Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur

Minnisblað eftir fund

svæðisráðs suðursvæðis og starfsmanna þjóðgarðsins með umhverfisráðherra, Þórunni Sveinbjarnardóttur og formanni yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, Önnu Kristínu Ólafsdóttur miðvikudaginn, 13. febrúar 2008 í Ráðhúsinu á Höfn kl. 15:30.

 Mætt voru:  Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Skúli Skúlason sem var í síma og Sigurlaug Gissurardóttir,

Einnig starfsmenn þjóðgarðsins:  Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, Hafdís Roysdóttir, Kári Kristjánsson og Helga Davids. 

  1.      Samningar við landeigendur.

Mikilvægt er að taka samningana föstum tökum.  Umræðan um að einkaaðilar leggi land inn í þjóðgarð gegn samningi við þjóðgarðinn er gömul.  Fyrir nokkrum misserum var fyrst hafist handa að ræða við landeigendur en lítið hefur þokast.  Mikilvægt er að ráðuneytið taki þessi mál föstum tökum núna í aðdraganda stofnunar. 

 AKÓ sagði að drög að samningum væri að fara til landeigenda á þessum dögum.  Sagði hún að margt hefði áhrif á samningaviðræðurnar, t.a.m. þjóðlendumál.

 2.      Reglugerð

Vinna að því að setja reglugerð fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er hafinn.  Mikilvægt er að fyllsta samráð verði haft við hagsmunaaðila og svæðisráð.  Þessu ferli þarf að haga þannig að sem flestir í samfélaginu hafi tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.  Með þeim hætti er líklegra að skapist jákvætt viðhorf gagnvart þjóðgarðinum en ef vinnan verði of hröð og ekki eins opin.

 AKÓ upplýsti að vinna að reglugerð hafi verið í gangi síðan í október. Fengnir voru sérfræðingar til vinnunnar, bæði lögfræðingur og grasafræðingur.  Nú eru drögin í yfirlestri hjá lögfræðingi ráðuneytisins og sérfræðingi UST.

Kom fram í máli fundarmanna að hagsmunir muni skarast í þessari vinnu, t.d. á milli nýtingar og verndunar.  Fjölmargir hópar hafi hagsmuni að gæta eins og útivistarfólk, landbúnaður og náttúruverndarfólk. 

AKÓ upplýsti um að gætt verði fyllsta samráðs og frekar verði stofnun frestað um nokkrar vikur en farið af stað með ófullgerða reglugerð.

KK lagði áherslu á að verndun mosa og gjalls verði gætt til hins ítrasta.

Þórunn tók undir orð AKÓ um samráð og málshraða.

HD lagði áherslu á samráð við bændur

AKÓ lagði áherslu á IUCN reglur og að þær yrðu leiðarljós við vinnu að verndaráætlun.  Þær mörkuðu ramma utan um þessa vinnu og ekki væri bæði sleppt og haldið.  Ekki væri hægt að setja á þjóðgarð án þess að banna og vernda ýmislegt.

  3.      Verndaráætlanir

Verndaráætlun er stærsta og mikilvægasta verkefni garðsins næstu tvö árin.  Suðursvæði er stórt og víðfeðmt og þar skarast margir hagsmunir enda þjóðgarðurinn nokkurn veginn í byggð.  Því er mikilvægt að fyllsta samráðs sé gætt og vandað mjög til verka. Það er skoðun svæðisráðs Suðursvæðis að rök séu fyrir því að verndaráætlun fyrir Suðursvæði gæti orðið viðameira og flóknara verk enn á öðrum svæðum vegna þessara ástæðna.  Einnig er aðgengi mjög mikið að þjóðgarðinum sem kallar á heildstæða skipulagningu áningarstaða við jökulröndina og aðgengis að jöklum á suðursvæði.

 AKÓ sagði að þrátt fyrir viðamikið verkefni væri margt til staðar til þess að takast á við þetta og vísaði í starfsmenn Skaftafellsþjóðgarðs.

RH ræddi um að hafa þyrfti samráð við landeigendur vegna vega að skriðjöklum sem ekki væru innan þjóðgarðs en koma kannski fram í verndaráætluninni.

HÞV ræddi um hvort ekki væri nauðsynlegt að yfirstjórn afgreiði allar fundargerðir svæðisráða.

HD benti á að hjá UST væri til fyrirmynd að verndaráætlunum sem hún hefur unnið eftir.

KK spurði um hvort fleiri starfsmenn yfirstjórnar verði ráðinn.

 4.      Öryggismál og upplýsinga- og leiðbeiningarskilti.

Mikilvægt er að gera viðbragðsáætlun fyrir Vatnajökul og nærsvæði hans líkt og gert hefur verið fyrir Langjökul.  Einnig er mikilvægt að samhæfa vinnu þjóðgarðsyfirvalda, almannavarnanefnda, lögreglu og björgunarsveita um þessi mál.  Síðustu ár hafa leitt í ljós þá hættu sem steðjað getur að ferðamönnum í nágrenni við Vatnajökul og á ferð um jökulinn.  Mikilvægt er að upplýsa ferðamenn um þá hættu og hvernig skuli búa sig út í ferðir.  Svæðisráðs þjóðgarðsins leggur til að þegar verði hafist handa að merkja þjóðgarðsvegi og loka öðrum slóðum að jöklum sveitarfélagsins.  Þegar liggur fyrir hugmynd um slíka vinnu sem svæðisráðs og bæjarstjórn eru tilbúinn að taka þátt í að útfæra nánar í samvinnu yfirstjórnar og vegagerðar.

 KK ræddi um mikilvægi forvarna og öryggismála.

ÞS lagði áherslu á að þjóðgarðurinn myndi nota það kerfi sem væri til en myndi ekki bæta ofan á það.  Hún lagði áherslu á að hlutverk þjóðgarðsins væri að upplýsa um hættur.

AKÓ sagði að þetta mál væri framarlega á dagskrá yfirstjórnar.

HÞV lagði áherslu á að fyrir liggi hugmynd að þjóðgarðavegum og þar væri hægt að setja upp skilti með fræðslu um hættur í þjóðgarðinum.

SS sagði að fjarskipti skipti verulegu máli í þessu samhengi.

SG lagði til að búinn verði til upplýsingapakki sem legið gæti hjá öllum ferðaþjónustuaðilum við jaðar þjóðgarðsins.

KK velti fyrir sér skaðabótaskyldu ef einhver slasast innan garðsins.

HR sagði að margir ferðamenn treystu á GSM síma en víða væri ekki samband innan þjóðgarðsmarka.

BIJ ræddi um áhrifaríkast væri að kaupa tryggingar eða að borga björgunina.  Sagði hann að slíkt tíðkaðist út í heimi.

ÞS sagði að þannig væri einnig hægt að stýra umferð.

HR ræddi um gestabók utan dyra sem tíðkast sum staðar erlendis. 

HD taldi mikilvægt að flokka gönguleiðir eftir styrkleika.  Fólk væri að velja gönguleiðir sem það ráði ekki við.

 5.      Þjónustunet og upplýsinganet

Vegna sérstöðu suðursvæðis í nálægð við byggð er mikilvægt að þróaðir verði þjónustusamningar við landeigendur. Fordæmi er fyrir því en Skaftafellsþjóðgarður gerði nokkra samninga fyrir tveim árum og var reynsla af þeim góð.  Þess vegna telur svæðisráðið ekki endilega þörf á að reisa margar upplýsingamiðstöðvar enda eru fjölmargir ferðaþjónustuaðilar og landeigendur fullfærir um að veita upplýsingar.  Það er þó skoðun svæðisráðs að landvörslustöðvar þurfa að reisa í Lóni og á Heinabergssvæðinu.  Þá er mikilvægt að ná samningum við Þórbergssetur um þjónustu við garðinn.

 SG rifjaði upp forsögu þess að samningar voru gerðir.  Þá ræddi hún um starf þessa fólks.

AKÓ sagðist taka undir þessa hugmynd.  Sagði hún að stjórnin hyggist reyna að nýta það sem fyrir er.

6.      Jöklasýning

Það er eindregin skoðun svæðisráðs suðursvæðis að Jöklasýning og þjóðgarður eigi að taka upp náið samstarf.  Svæðisráðið telur að gera eigi samning við stjórn Jöklasýningar um þjónustu við Vatnajökulsþjóðgarð á meðan Þjónustumiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs er ekki enn risin í nágrenni Hafnar.  Í samningum ætti einnig að felast að Jöklasýning flytjist í þjónustumiðstöð þegar þar að kemur.

 AKÓ sagði að meginsjónarmið væri að skýr stefna ætti að vera í gestastofum.  Hún sagði að þar gæti ekki verið allt milli himins og jarðar.

 7.      Gönguleiðakort

Svæðisráð leggur áherslu á að gönguleiðakort sem unnin hafa verið af svæðinu myndi grunn að áframhaldandi útgáfu gönguleiðakorta af þjóðgarðinum og nærliggjandi svæðum.  Auðveldlega má bæta inn reiðleiðum og hjólaleiðum sem mikilvægt er að skipuleggja samfara verndaráætlun þjóðgarðs.

 ÞS ræddi um hvort gönguleiðir væru merktar eftir styrkleika.

HD sagði að það vantaði að gera það.

SG lagði áherslu á að unnar verði hjólaleiðir.

 8.      Náttúruskóli og fræðslutengd ferðaþjónusta.

Áfram verði unnið að þróun náttúruskóla í Skaftafelli og víðar og fyrir fleiri aldurhópa.  Þá er mikilvægt að svæðisráð og yfirstjórn styðji sem best við hugmyndir hjá Háskolasetri Hornafjarðar um uppbyggingu fræðslutengdrar ferðaþjónustu samhliða stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.

 HR ræddi um næstu skref í starfi náttúruskólans.  Sagði að von væri á börnum í Hafnarskóla og einnig tilvonandi landvörðum.

AKÓ ræddi um að þannig verkefni gætu fengið fjármögnun frá hollvinum garðsins þegar það kemst á kopp.

 9. Landvarðarnám

Í samstarfi við Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu verði hafin undirbúningur að landvarðarnámi, þar sem nemendur geti jafnhliða námi í skólanum tekið landvarðaráfanga.

 

SG greindi frá því að þessi hugmynd hafi kviknað í árdaga umræðunnar á Hornafirði.  Einnig fyrir eldra fólk sem hefur mikla staðbundna þekkingu en skortir tilskilin leyfi til að starfa sem landverðir.

KK benti á að námskrá fyrir landvarðarnám er til á Hólum og Hvanneyri.

 

 

Fundi slitið 17.00

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica