumenn um óskir þeirra.  Starfsemi þeirra í Skaftafelli fellur vel að markmiðum Vatnajökulsþjóðgarðs um að efla atvinnulíf í tengslum við stofnun garðsins og einnig að markmiðum um fræðslu um íslenska náttúru og náttúruvernd.

 

3.         Starfslýsingar       

Svæðisráð leggur áherslu á sjálfstæði þjóðgarðsvarða í störfum sínum og að þeir vinni sem framkvæmdastjórar viðkomandi svæðis.  Mikilvægt er að þjóðgarðsverðir hafi aðgang að öllum gögnum er varða þeirra rekstrarsvæði, m.a. bókhaldsgögn.  Svæðisráð leggur til að í starfslýsingu þjóðgarðsvarða verði bætt undir liðnum þjónusta:

·         Umsjón með gerð bæklinga og fræðsluefnis á viðkomandi rekstrarsvæði.

Einnig lagt til að undir liðnum verklegar framkvæmdir verði bætt við:

·         Umsjón með viðhaldsverkefnum og minniháttar nýframkvæmdum.

 

4.         Heinabergssvæðið

Sigurlaug gerði grein fyrir fyrstu niðurstöðum stýrihóps um skipulag Heinabergssvæðisins.  Lagt fram skjal dags. 14. janúar 2009 um málið.  Helstu niðurstöður eru að aðgengi ætti að vera bæði að austan- og vestanverðu þannig að hægt væri að keyra hring.  Einnig að aðgengi að Heinabergslóni, Heinabergsdal, gamla Heinabergsbænum, Miðfelli og á Heinar væri gott.  Þorvarður upplýsti að breskur jarðfræðingur væri að útbúa jarðfræðikort af svæðinu.   Ræddu Sigurlaug og Þorvarður um hversu svæðið frá Miðfelli að Heinabergi væri auðugt út frá margvíslegu sjónarhorni með fjölbreyttum bergtegundum, sögu um búsetu og mótunarafl jökla og jökulvatna.  Einnig farið yfir áningarstaði, upplýsingar og fræðslu á svæðinu og landvörslu og aðra þjónustu.

Óskað eftir kostnaðarmati á þessari uppbyggingu.  Þjóðgarðsverði falið að vinna drög að kostnaðaráætlun.

 

5.         Verndaráætlun

Þorvarður gerði grein fyrir vinnu að verndaráætlun.  Upplýsti Þorvarður að ekki enn hafi fengist aðgangur að loftmyndagrunni sem tefði fyrir vinnunni.  Starfsmenn Háskólaseturs hafa unnið með starfsmönnum Náttúrufræðistofnunar og fengið aðgang að gögnum frá þeim.  Þar hafi komið í ljós hversu mikill skortur er á grunnrannsóknum á íslenskri náttúru.  Gerði grein fyrir vinnu við að kortleggja jarðfræði, gróðurfar og vatnafar svæðisins.  Sagði Þorvarður frá samráði við aðra ráðgjafa sem vinna að verndaráætlun.  Ákveðið hefur verið að setja á vinnufund á Kirkjubæjarklaustri í upphafi febrúar.

Sigurlaug lagði mikla áherslu á að sami kortagrunnur yrði keyptur af sveitarfélaginu og þjóðgarðinum.  Einnig að tryggja að þekking á kortavinnslu sem nú væri innan Háskólasetursins yrði áfram í héraðinu.

 

6.         Aðalskipulag

Lagt fram tölvubréf frá framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem gerð er grein fyrir vinnu starfshóps á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar að endurskoðun aðalskipulags fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð.  Í bréfinu er gert ráð fyrir því að þjóðgarðurinn verði nýr kafli í endurskoðuðu aðalskipulagi.  Þá óskar starfshópurinn sérstaklega eftir að ráðið fjalli um hlutverk þjóðgarðsins og tækifæri sem hann hefur í för með sér og hvaða neikvæðu áhrif hann kann að hafa.  Hlutverk gestastofu í Stekkanesi verði einnig til skoðunar.  Einnig getur ráðið fjallað um þau mál sem snerta málefnasvið ráðsins og nefndin telur mikilvægt að taka til umræðu.  Óskað er eftir því að tillögur og ábendingar berist til starfshópsins eigi síðar en 20. mars 2009. 

Frestað til næsta fundar.

 

7.                  Önnur mál.

·         Hjalti gerði grein fyrir að unnin hafi verið drög að handbók um merkingar og skilti fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.  Svæðisráð leggur ríka áherslu á samráð verði haft um gerð slíkrar handbókar við þjóðgarðsverði og svæðisráð.  Ennfremur bendir svæðisráð á að fyrirtæki á svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs eru starfandi sem sérhæfa sig í hönnun fræðslu- og upplýsingaskilta og skipulagi ferðamannastaða sem rétt væri að beina viðskiptum til.  Gæta verði að því að skilti falli að landslagi á hverjum stað.

·         Guðrún spurði um viðræður um samstarf Jöklasýningar og Vatnajökulsþjóðgarðs.  Svæðisráð telur mikilvægt að nýta fjármuni hins opinbera sem best og telur að samstarf þessara aðila sé rétt skref í þá átt.

·         Regína sagði frá samtali sínu við Einar Sigurðsson í Hofsnesi um hugmynd að koma upp klifurleið í Skaftafelli, á leiðinni inn að Skaftafellsjökli.  Hugmyndin er að nota þetta í kennslu fyrir skólahópa sem heimsækja þjóðgarðinn.  Svæðisráð tekur jákvætt í hugmyndina en óskar eftir nánari útfærslu.

 

Fundi slitið 18.05


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica