Atvinnu- og menningarmálanefnd

Fundargerð Atvinnu- og menningarmálaefndar 27

27. fundur

27. fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar

haldinn í ráðhúsi, 18. september 2012 og hófst hann kl.16:15.

 

 

Fundinn sátu:

Kristján Sigurður Guðnason formaður

Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður

Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður

Björg Erlingsdóttir embættismaður

Björn Sigfinnsson varamaður

Hólmfríður Br. Þrúðmarsdóttir

 

Fundargerð ritaði:  Björg Erlingsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar.

 

 

 

Dagskrá:

 

1.

201206021 - Ferð til Söderhamn

Björg segir frá ferð starfsmanna Nýheima til Svíþjóðar.

 

2.

201203015 - Menningarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði

Halldóra Bergljót spyr um stefnu í menningarmálum og óskar eftir að svar formanns sé bókað. Kristján svarar því að verið sé að vinna að stefnu í menningarmálum um leið og hafist hefur verið handa við ákveðin verkefni og bendir á grein sem birtist í Eystrahorni 16.08.2012. Halldóra Bergljót gerir athugasemdir við tímarammann og verklýsingu dagsetta 21.06.2012 og telur að nánari umfjöllunar þurfi við.

Atvinnu- og menningarmálanefnd fer fram á að nefndin fái til efnislegrar meðferðar verklýsingu og tímaramma í safnamálum áður en málinu er vísað til bæjarstjórnar.

 

3.

200911037 - Reglur um úthlutun styrkja atvinnu - og menningarmálanefndar

Málið verður tekið fyrir á vinnufundi nefndarinnar í haust. Björg beðin um að taka saman lista yfir þau félagasamtök sem fengið hafa styrki síðustu ár auk lista yfir nýtingu tækja og húsnæðis í eigu sveitarfélagsins.

 

4.

201208032 - Keðja - markaðssetning svæðisins fyrir listamenn og hópa yfir vetrartímann

Nefndin styður verkefnið og telur að stuðningur bæjarfélagsins við hálfa stöðu starfsmanns í fimm mánuði styrki markaðssetningu svæðisins yfir jaðartíma í ferðaþjónustu.

 

5.

201201029 - Fundir fulltrúa atvinnu- og menningarmálanefndar í sveitum

Björgu falið að finna tíma fyrir fyrstu heimsóknina. Gert er ráð fyrir að fyrsti fundurinn verði með Lónmönnum. Þeir nefndarmenn sem áhuga hafa á fara með í þessar ferðir.

 

6.

201208027 - Ósk um samstarf Huldusteins og sveitarfélagsins

Hjalta og Björgu falið að gera tillögu til nefndarinnar um útfærslu samstarfs við Huldustein.

Halldóra Bergljót telur að móta þurfi nákvæmari stefnu og reglur um útfærslu lána á munum sveitarfélagsins áður en hægt er að taka afstöðu til erindisins. Árni fagnar þeirri grósku sem á sér stað í safna- og sýningamálum hjá einkaaðilum í sveitarfélaginu og fagnar þeim áhuga sem fram kemur í bréfinu. Nefndarmenn taka undir orð Árna.

 

7.

201205065 - Ágangur villtra dýra og fugla á ræktunarlönd bænda á Hornafirði

Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir yfir áhyggjum af ágangi gæsa, hreindýra og álfta í sveitarfélaginu. Nefndin leggur áherslu á að núvernadi ástand sé ekki til góða hvorki fyrir bændur né viðkomandi dýrastofna. Nefndin tekur undir ályktun starfsmanns Búnaðarsambandsins um að stofnanir og hagsmunaaðilar sem að þessum málum koma vinni saman að ásættanlegri niðurstöðu.

 

8.

201004033 - ítala

Björg segir frá vinnu Búnaðarsambandsins og eftirfylgni með heyforða bænda.

 

9.

200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður - reglur

Námskeið um meðferð styrkja og úthlutuna, haldið um miðjan október í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð. Reglur atvinnu- og rannsóknarsjóðs ræddar nánar á vinnufundi nefndarinnar seinna í haust.

 

10.

201209031 - Verkefnalisti atvinnu- og menningarmálanefndar

Dagskrá 2012-2013 kynnt á næsta fundi. Halldóra Bergljót biður um yfirlit fyrir næsta fund, yfir tekjur og útgjöld 5-6 ár aftur í tímann.

 

11.

201209032 - Menningarmiðstöð verkefnakynning

Björg segir frá verkefninu Entrepreneurs across boarders.

 

12.

200705059 - Söfn Sverris Scheving Thorsteinssonar og Lovísu H. Gunnarsdóttur

Nefndin fagnar velvilja þeirra Lovísu og Sverris í garð Listasafns Hornafjarðar með fyrirhugaðri gjöf.

 

13.

201209033 - Fundarhús Lónmanna 100 ára afmæli

Björgu falið að hafa samband við Lónmenn og skipuleggja viðburð vegna afmælisins.

 

14.

200911034 - Tölur um atvinnuleysi og dreifing innan hópa

Farið yfir tölur frá Vinnumálastofnun.

 

15.

201208032 - Keðja - markaðssetning svæðisins fyrir listamenn og hópa yfir vetrartímann

 

16.

201209001 - Ósk um samstarf um uppbyggingu búvélasýningar

Hólmfríður Bryndís yfirgefur fundinn kl. 19:20.

Hjalta og Björgu falið að gera tillögu til nefndarinnar um útfærslu samstarfs við Hólm.

Halldóra Bergljót telur að móta þurfi nákvæmari stefnu og reglur um útfærslu lána á munum sveitarfélagsins áður en hægt er að taka afstöðu til erindisins. Árni fagnar þeirri grósku sem á sér stað í safna- og sýningamálum hjá einkaaðilum í sveitarfélaginu og fagnar þeim áhuga sem fram kemur í bréfinu. Nefndarmenn taka undir orð Árna.

 

17.

201209002 - Ósk um viðræður um uppsetningu Jöklasýningar í Hoffelli

Hjalta og Björgu falið að gera tillögu til nefndarinnar um útfærslu samstarfs við Hoffell.

Halldóra Bergljót telur að móta þurfi nákvæmari stefnu og reglur um útfærslu lána á munum sveitarfélagsins áður en hægt er að taka afstöðu til erindisins. Árni fagnar þeirri grósku sem á sér stað í safna- og sýningamálum hjá einkaaðilum í sveitarfélaginu og fagnar þeim áhuga sem fram kemur í bréfinu. Nefndarmenn taka undir orð Árna.

 

18.

201208035 - Notkun vélknúinna ökutækja við leitir

Erindi Umhverfisstofnunar kynnt.

 

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.18:30

 


Fundargerðir

Dag.grein
23.04.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 34
19.03.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 33
19.02.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 32
22.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 31
15.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 30
20.11.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 29
16.10.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 28
18.09.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálaefndar 27
26.06.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar 26
15.05.2012 Fundargerð Atvinnu-og menningarmálanefndar 25
02.05.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 24
07.03.2012 Fundargerð Atvinnnu- og menningarmálanefndar 23
21.02.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 22
17.01.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 21
20.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 20
14.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 19
06.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 18
15.11.2011 Fundargerð  atvinnu- og menningarmálanefndar 17
18.10.2011 Fundargerð atvinnu og menningarmálanefndar 16
22.09.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 15
23.08.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 14
27.06.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 13
17.05.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 12
26.04.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 11
15.03.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 10
23.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 9
21.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 8
14.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
20.12.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 5
09.11.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 4
21.09.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 3
24.08.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 2
29.06.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 1 
17.05.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 19
14.04.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 18
10.02.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 17
13.01.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 16
04.11.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 15
14.10.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 14
16.09.2009 Fundargerð  menningar- og tómstundanefndar 13
16.06.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 12
19.05.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 11
25.03.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 9
11.02.2009 Fundargerð menningar og tómstundarnefndar 8
09.02.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 7
21.01.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 6
10.12.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 5
12.11.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 4
08.10.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 3
10.09.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 2
11.06.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 1
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica