Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7
7. fundur
7 . fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn í Nýheimum mánudaginn 14. febrúar 2011, og hófst hann kl. 20:00
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason, Valdimar Ingólfsson, Maríanna Jónsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Björg Erlingsdóttir, Gunnar Örn Reynisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson og Björg Erlingsdóttir, bæjarstjóri og forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá:
1. 201102025 - Bréf búfjáreftirlitsmanns vegna fjárflutninga frá Stórhóli Hornafjörð
Hjalti greindi frá málinu. Bæjarráð sammála um að setja ákvæði í samþykkt um búfjárhald sem leggur bann við flutningi fjár á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Djúpavogshrepps nema með leyfi.
2. 201102006 - Umsóknir í Atvinnu- og rannsóknasj. 2011
Gunnar Örn og Valdimar véku af fundi undir þessum lið. Nefndin ræddi um innsendar umsóknir í sjóðinn. Eftir yfirferð og umræðu var ákveðið að ljúka afgreiðslu á fundi sem fram fari í hádeginu þann 21. febrúar nk.
3. 201011051 - Minnisblað Bjrargar Erlingsdóttur um úthlutanir styrkja til menningarmála
Björg fór yfir minnisblaðið. Nefndin fagnaði framkomnu minnisblaði og hvetur bæjarráð að fjalla um málið. Kom fram að með samningum við ákveðinn félagasamtök er hægt að skilgreina verkefni betur og setja fram markmið. Leggur til að málið verði síðan tekið aftur á dagskrá nefndarinnar eftir umfjöllun bæjarráðs.
4. 201011051 - Styrkir 2011 - úthlutun styrkja til menningarmála
Atvinnu- og menningarmálanefnda samþykkti eftirfarandi styrki:
Leikfélag Hornafjarðar 150.000
Kvennakór Hornafjarðar 150.000
Karlakórinn Jökull 150.000
Samkór Hornafjarðar 75.000
Leikhópurinn Lopi 150.000
Lúðrasveit Hornafjarðar 75.000
Gleðigjafar 150.000
Listvinasjóður Hornafjarðar 200.000
Hornfirska skemmtifélagið 200.000
Ljósalistaverk á Vatnstanki 250.000
5. 201101046 - Menningarverðlaun
Björg kynnti tilnefningar til menningarverðlauna. Kom fram að eftirfarandi voru tilnefndir:
Þorsteinn Sigurbergsson fyrir ljósalistaverk á vatnstankinum og áralangt starf sem ljósameistari leikfélaga víða um land.
Eiríkur Hansson vegna starfs hans með Legóhópum í Grunnskóla Hornafjarðar.
Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar.
Ragnar Arason fyrir handverk.
Atvinnu- og menningarmálanefnd er sammála um að Ragnar Arason hljóti verðlaunin. .
6. 201102026 - Minnisblað um Jöklasýningu
Lagt fram minnisblað um Jöklasýningu. Kom fram að rekstur hefur ekki gengið eins vel og lagt var upp með í upphafi. Starfsmönnum falið að leggja fram greinargerð um hvernig fara eigi yfir málefni menningar- og atvinnumála á vegum sveitarfélagisns.
7. 201102011 - Önnur mál
Engin.


