Atvinnu- og menningarmálanefnd

Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 13

13. fundur

 

13. fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinní ráðhúsi, 27. júní 2011 og hófst hann kl. 20:00.

 

Fundinn sátu:

  • Kristján Sigurður Guðnason formaður
  • Gunnhildur Imsland varaformaður
  • Maríanna Jónsdóttir aðalmaður
  • Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
  • Gunnar Örn Reynisson 3. varamaður
  • Hjalti Þór Vignisson (HÞV) embættismaður

 

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson , bæjarstjóri .

 

 

 

Dagskrá:

 

1. 201008042 - Staða á vinnumarkaði

Ragnhildur Jónsdóttir kom á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu á atvinnuleysisskrá. Kom fram að 20 eru skránni en þar af eru 11 í hlutastarfi. Sagði hún frá bakgrunni þeirra sem eru á skránni. Langtímaatvinnuleysi er lítið sem ekkert. Greindi hún frá nýju átaki til að hvetja fólkt að leita sér menntunar ef það fær ekki atvinnu. Jafnframt greindi Ragnhildur frá Smiðju sem sett var á laggirnar í tengslum við átakið ,,Ungt fólk til athafna". Sagði hún almenna ánægju með verkefnið, bæði hjá aðstandendum og þátttakendum. Sagði hún að ef haldið yrði áfram með verkefnið mætti þróa úrræði fyrir fleiri hópa en atvinnuleitendur og nýta mætti betur ýmisleg vinnumarkaðsúrræði , s.s. vettvangsnám í formi samninga um reynsluráðningu, starfsþjálfun og starfsnám. Jafnframt mætti skipuleggja sjálfboðastarf í þágu Rauða krossins, heimsóknir til eldri borgara, aðstoð á leikskólum- og grunnskólum og aðstoða erlenda íbúa við að aðlaga sig samfélaginu.

Í kjölfarið sköpuðust umræður um stöðuna á vinnumarkaði og úrræði þeim tengdum.
Ragnhildi þökkuð fyrir komuna á fundinn.
 

2. 201103088 - Samningur milli sveitarf. og Ríkis Vatnajökuls um stuðning sveitarfélagsins við markaðssetingu og kynningu á ferðaþjónustu og afurðum í sveitarfélaginu

Farið yfir ákvörðun bæjarstjórnar um að veita 3 m.kr. til markaðsstarfs. Nefndin gerir ekki athugasemdir við skiptingu fjármuna þannig að 2 m.kr. fari til þess að efla kynningu ferðaþjónustunnar á netinu skv. framlagðri hugmynd frá framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls. Kristján lagði þá tillögu fram að sú 1 m.kr. sem eftir stæði færi í að setja upp kynningarskylti á fjölförnum stöðum í sveitarfélaginu, s.s. við Skaftafell, Jökulsárlón og víðar auk þess að nýta mætti fjármuni til að setja upp kynningarsíðu fyrir þá sem hyggjast flytja á Hornafirði. Nefndarmenn ræddu fleiri hugmyndir, s.s. skjáauglýsingar og auglýsingar í útvarpi. Gunnar Örn lagði áherslu á að tryggja þurfi bestun á leitarvélum. Nefndarmenn ræddu um mikilvægi þess að vefir væri uppfærðir reglulega og væri lifandi. Umræða þróaðist um hvort sveitarfélagið ætti að ráða sérstakan starfsmann til að sinna upplýsingagjöf.
Starfsmanni falið að vinna kostnaðaráætlun, gera tillögu um útlit og staðsetningu skilta og leggja fyrir nefndina.
 

3. 201102063 - Íbúaþing - skýrsla

Farið yfir skýrsluna. Sérstaklega var farið yfir aðgerðalista og rætt um um verkefni sem hefur verið komið af stað og í framhaldi skapaðist umræður um aðgerðir sem ráðast þarf í skv. listanum. Nefndin felur starfsmanni að taka saman greinargerð um stöðu verkefna og aðgerða sem koma fram í skýrslunni og senda á staðarfjölmiðla til upplýsinga. Kristján lagði fram tillögu um að skýrslunni yrði vísað til vinnu nefndarinnar um gerð stefnu í atvinnu- og menningarmálum sem fyrirhugað er að hefjist í haust. Tók nefndin undir tillöguna.
 

4. 200912045 - Sóknaráætlun 20/20

Gerð grein fyrir breytingum á skjalinu frá síðasta fundi. Starfsmanni falið ganga frá skýrslunni og setja upp efnisyfirlit og fleira þess háttar. Nefndin gerði nokkrar breytingar, samþykkti skjalið fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.
 

5. 201102011 - Önnur mál

Engin.
 

 




Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 21:30

 


Fundargerðir

Dag.grein
21.05.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 35
23.04.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 34
19.03.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 33
19.02.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 32
22.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 31
15.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 30
20.11.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 29
16.10.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 28
18.09.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálaefndar 27
26.06.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar 26
15.05.2012 Fundargerð Atvinnu-og menningarmálanefndar 25
02.05.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 24
07.03.2012 Fundargerð Atvinnnu- og menningarmálanefndar 23
21.02.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 22
17.01.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 21
20.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 20
14.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 19
06.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 18
15.11.2011 Fundargerð  atvinnu- og menningarmálanefndar 17
18.10.2011 Fundargerð atvinnu og menningarmálanefndar 16
22.09.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 15
23.08.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 14
27.06.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 13
17.05.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 12
26.04.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 11
15.03.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 10
23.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 9
21.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 8
14.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
20.12.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 5
09.11.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 4
21.09.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 3
24.08.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 2
29.06.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 1 
17.05.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 19
14.04.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 18
10.02.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 17
13.01.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 16
04.11.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 15
14.10.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 14
16.09.2009 Fundargerð  menningar- og tómstundanefndar 13
16.06.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 12
19.05.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 11
25.03.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 9
11.02.2009 Fundargerð menningar og tómstundarnefndar 8
09.02.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 7
21.01.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 6
10.12.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 5
12.11.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 4
08.10.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 3
10.09.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 2
11.06.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 1
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica