Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur

3. fundur

Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis mánudaginn, 26. nóvember 2007 í Gestastofunni í Skaftafell kl. 10:30.

Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Skúli Skúlason, Hrafnhildur Hannesdóttir og Sigurlaug Gissurardóttir. Guðrún Ingimundardóttir boðaði forföll.

 Einnig voru á fundinum: Hafdís Roysdóttir, Regína Hreinsdóttir, Helga Davids og Kári Kristjánsson starfsmenn þjóðgarðsins.

 1.                  Kynning

Hjalti fór yfir forsögu þjóðgarðsins, ræddi um þau svæði sem um ræðir við stofnun hans, markmið og ávinning af stofnun garðsins, fjármögnun garðsins, vinnu að gerð verndaráætlunar og rekstur, stjórnun og starfsmannamál.

 

Meðan á kynningu stóð og í kjölfar hennar skapaðist góð umræða.  Til dæmis var rætt um áhrif heimamanna en jafnframt mikilvægi þess að önnur sjónarmið séu til staðar við mótun garðsins.  Einnig skapaðist umræða um hollvinasamtök.

 

Einnig var rætt um Koli þjóðgarðinn í Finnandi og tengsl hans við nærsamfélagið.  Í því sambandi var rætt um að reglur er giltu um atvinnustarfsemi og nýtingu innan hins nýja Vatnajökulsþjóðgarðs þyrfti að taka mið af hagsmunum atvinnulífs og byggðanna.  Mikilvægt væri að tryggja hagsmuni hefðbundinna atvinnugreina og nytja, t.d. veiða, landbúnaðar og berjatínslu.

 

Þá var rætt um aðgengi fyrir alla og hvernig best væri að standa að uppbyggingu í þeim anda í hinum nýja þjóðgarði. Umræða snerist ekki síst um að horfa á einstök svæði með tilliti til aðgengi fyrir alla.

 2.                  Framkvæmdir og rekstur í Skaftafelli

Hafdís Roysdóttir kynnti stöðu við viðhald og endurbætur í Skaftafelli, t.d. á þjónustumiðstöð, landvarðahúsi og aðalsnyrtingu.  Hún gerði grein fyrir hugmyndum um breytingar á þjónustumiðstöð, sem miða að breytingum á anddyri og gestastofu.  Einnig fór Hafdís yfir aðstöðusköpun á tjaldsvæði, t.d. nýtt salernishús og aðgang að rafmagni fyrir gesti tjaldsvæðis. Þá sagði Hafdís frá uppbyggingu göngustíga og brúa á síðasta ári.  Kom fram í máli Hafdísar að sjálfboðaliðar leggi drjúgan skerf til uppbyggingar og viðhalds í Skaftafelli. Að endingu kynnti Hafdís náttúrskólann sem hefur aðstöðu í Sandaseli.

 Umræða í kjölfarið snerist um áframhaldandi uppbyggingu í Skaftafelli.  Mikilvægt er að bæta aðstöðu fyrir starfsmenn, bæði skrifstofuaðstöðu og kaffistofu.   Hugmyndir hafa til dæmis verið um að færa skrifstofuaðstöðu í landvarðarhúsið.  Þá skapast nægjanlegt næði til vinnu og viðtala.  Þá var rætt um að gestastofan og veitingaaðstaðan skipti um rými í þjóðgarðsmiðstöðinni.  Kom fram í máli fulltrúa í svæðisráðinu að mikilvægt væri að endurbætur á húsnæði og gestastofu í Skaftafelli væri skoðað í samhengi við aðra uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs.  Til dæmis væri mikilvægt að samræma útlit í þjónustumiðstöð í Skaftafelli við önnur fyrirhuguð mannvirki í þjóðgarðinum.

 3.                  Verndaráætlun

Helga Davids kynnti vinnu að gerð verndaráætlunar fyrir Skaftafell.  Kom fram að vinna að áætluninni hafi staðið yfir síðustu 2 ár og sé skipt í þrennt, þ.e fyrir Lakagíga, Skaftafell og jökulhettuna.  Stefnt er að því að ljúka fyrsta hluta hennar um áramót.  Áætlunin er unnin samkvæmt stöðlum sem UST hefur þróað eftir fyrirmynd frá Ástralíu.   Markmiðið með gerð áætlunarinnar er að móta stefnu um verndun, skipulag landnotkunar og rekstur þjóðgarðsins.  Helga lagði áherslu á að endurskoða þyrfti áætlun reglulega.  Kom fram að grunnupplýsingar vantar fyrir Skaftafell, t.d. deiliskipulag, nothæf staðfræðikort, gróður- og vistgerðakort og upplýsingar um fugla og skordýr.  Kom fram hjá Helgu að áætlunin hafi verið unnin samhliða öðrum verkefnum og í komandi vinnu að gerð verndaráætlunar sé mikilvægt að taka frá tíma og fjármagn til verksins ásamt því að tryggja aðgengi að sérfræðingum.

 Svæðisráðið óskaði eftir að sjá drög að verndaráætlun fyrir svæðið.

 4.                  Samvinna svæðisráðs og starfsmanna

Rætt um að hafa póstlista starfsmanna og svæðisráðs þar sem upplýsingar geti flætt á milli.  Jafnframt ákveðið að þjóðgarðsvörður og starfsmenn hafi seturrétt og tillögurétt á fundum svæðisráðsins.  Jafnframt ákveðið að stefna að sameiginlegum fundi allra starfsmanna og ráðsins einu sinni ári og þá e.t.v. í tengslum við opið málþing um starfsemi og stefnu garðsins.

 Rætt um sjálfstæði þjóðgarðsvarða, vinnu við gerð fjárhagsáætlana o.fl.

 5.                  Önnur mál

·        Kári Kristjánsson sagði frá þarfagreiningu fyrir gestastofu á Kirkjubæjarklaustri og umræðu um staðsetningu stofunnar.   Þá sagði Kári frá sjálfboðaliðastarfi í þjóðgarðinum sem er mikilvægt vegna uppbyggingar og starfsemi hans.  Hann greindi frá hvernig unnið er að áætlunum um verkefni sem óskað er eftir sjálfboðaliðum í.  Til dæmis sýndi hann áætlun um uppbyggingu við Eldgjá.

·        Kári Kristjánsson sagði frá vinnu að forvarnar- og viðbragðsáætlun fyrir þjóðgarðinn.  Taldi mikilvægt að slíkt verði unnið með áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og forvarnir þannig að komið verði í veg fyrir slys.  Nú þegar liggur fyrir grunnur að slíkri áætlun fyrir Þjóðgarðinn í Skaftafelli en mikilvægt er að þekkja vel ferðavenjur á hverju svæði til að áætlunin nái markmiðum sínum. Slíka áætlun þarf að vinna í samvinnu þjóðgarðs, almannavarnarnefnda, björgunarsveita, sveitarfélags og lögreglu.

·        Kári Kristjánsson sagði frá fræðslufundum sem haldnir verða á vegum Kirkjubæjarstofu um landssvæði innan þjóðgarðsins.

·        Lagður fram listi frá Hafdísi Roysdóttir með spurningum til umhugsunar fyrir starfsmenn og svæðisráðs þjóðgarðsins.  Eftirfarandi var rætt:

1.            Rætt var um framtíð verslunar í Skaftafelli, hvað ætti að vera til sölu og hver ætti að reka hana. Umræða var um hvort stefna skuli að verslun með gæðavörur með áherslu á framleiðslu á nærsvæði.  Samþykkt að taka málefni verslunar í Skaftafelli til skoðunar árið 2008 með það að markmiði að móta stefnu í þeim málum fyrir sumarvertíðina 2009. 

2.            Einnig var rætt um skipulag gestastofu.  Ákveðið að taka umræðu um endurskipulagningu á Þjónustumiðstöð í Skaftafelli í heild sinni árið 2008.  Rætt um að skoða verði í samhengi aðstöðu fyrir starfsmenn, lager fyrir verslun og í hvaða rými gestastofa og verslun væru hluti af. 

3.            Rætt um framtíðarsýn fyrir garðinn.  Í umræðum kom fram að verndaráætlun fyrir Skaftafell liggi ekki enn fyrir en í þeirri áætlun sé stefnumótun fyrir þjóðgarðinn falinn.  Mikilvægt sé að klára vinnu fyrir Skaftafell og síðan í framhaldi önnur svæði þjóðgarðsins. 

4.            Rætt var um brunavarnir.  Lagt fram bréf frá Eldvarnareftirliti Austur-Skaftafellssýslu, dags. 15. nóvember 2007, um brunavarnir í þjóðgarðinum með tilliti til gróðurelda sem gætu komið upp.  Samþykkt að starfsmenn þjóðgarðsins geri fjárhagsáætlun og tillögur til úrbóta í samvinnu við eldvarnareftirlitið.

5.            Minningarskjöldur við Hafrafell.  Kom fram að núna væri hugmynd að setja hann upp við Hafrafell.  Kom fram að marka þurfi stefnu um minnisvarða í landi þjóðgarðsins og vísað í verndaráætlun fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul.

6.            Merkingar á stígum.  Kom fram að samræma þurfi merkingar innan þjóðgarðsins og endurnýja gömul skilti.  Starfsmenn lýstu því að merkingar væru ekki nægjanlega góðar og dæmi séu um villandi og ónógar merkingar.  Kom fram að óskað hafi verið eftir sjálfboðaliðum í þetta starf næsta sumar. 

7.            Sorpmál og tæming rotþróa.  Ákveðið að starfsmenn sveitarfélagsins og þjóðgarðsins móti tillögur um úrbætur um flokkun sorps og tæmingu rotþróa.

8.            Atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsmarka.  Spurt um samvinnu Íslenskra fjallaleiðsögumanna og starfsmanna þjóðgarðsins sl. sumar.  Kom fram að hún hafi verið góð og gagnleg fyrir báða aðila.  Kom fram að ekki enn hafi verið rukkað fyrir aðstöðu.  Í kjölfarið var rætt um samkeppnissjónarmið og stjórnsýslureglur.  Mikilvægt er að vinna reglur fyrir þjóðgarðinn sem hægt er að byggja á samstarf þjóðgarðs og einkafyrirtækja með starfsemi innan hans.

9.            Bæklingagerð.  Kom fram að fara þurfi yfir þýðingar og endurskoða bæklinga.

10.        Sjálfboðaliðastarf.  Kom fram að þau mál séu til skoðunar hjá yfirstjórn.  Í umræðum kom fram sjónarmið að sjálfboðaliðastarf innan Vatnajökulsþjóðgarðs eigi að vera undir forræði garðsins.

11.        Rætt um húsnæði þjóðgarðsvarðar.

12.        Gönguferðir með leiðsögn.  Kom fram að lögboðið hlutverk þjóðgarðsins sé að veita fræðslu.  Umræður sköpuðust um hvort réttlætanlegt væri að taka gjald fyrir slíka þjónustu.

13.        Náttúruskóli í Skaftafelli.  Tekið er á móti skólahópum vor og haust.  Rætt um framtíð skólans.

·        Regína spurði um jarðhitaleit í Skaftafelli.  Kom fram að fjármagn hefur verið tekið frá og rannsóknir benda til þess að heitt vatn geti hugsanlega fundist í grennd.

·        Sigurlaug lagði til að leitað yrði til FAS um að setja upp landvarðarnám.  Björn Ingi hvatti til þess að leitað yrði til ungs fólks í heimabyggð um að vinna við landvörslu í Skaftafelli.  Þannig myndi skapast áhugi meðal þeirra um þjóðgarðinn.

 

 

Fundi slitið 16.50.

 


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica