Svæðisráð Vatnajökuls- þjóðgarðs

Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur

1. fundur

Fundur var haldinn í svæðisráði suðursvæðis mánudaginn 1. október 2007 í ráðhúsi Hornafjaraðar kl. 13:00.

Mætt voru: Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Skúli Skúlason, Guðrún Ingimundarson.  Hrafnhildur Hannesdóttir var í síma.  Sigurlaug Gissurardóttir boðaði forföll.

1. Fundur yfirstjórnar 24. september 2007

Hjalti fór yfir fyrsta fund stjórnar þjóðgarðsins.  Umræður sköpuðust um aðkomu svæðisráða að reglugerð og taldi svæðisráðið mikilvægt að fá drög að reglugerð til umfjöllunar á meðan á vinnu stendur.  Einnig var spurt um stöðu í samningum við landeigendur og hversu jákvæðir þeir eru gagnvart stofnun þjóðgarðsins.

Hjalti gerði grein fyrir að yfirstjórn myndi funda einu sinni í mánuði til að byrja með og að stefnan yrði að kalla svæðisráð saman strax í kjölfar hvers fundar yfirstjórnar.

Hjalti gerði grein fyrir fundi um stofnun Hollvinasamtaka fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.  Á þann fund mætti George Ivey sem hefur unnið með Friends of Smoky Mountains.  Á fundinum var samþykkt að reyna að virkja fleiri til þátttöku í þessum undirbúningi.   Markmiðið er að stofna samtökin á sama tíma og Vatnajökulsþjóðgarður verður stofnaðir.

Svæðisráðið leggur til að yfirstjórn þjóðgarðsins í samvinnu við þann hóp sem undirbúið hefur stofnun Hollvinasamtaka haldi ráðstefnu um Vatnajökulsþjóðgarð í Reykjavík í tengslum við stofnun þjóðgarðsins.  Markmiðið með slíkri ráðstefnu ætti að vera að kynna ávinning af stofnun þjóðgarðsins, áform um uppbyggingu, hugmynd að hollvinasamtökum og efla umræðu um þjóðgarðinn.

 

2. Ráðning þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli

Hjalti gerði grein fyrir framvindu mála vegna ráðningu þjóðgarðsvarðar.  Svæðisráðið leggur áherslu á að skv. 4. tl. 8. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð segir að hlutverk svæðisráða sé að gera tillögu að ráðningu þjóðgarðsvarða á viðkomandi rekstrarsvæði.  Í því ljósi telur svæðisráðið eðlilegt að leitað verði til svæðisráðsins þegar þjóðgarðsvörður.

 

3. Mörk þjóðgarðsins

Farið yfir tillögur ráðgjafarnefndar um mörk þjóðgarðsins á suðursvæði.  Hrafnhildur lagði til að leitað verði eftir skýrslum Náttúrufræðistofnunum og málið rætt út frá niðurstöðum stofnunarinnar.  

 

4. Staðsetning gestastofu

Skúli gerði útlit gestastofu að umtalsefni og velti fyrir sér hvort samræmt útlit gæti verið vandamál.  Mikilvægt sé einnig að hanna gestastofur þannig að útlit falli að umhverfi hvers staðar.

Hrafnhildur spurði hvort rætt hafi verið um kosti þess að tengja aðra starfsemi við starfsemi gestastofanna.

Í kjölfarið spunnust um miklar umræður um hvort önnur starfsemi gæti þrifist undir sama þaki og gestastofunnar.  Svæðisráðið var sammála um að slíkt kæmi vel til greina en mikilvægt væri að andlit þjóðgarðsins myndi ekki hverfa og rýri ekki gildi hans.

Í umræðum um staðsetningu gestastofu þá kom fram að mikilvægt væri að þjóðgarðurinn yrði hluti af því samfélagi sem væri hluti af.  Til dæmis var rætt um að mikilvægt væri að staðsetja gestastofur þannig að jákvæðni skapaðist á meðal heimamanna.  Bent var á markmið íbúa svf. Hornafjarðar með þjóðgarði væri að vernda landsvæði og efla byggðina á nærsvæði þjóðgarðsins.  Staðsetning gestastofu verður að taka mið af þessu.

Svæðisráðið stefnir að fundi með bæjarstjórn Hornafjarðar um málið og að niðurstaða liggi fyrir í lok árs.

 

5. Fundar- og verkáætlun

Samþykkt að 2. fundur verði 29. október kl. 10.00 á Mýrum eða Suðursveit.

Samþykkt að 3. fundur verði 26. nóvember kl. 10.00 í Skaftafelli.

Samþykkt að 4. fundur verði 17. desember kl. 10.00 í Fundarhúsi Lónmanna

 

6. Önnur mál

Hrafnhildur spurði um vinnu að verndaráætlun.  Upplýst um að sú vinna fari af stað á vordögum 2009, þegar reglugerð hefur verið samþykkt.

 

 

 

 

 


Fundargerðir

Dag.grein
17.01.2013 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 34
05.11.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 33
03.09.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði  32
07.02.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 31
18.01.2012 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 30
08.12.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 29
04.10.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 28
14.06.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 27. fundur
01.02.2011 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 25. fundur
13.12.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 24.fundur
23.11.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 23. fundur
18.08.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði 22. fundur
09.08.2010 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs -  Suðursvæði 21. fundur
23.04.2010 Fundargerð svæðisráðs  Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 20. fundur
12.04.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 19. fundur
25.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 18. fundur
05.01.2010 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 17. fundur
10.09.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 16. fundur
05.06.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 15. fundur
19.05.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 14. fundur
07.04.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 13. fundur
10.03.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 12. fundur
14.01.2009 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 11. fundur
30.10.2008 Fundargerð svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 10. fundur
08.09.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 9. fundur
23.05.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 8. fundur
23.04.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði 7. fundur
31.03.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - suðursvæði 6. fundur
13.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökusþjóðgarðs - Suðursvæði 5. fundur
04.02.2008 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 4. fundur
26.11.2007 Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - Suðursvæði 3. fundur
07.11.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 2. fundur
01.10.2007 Fundargerð Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs – Suðursvæði 1.fundur
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica