Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
4. fundur
Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis mánudaginn, 4. febrúar 2008 í Ráðhúsinu á Höfn kl. 9:30.
Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ingimundardóttir, Skúli Skúlason, Sigurlaug Gissurardóttir, Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli og Þórður Ólafsson framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs. Hrafnhildur Hannesdóttir var í síma.
1. Fundur yfirstjórnar
Þórður fór yfir drög að fundargerð frá fundi yfirstjórnar þann 21. janúar 2008. Rætt var um vinnu að reglugerð og leggur Svæðisráðið áherslu á að reglugerð verði kynnt rækilega fyrir hagsmunaaðilum, ekki síst landeigendum. Umræða skapaðist um arkitektasamkeppni, bæði kostnað og fyrirkomulag.
2. Rekstraráætlun 2008.
Þórður fór yfir rekstraráætlun fyrir þjóðgarðinn í heild sinni en einnig kynnti hann sérstaka rekstraráætlun fyrir suðursvæði þjóðgarðsins. Í fjárlögum fyrir árið 2008 er gert ráð fyrir 119,9 miljónum í rekstur garðsins en sértekjur áætlaðar 47 m.kr. þannig að 72,9 m.kr. eru greiddar úr ríkissjóði. Áætlaðar sértekjur í Skaftafelli eru 35 m.kr. Rekstrarafgangur ársins 2007 er 45 m.kr. og til ráðstöfunar er því alls 165,9 m.kr.
Í lögum segir að svæðisráð eigi að gera tillögu að rekstráráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði innan þess fjárhagsramma sem því er ætlaður hverju sinni samkvæmt ákvörðun stjórnar. Í áætlun ársins 2008 fyrir Suðursvæði er gert ráð fyrir 1 þjóðgarðsverði, 2 sérfræðingum, 5 landvörðum (þ.a. einum nýjum), 2 almennum starfsmönnum s.s. í þrifum og 5 í verslunarstörfum. Einnig er gert ráð fyrir sjálfboðaliðastarfi skv. samningi við Umhverfisstofnun. Þá fór Þórður yfir einstaka liði í rekstri þjóðgarðsins fyrir árið 2008. Gert er ráð fyrir að launagreiðslur á Suðursvæði verði alls 28,9 m.kr. Önnur gjöld eru áætluð 25,2 m.kr., viðhaldskostnaður áætlaður 1,5 m.kr. Rekstrarkostnaður alls er áætlaður 55,6 m.kr. og með sértekjum upp á 35 m.kr. verða gjöld umfram sértekjur alls 20,6 m.kr.
Rætt um aðstöðu fyrir húsbíla í Skaftafelli. Einnig var rætt um stoðþjónustu frá Umhverfisstofnun, t.d. kostnað vegna reikningshalds, starfsmannamála o.fl.
Svæðisráðið leggur til að rekstur í Skaftafelli verði skipt í tvennt, þ.e. í verslunarrekstur og rekstur þjóðgarðsins. Svæðisráðið samþykkir rekstraráætlun fyrir sitt leyti.
3. Framkvæmdaáætlun 2008
Þórður gerði grein fyrir drögum að framkvæmdaáætlun sem gerir ráð fyrir 160,5 m.kr. í stofnkostnað á árinu 2008. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir 25 m.kr. í áframhaldinu viðhaldsvinnu í Skaftafelli. Kom fram að gert er ráð fyrir 20 m.kr. í nýja móttöku, flytja sýningu, salerni og veitingaaðstöðu. Þá er gert ráð fyrir 2 m.kr. í landvarðarhús og 3 m.kr. í tjaldstæði. Þá er einnig gert ráð fyrir 20 m.kr. í landvörslustöðvar, 25 m.kr. í verndaráætlanir og 16 m.kr. í upplýsinga- og leiðbeiningaskilti en þeim hefur ekki verið dreift á einstök svæði.
Rætt var um fyrirhugaðrar breytingar á húsnæði í Skaftafelli. Svæðisráðið leggur áherslu á að breytingarnar verði vel undirbúnar og jafnvel ekki hafnar fyrr en í september 2008. Svæðisráðið mun gera tillögu að uppsetningu upplýsinga- og leiðbeiningaskilta á Suðursvæði á næsta fundi ráðsins og hefur stefnumörkun til hliðsjónar. Einnig er óskað eftir hugmyndum starfsmanna um þessi mál.
Svæðisráðið samþykkir rekstraráætlun fyrir sitt leyti.
Þórður Ólafsson vék af fundi kl. 11.30.
Fundi frestað frá kl. 11.30-13.00
4. Stefnumótun / verndaráætlun
Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólasetursins á Hornafirði, mætti á fundinn undir þessum lið, kl. 13.00. Leitað hafði verið til hans í tengslum við vinnu að verndaráætlun og greindi hann frá því hvernig hann sér fyrir sér vinnuna. Í máli Þorvarðar kom fram að verndaráætlun væri hryggjarstykki fyrir þjóðgarðinn þar sem garðinum er mörkuð stefna og hvernig stjórn garðsins hyggst ná markmiðum sínum. Lagði Þorvarður áherslu á gott samstarf ráðgjafa við þjóðgarðsvörð og starfsmenn. Þorvarður ræddi um að safna upplýsingum og gögnum um verndun, nýtingu, ferðaþjónustu, þekkingu heimamanna o.fl.. Í framhaldinu væri hægt að meta verndarstig hvers svæðis. Í þessari vinnu kæmu upp mörg álitamál og hagsmunir skarast en Þorvarður taldi að mikil tækifæri væru fólgin í vinnu við verndaráætlun, m.a. með að sætta sjónarmið á milli nýtingar og verndunar. Þá ræddi Þorvarður um samráðsferli í þessari vinnu og tengsl Svæðisráðs við nærsamfélagið. Lagði hann áherslu á að fólkið á nærsvæðinu yrði stolt af þjóðgarðinum.
Regína þakkaði Þorvarði fyrir góða yfirferð og taldi samstarf starfsmanna og ráðgjafa lykilatriði í að vel tækist til.
Sigurlaug ræddi um að mikilvægt væri að þjóðgarðurinn yrði viðbót við samfélagið en tæki ekki yfir ýmsa starfsemi í sveitunum, s.s. hefðbundinn búskap og ferðaþjónustu sem byggir rekstur sinn á nýtingu þeirra svæða sem horft er til í sambandi við þjóðgarðinn.
Þorvarður vék af fundi kl. 13.50.
Umræður sköpuðust um vinnu að verndaráætlun og hvernig standa beri að henni. Svæðisráð leggur áherslu á að unnin verði ítarleg verk- og kostnaðaráætlun fyrir verkið. Svæðisráðið felur formanni að vinna verk- og kostnaðaráætlun í samvinnu við þjóðgarðsvörð og forstöðumann Háskólasetursins. Í framhaldi verði ákvörðun tekin um fyrirkomulag vinnu að verndaráætlun.
5. Fundir vorið 2008
Hjalti lagði fram tillögu að fundaráætlun fyrir vorið 2008.
|
Fundir vorið 2008 í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs |
|||||
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
1. fundur |
2. fundur |
3. fundur |
4. fundur |
5. fundur |
|
Dags. |
4.feb |
3.mar |
7.apr |
5.maí |
2.jún |
|
Kl. |
10.00 |
10.00 |
10.00 |
10.00 |
10.00 |
|
Staður |
Ráðhús |
Þórbergssetur? |
Brunnhóll? |
Höfn |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Fastir liðir: |
|
|
|
|
|
|
Fundargerðir |
Fundarg. yfirst. |
Fundarg. yfirstj. |
Fundarg. yfirstj. |
Fundarg. yfirstj. |
|
|
Verndaráætlun |
Starfsstöðvar |
Starfsmannahald |
Rekstur |
Verndaráætlun |
|
|
Samráð |
|
Útivistarfólk |
Ferðaþjónustan |
Búnaðarfélagið |
Veiðimenn |
|
Landeigendur |
|
Breiðabólstaðarbæir |
Skálafell |
Hoffell |
|
|
|
Reglugerð |
Reglugerð |
Reglugerð |
|
|
|
|
Rekstraráætlun |
|
Öryggismál |
|
|
|
|
Framkvæmdaráætlun |
|
|
|
|
6. Önnur mál.
· Hjalti ræddi um stefnumörkun um uppbyggingu þjónustunets, uppsetningu upplýsinga- og þjónustuskilta sem bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkti í september 2006. Svæðisráð telur að sú stefnumörkun geti í meginatriðum staðist. Lögð áhersla á að uppbygging eigi sér fyrst stað í Lóni og á Heinabergssvæðinu verði reist landvörslustöð.
Fundi slitið 14.30


