Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
7. fundur
Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis miðvikudaginn, 23. apríl 2008 á Höfn í Hornafirði kl. 10:00.
Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ingimundardóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Regína Hreinsdóttir þjóðgarðsvörður og Helga Davids sérfræðingur. Hrafnhildur Hannesdóttir og Skúli Skúlason voru í síma.
1. Verndaráætlun
Lögð fram drög að verksamningi ásamt verk- og kostnaðaráætlun. Svæðisráð samþykkir framlögð drög með áorðnum breytingum.
2. Reglugerð
Lögð fram drög að reglugerð dags. 17. apríl 2008. Svæðisráðið fjallaði ítarlega um drögin og setti fram athugasemdir og ábendingar um efni reglugerðar. Samþykkt að senda athugasemdir til yfirstjórnar en þess jafnframt óskað að svæðisráðið fái reglugerðina aftur til umfjöllunar áður en reglugerðin verði samþykkt endanlega. Við síðari umræðu í svæðisráði er mikilvægt að fyrirliggi allir viðaukar, kort og aðrar upplýsingar sem kunna að skipta máli þegar reglugerðin verður aftur tekin til umfjöllunar.
3. Önnur mál
Sigurlaug spurði um vinnu að kortagrunni fyrir allt svæðið. Hjalti upplýsti um að stefnt væri að ákvörðun um þau mál á næstu vikum.
Fundi slitið 15.00.


