Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 32
32. fundur
32. fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn í ráðhúsi, 19. febrúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Gunnhildur Imsland varaformaður
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Hólmfríður Br Þrúðmarsdóttir varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) embættismaður
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson , Bæjarstjóri .
Dagskrá:
|
201302056 - Fyrirtækjakynning - Millibör |
||
|
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir vexti fyrirtækisins Millbör sem hún á og rekur. Sagði að hugmyndin hafi kviknað á nýsköpunarhelgi sem Innovit og sveitarfélagið stóðu að haustið 2011. Í kjölfarið stofnaði hún fyrirtækið í mars 2012 eftir að hafa hlotið styrk úr atvinnu- og rannsóknasjóði og síðan hafi fyrirtækið vaxið og dafnað. Á sama tíma hafi hún fengið aðstöðu í Kartöfluhúsi sem hafi verið lykilatriði fyrir starfsemina. Í júní 2012 höfðu tveir starfsmenn bæst við í vinnu hjá fyrirtækinu fyrir utan hana sjálfa. Eftirspurn væri mikil en horfa þurfi í marga hluti í uppbyggingu og rekstri til að ná endum saman og þróa fyrirtækið í rétta átt. Ragnheiður sagði frá bakgrunni sínum, námi og stofnun verkstæðis í klæðskeraiðn, og seinna námi í markaðsfræði í Danmörku. Sýndi Ragnheiður í framhaldi myndir frá frumsýningu fatalínu sem bar heitið Kynjaverur hafsins þar sem hún sótti innblástur í lífríki hafsins. Greindi frá áherslum sínum um að verslunin ætti að veita fólki upplifun og innsýn í hönnunar- og framleiðsluferilinn. Markmiðið er jafnframt að auka aðdráttarafl Hafnar sem ferðamannastaðar. Næsta skref er að koma framleiðslu á það form að anna allri eftirspurn sem til staðar er. Ragnheiður greindi frá samstarfi sínu við Framhaldsskólann um að koma fatasaum inn sem námsgrein og þróun námskrár. Ragnheiður ræddi um líf sem frumkvöðull og höfðaði til nefndarinnar um að setja sig í þau spor. Líkti ferlinu við rússíbanareið. Uppbygging krefðist mikils tíma og reyndi á alla í kringum frumkvöðulinn. Jafnframt að reikningshald og utanumhald utan um margt er varðar daglegan rekstur væri tímafrekt og oft viðamikið. Aðgengi að ráðgjöf og aðstoð væri mikilvæg til að komast yfir ýmsar hindranir, til að greina betur möguleika til markaðssóknar, aðgengi að tækjakosti til frekari þróunar á vörum og stuðning við gerð vöruþróunar. Að endingu sagði hún frá framtíðarsýn er varðar uppbyggingu rekstursins til næstu ára. |
||
|
|
||
|
2. |
201201025 - Menningarverðlaun 2012 |
|
|
Eftirtaldir voru tilefndir til menningarverðlauna: Eigendur Humarhafnarinnar ehf. vegna endurbóta á Hafnarbraut 4 að utan og innan. Sigurgeir Jónsson á Fagurhólsmýri vegna ötuls starf að tónlistarmálum og skemmtanahaldi í Öræfum og víðar. Sigjón Bjarnason á Brekkubæ vegna ötuls starfs að tónlistar- og menningarmálum.
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir að veita...Menningarverðlaun Hornafjarðar 2012. Samþykkt að afhenda verðlaunin þann 14. mars nk. |
||
|
|
||
|
3. |
201008042 - Staða á vinnumarkaði |
|
|
Bryndís kynnti stöðu og þróun á vinnumarkaði. Kom fram að 24 eru í atvinnuleit eða um 1,6% af vinnumarkaði. |
||
|
|
||
|
4. |
201301031 - Ráðstefna um orkumál |
|
|
Bryndís kynnti dagskrá og markmið ráðstefnu um orkumál sem haldið verður á Hótel Höfn þann 28. febrúar nk. Árni Rúnar spurði um hvort ráðstefnan hafi verið kynnt fjölmiðlum. Hjalti og Bryndís upplýsti um samskipti við fjölmiðla til að tryggja kynningu og frásagnir af ráðstefnunni. Halldóra spurði um hvort ekki hafi verið haft samband við Landsvirkjun og hvort áætlaður hafi verið nægjanlegur tími fyrir fyrirlesara. Bryndís og Hjalti svöruðu fyrirspurnum þar sem Hjalti greindi frá viðræðum sínum við Landsvirkjum um vindmyllur. Bryndís vék af fundi kl. 18.00. |
||
|
|
||
|
5. |
201301017 - Umsókn um styrk úr Atvinnu- og rannsóknasjóði A-deild Art bjarg |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundi með umsækjanda. Bæjarstjóra falið að taka saman greinargerð um stöðu verkefnisins og framvindu þess í samræmi við styrk á árinu 2011. |
||
|
|
||
|
6. |
201301066 - Uppbygging vöruhúss |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir 15 m.kr. fjárveitingu til eflingar Nýheima og hugmyndum um bætta aðstöðu og tækjakost m.a. til að styðja við frumkvöðla. Velti Árni upp spurningu um hvað sé skynsamlegt með eignarhald eða leigu á umræddu húsi. Ef uppbygging verður enn meiri þurfi að taka ákvörðun um eignarhald eða langtímaleigu. |
||
|
|
||
|
7. |
201301045 - Efling matarsmiðju Matís á Höfn |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum eflingu matarsmiðju. Samkvæmt þeirri hugmynd er gert ráð fyrir að matarsmiðjan flytjist í gömlu mjólkurstöðina og þá fengju söfnin þjónustuhús að Álaleiru í sínar hendur að öllu leyti. |
||
|
|
||
|
8. |
201208018 - Önnur mál |
|
|
Halldóra óskaði eftir upplýsingum um þær breytingar sem búið er að gera á skipulagi safna- og menningarmála. Lýsti hún furðu sinni á að málið hafi ekki verið lagt fyrir nefndina. Hjalti sendir nefndinni tillögu sína sem lögð var fyrir bæjarstjórn og greindi frá ástæðum þess að hann taldi rétt að bæjarráð og bæjarstjórn bæru ábyrgð á því en ekki fagnefndin. Halldóra rifjaði í framhaldi upp bókanir í bæjarráði um málið. Hjalti greindi frá málinu og þróun þess. Halldóra lagði fram eftirfarandi bókun:
Bókun vegna skipulagsbreytinga á Menningarmiðstöð Hornafjarðar: Ég undirrituð lýsi yfir furðu minni á að Atvinnu- og menningarálamefnd sé ekki höfð með í ráðum í mikilvægum ákvörðunum sem varða þá málaflokka sem heyra undir nefndina.
Í erindisbréfi Atvinnu- og menningarmálanefndar er tilgreint að meginhlutverk hennar er "að móta stefnu í menningarmálum sveitarfélagsins. Nefndin gegnir jafnframt hlutverki stjórnar Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar skv. stofnskrá hennar og hlutverki bókasafnsnefndar."
Nú hefur verið tekin ákvörðun um að breyta skipulagi safna- og menningarmála án þess að nefndin hafi haft þar nokkra aðkomu. Vinnubrögð sem þessi bera vott um afar óvandaða stjórnsýslu og eru til þess fallinn að skapa óvissu og hafa slæm áhrif á orðspor sveitarfélagsins innanlands sem utan í heimi lista og menningar.
Engin stefna liggur fyrir í menningarmálum og nefndin fékk ekki til umfjöllunar fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 þrátt fyrir að henni sé ætlað skv. erindisbréfi að "gera tillögur að fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar um útgjaldaliði menningarmála". Nú hefur verið auglýst ný staða forstöðumanns Hornafjarðarsafna án þess að nefndarmenn hafi nokkra hugmynd um hvað er á döfinni hjá bæjarstjórn og án þess að nefndin hafi nokkra hugmynd um þá fjármuni sem þessar skipulagsbreytingar koma til með að kosta og hvernig þær eru áætlaðar í fjárhagsáætlun 2013.
Fleiri atriði er hægt að nefna í ákvarðanatöku Bæjarstjórnar varðandi menningarmál sem ég áskil mér rétt til að gera athugasemd við síðar.
Ég vil mótmæla harðlega þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru hjá stjórn sveitarfélagsins og stangast algjörlega á við hlutverk nefndarinnar og reglur um vandaða stjórnsýslu. Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Halldóra óskaði eftir að fá verkefnisstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar á Höfn til fundar við nefndina hið fyrsta. Halldóra spurði um fyrirhugaða ferð um sveitir. Kristján upplýsti að ekki verði farið í fundarferð að sinni. Taldi hann málefni Menningarmiðstöðvar í eðlilegum farvegi hjá bæjarráði og bæjarstjórn vegna eðli málsins. |
||
|
|
||


