Fundargerð Atvinnu-og menningarmálanefndar 25
25. fundur
25. fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn í ráðhúsi, 15. maí 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Gunnhildur Imsland varaformaður
Maríanna Jónsdóttir aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) embættismaður
Björg Erlingsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Björg Erlingsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar.
Dagskrá:
| 1. |
201205036 - Staða fjármála Menningarmiðstöðvar |
|
|
Farið yfir stöðu fjármála. |
| |
|
|
| 2. |
201203085 - Ástand beitar í Laxárda í Nesjum og beiðni um ítölu |
|
|
Hjalti fer yfir feril málsins. Starfsmönnum er falið að fara yfir feril málsins, kostnað og þá vinnu sem hugsanlega færi í gang. Niðurstöðurnar kynntar á fundi nefndarinnar í september. |
| |
|
|
| 3. |
200706010 - Fjallskilasamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir framkomnum athugamsemdum. Nefndin leggur áherslu á að tekið verði tillit til þeirra athugasemda sem borist hafa og samþykktin lögð fyrir á næsta fundi nefndarinnar. |
| |
|
|
| 4. |
201204041 - Samningur milli Listasafns Hornafjarðar og Myndstefns um um notkun myndverka í starfsemi safnsins |
|
|
Farið yfir umsögn frá starfsmanni safnaráðs. Ákveðið var að bíða eftir niðurstöðu viðræðna milli mennta- og menningarmálaráuneytis, safnaráðs og Myndstefs. |
| |
|
|
| 5. |
201204001 - Tillögur Búnaðarfélags Mýrahrepps |
|
|
Fjarskipti, sorpmál og fleiri mál kynnt. Hjalti segir frá stöðu mála. Unnið er innan ráðhússins að aðkomu sveitarfélagsins og úrlausnum erinda Búnaðarfélagsins. Hjalti fer á fund með fulltrúum RÚV næstu daga þar sem dreifikerfi RÚV verður rætt. |
| |
|
|
| 6. |
201102027 - Samningur- tilraun á ræktun olíufræja í sveitarf. Hornafirði |
|
|
Góður árangur náðist á ræktun repju í Svínafelli í Öræfum. Verkefnið lofar góðu en er enn á tilraunastigi. Haustuppskeran gefur betri upplýsingar um gang verkefnisins. |
| |
|
|
| 7. |
200905001 - Orkumál á Hornafirði |
|
|
Hjalti fer yfir stöðu mála. Unnið er að orkustefnu sveitarfélagsins, hagkvæmniskönnun er hafin varðandi vindorku. Sjávarorka er einnig til skoðunar og þá sérstaklega orkunýting hægstrauma. Skýrsla liggur fyrir um jöfnun húshitunarkostnaðar á köldum svæðum, sérstaklega varðandi dreifingu orkunnar. Einnig er verið að vinna að úttekt á kostum varmadæla sem settar voru upp í íþróttahúsinu. |
| |
|
|
| 8. |
201205035 - Næstu verkefni Menningarmiðstöðvar |
|
|
Sagt frá verkefnum framundan. Nefndin leggur áherslu á að leitað verði leiða við að auglýsa starfsemi og opnunartíma Listasafnsins. |
| |
|
|
| 9. |
201205037 - Málefni Akureyjar |
|
|
Menningarmiðstöð veitt heimild til að nýta stýrishúsið sem aðstöðu fyrir listamann. Áréttað að skiltu um eigin ábyrgð gesta sér til staðar á fleiri tungumálum en íslensku. Starfsmönnum falið að takmarka aðgang að ákveðnum rýmum. |
| |
|
|
| 10. |
201205039 - Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2012 |
|
|
Fundarboðið kynnt. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:48