Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 28
28. fundur
28. fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar
haldinn í ráðhúsi, 16. október 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Gunnhildur Imsland varaformaður
Björg Erlingsdóttir embættismaður
Valdimar Ingólfsson aðalmaður
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir varamaður
Björn Arnarson
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) embættismaður
Fundargerð ritaði: Björg Erlingsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar.
Dagskrá:
|
200812051 - Ríki Vatnajökuls |
||
|
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls, mætti á fundinn. Sagði að ferðaþjónustan í Sveitarfélaginu Hornafirði hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum að því marki að nú er þörf á að fylgja vextinum eftir. Greindi frá erindi sem hún ásamt Þorvarði Árnasyni, forstöðumanni Háskólaseturs, hafi sent bæjarráði um fjárframlag til að ráða sameiginlegan starfsmann. Með því takist að slá tvær flugur í einu höggi. Starfsmaðurinn mun annars vegar vinna að rannsóknum á ferðaþjónustu sem er grundvöllur markvissrar framþróunar og hinsvegar mun hann vinna að vöruþróun sem er forsenda fyrir vexti og viðhaldi á gæðum ferðaþjónustu á svæðinu. Forsvarsmenn Ríkis Vatnajökuls og Rannsóknarsetursins telja að þetta sé nauðsynlegt næsta skref til að tryggja samkeppnishæfni ferðaþjónustu í sveitarfélaginu gagnvart öðrum svæðum á Íslandi, ekki síst varðandi þróun á ferðaþjónustu utan háannar. Starfið er til eins árs til að byrja með. Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur jákvætt í erindið. |
||
|
|
||
|
2. |
200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður - reglur |
|
|
Lagðar fram samþykktir atvinnu- og rannsóknasjóðs. Halldóra lagði til nokkrar breytingar. Nefndarmenn munu senda starfsmanni hugmyndir að breytingum í tölvupósti. Kristján taldi mikilvægt að nefndin fái yfirlit um stöðu sjóðsins, úthlutun hans á undanförnum árum og yfirlit yfir afrakstur hans áður en til nýrrar úthlutunar kemur. Björg gerði grein fyrir samskiptum við ýmsa styrkaðila. Þá rifjaði hún upp að gerðar hafa verið breytingar á samningum, útgreiðslu styrkja og eftirliti með samningum. Nefndin mun halda vinnufund í nóvember m.a. um reglur sjóðsins og fá þá námskeið um úthlutun styrkja á þeim fundi. |
||
|
|
||
|
3. |
201208027 - Ósk um samstarf Huldusteins og sveitarfélagsins |
|
|
Gerð grein fyrir viðræðum við eigendur Huldusteins og komu hönnuðar Jöklasýningar til staðarins. Lögð fram drög að samningi á milli aðila og teikningu sem sýnir fyrstu hugmyndir um uppsetningu sýningar. Kom fram að eigendur Huldusteins hafi gert kostnaðaráætlun vegna breytinga á húsnæði og uppsetningu sýninga. Kom fram að fyrirhugaður sé fundur starfsmanna og fulltrúa Huldusteins í næstu viku. Kristján fagnar framkomnum hugmyndum um uppsetningu Jöklasýningar í Huldusteini og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu á grunni þeirra draga að samkomulagi sem komið er fram. Halldóra Bergljót lýsir yfir að hún sé hlynnt samstarfi um sýningar á vegum sveitarfélagsins við einkaaðila. Hún leggur áherslu á að ákveðið sé hvað eigi að gera, hvar staðsetja eigi sýningar og athugað hvort áætlanir um breytingar á miðlunarhluta Byggðasafns standast safnalög áður en gengið er til samninga við einstaka aðila. Þá þurfi að yfirfara stofnskrá Byggðasafns og óskar hún eftir að fá hana í hendur. Hjalti fer yfir heimsókn og samskipti við Þjóðminjavörð og starfsmann Safnaráðs og afstöðu þeirra til starfsemi Byggðasafns. Valdimar leggur áherslu á að opið sé fyrir áhugasama að sækja um að hýsa sýningar. Halldóra Bergljót leggur til að haldinn verði vinnufundur þar sem lagðar verða línur um fyrirkomulag á vali á samstarfsaðilum og áherslur í sýningamálum. Hjalti leggur áherslu á það frumkvæði sem aðilar hafa sýnt og hversu langt undirbúningsferlið er komið. Halldóra Bergljót leggur áherslu á að undirbúningur sé kláraður áður en lengra er haldið. Starfsmönnum er falið að auglýsa eftir samstarfsaðilum um sýningar í sveitarfélaginu. Halldóra Bergljót óskar eftir að samningurinn sé ræddur á fundinum og því er hafnað. Hjalti taldi ótímabært að ræða samningsdrög þar sem eftir eigi að funda nánar með samningsaðilum. Hjalti býður fundarmönnum að senda honum athugasemdir við samningsdrögin í tölvupósti. |
||
|
|
||
|
4. |
201210017 - Tilboð um að kaupa gamla jarðýtu í eigu Menningarmiðstöðvar |
|
|
Atvinnu- og menningarmálanefnd mun ekki selja eða gefa safngripi í eigu sveitarfélagsins. |
||
|
|
||
|
5. |
201207011 - Verklýsing um framtíðarfyrirkomulag safnamála |
|
|
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar vinnu starfsmanna við að gera ítarlega og nákvæma verklýsingu um vinnu í atvinnu- og menningarmálum fyrir næstu misseri. Nefndin fagnar sérstaklega yfirliti yfir daglegt starf Menningarmiðstöðvar. Nefndin samþykkir framlagða verklýsingu fyrir sitt leyti og telur að leggja þurfi sérstaka upphæð til hliðar til að vinna að markaðssetningu svæðisins fyrir hópa listnema og listamanna og eins til þróunar á sýningum í sveitarfélaginu. Halldóra Bergljót telur að tímarammi verkáætlunar sé ekki réttur og vísar til fyrri umræðu á fundinum.
|
||
|
|
||
|
6. |
201210003 - Viljayfirlýsing um viðræður um eflingu starfsemi í Nýheimum |
|
|
Gerð grein fyrir aðdraganda og efni viljayfirlýsingar. Kristján Guðnason formaður lagði til að í tengslum við vinnu að nýrri áætlun um eflingu Nýheima yrði jafnframt tekið saman staða í atvinnulífi staðarins. Leitað eftir viðhorfi atvinnurekenda þannig að framtíðarhorfur atvinnulífs yrðu höfð til hliðsjónar. |
||
|
|
||
|
7. |
201205036 - Staða fjármála Menningarmiðstöðvar |
|
|
Björg fór yfir málið. |
||
|
|
||
|
8. |
201008042 - Staða á vinnumarkaði |
|
|
Björg fór yfir málið. Upplýsti að nú séu 17 í atvinnuleit. |
||
|
|
||
|
9. |
201208018 - Önnur mál |
|
|
Halldóra óskaði eftir því að starfsmanni Nýsköpunarmiðstöðvar á Hornafirði verði boðið á fund nefndarinnar til að fara yfir verkefni sem verið er að sinna á Hornafirði. Halldóra óskar eftir bókað verði að samþykkja þurfi nýja fundargerð frá 27. fundi nefndarinnar. Hjalti fer yfir stöðu mála varðandi Gamla Vatnstankinn. Halldóra biður um samninga milli Jöklasýningar og Þjóðgarðsins og sveitarfélagsins og Þjóðgarðsins varðandi Gömlubúð. Samningur milli Jöklasýningar og Þjóðgarðs er ekki til, hinn verður sendur nefndarmönnum. Lagt til að málefni Listvinasjóðs verði rædd á næsta fundi.
|
||
|
|
||
|
10. |
201209001 - Ósk um samstarf um uppbyggingu búvélasýningar |
|
|
Gerð grein fyrir viðræðum við ábúendur í Hólmi. Lögð fram drög að samningi á milli aðila og teikningu sem sýnir fyrstu hugmyndir um uppsetningu sýningar. Kristján fagnar framkomnum hugmyndum um uppsetningu búvélasýningar í Hólmi og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu á grunni þeirra draga að samkomulagi sem komið er fram. Halldóra Bergljót lýsir yfir að hún sé hlynnt samstarfi um sýningar á vegum sveitarfélagsins við einkaaðila. Hún leggur áherslu á að ákveðið sé hvað eigi að gera, hvar staðsetja eigi sýningar og athugað hvort áætlanir um breytingar á miðlunarhluta Byggðasafns standast safnalög áður en gengið er til samninga við einstaka aðila. Þá þurfi að yfirfara stofnskrá Byggðasafns og óskar hún eftir að fá hana í hendur. Hjalti fer yfir heimsókn og samskipti við Þjóðminjavörð og starfsmann Safnaráðs og afstöðu þeirra til starfsemi Byggðasafns. Valdimar leggur áherslu á að opið sé fyrir áhugasama að sækja um að hýsa sýningar. Halldóra Bergljót leggur til að haldinn verði vinnufundur þar sem lagðar verða línur um fyrirkomulag á vali á samstarfsaðilum og áherslur í sýningamálum. Hjalti leggur áherslu á það frumkvæði sem aðilar hafa sýnt og hversu langt undirbúningsferlið er komið. Halldóra Bergljót leggur áherslu á að undirbúningur sé kláraður áður en lengra er haldið. Starfsmönnum er falið að auglýsa eftir samstarfsaðilum um sýningar í sveitarfélaginu. Halldóra Bergljót óskar eftir að samningurinn sé ræddur á fundinum og því er hafnað. Hjalti taldi ótímabært að ræða samningsdrög þar sem eftir eigi að funda nánar með samningsaðilum. Hjalti býður fundarmönnum að senda honum athugasemdir við samningsdrögin í tölvupósti. |
||
|
|
||
|
11. |
201209002 - Ósk um viðræður um uppsetningu Jöklasýningar í Hoffelli |
|
|
Gerð grein fyrir viðræðum við ábúendur í Hoffelli um uppsetningu sýningar. Frá því að erindið var sent inn hafa hugmyndir um sýningu í Hoffelli þróast nokkuð. Kom fram að hugmyndin er að tvinna sögu ábúðar í Hoffelli við náttúrubreytingar á svæðinu. Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar framkomnum hugmyndum um uppsetningu sýningar í Hoffelli og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu. |
||
|
|
||


