Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 11
11. fundur
11 . fundur Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn í Nýheimum,
26. apríl 2011 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Gunnhildur Imsland varaformaður
Maríanna Jónsdóttir aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Björn Sigfinnsson 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) embættismaður
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
| 1. |
201103003 - Gamlabúð - flutningur |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir verkferli að flutningi Gömlubúðar. Unnið væri að gerð samantektar um verkefnið sem innihéldi eftirtalda verkþætti.1. Um húsið og sögu þess 2. Verklýsing er varðar flutning á Gömlubúð, þ.m.t. grundun á nýjun stað og frágangi á eldri staði.3. Gamlabúð í samhengi við uppbyggingu á Hafnarvík Heppu. Þetta kemur fram í deiliskipulagi sem umhverfis- og skipulagsnefnd vinnur nú að. 4. Starfsemi í Gömlubúð fyrir flutning og hvernig hún breytist 5. Starfsemi í Gömlubúð eftir flutning 6. Tímaáætlun sem miðast við fullnaðarlok þann 1. maí 2012. |
| |
|
|
| 2. |
201101033 - List og verkgreinar á Hornafirði |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í skýrslu um list - og verkgreinar. |
| |
|
|
| 3. |
201103032 - Fjallskil |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir vörslusviptingu á fé fyrir skömmu, kostnaði sveitarfélagsins og fjölgun fjár í Nesjum í kjölfarið. Umræða skapaðist um skyldur sveitarfélagsins um þessi mál og hvernig best er að bregðast við. |
| |
|
|
| 4. |
201008042 - Staða á vinnumarkaði |
|
|
Kom fram að um 40 einstaklingar eru á atvinnuleysisskrá. Kom fram að óskað hafi verið eftir sundurliðun á stöðunni. Gunnhildur greindi frá umræðu um að hentugra væri að hafa umsjón með vinnumarkaðsúrræðum sem næst íbúum en ekki að hafa yfirumsjón með þessu á landshlutavísu. Rætt um að tekið hafi verið saman minnisblað um vinnumarkaðsúrræði á vegum sveitarfélagsins fyrir nokkrum misserum. Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir að umrætt minnisblað verði lagt fram á næsta fundi nefndarinnar ásamt yfirliti yfir hvernig vinnusmiðja hafi gengið í vetur og hvernig vinnumarkaðsúrræði sem kynnt voru nýlega á vegum Menningarmiðstöð Hornafjarðar hafi gengið. |
| |
|
|
| 5. |
201008016 - Listasafn Svavars Guðnasonar |
|
|
Lögð fram drög að stofnskrá listasafns Svavars Guðnasonar. Maríanna velti því upp hvort markmið safnsins þyrfti að vera einskorðað við málaralist og ræddi í því sambandi um leirlist, hönnun og fleira. Nefndin sammála um að fela starfsmönnum að útfæra stofnskránna að framkomnum athugasemdum og leggja fyrir nefndina á næsta fundi. |
| |
|
|
| 6. |
201104061 - Stefna í orkumálum |
|
|
Lögð fram hugmynd að vinnu við orkustefnu sem unnin yrði í tveimur megin skrefum, annars vegar kortlagning sem á sér stað til október 2011 og hins vegar stefnumörkum á grunni úttektar í framhaldinu. Nefndin felur starfsmanni að vinna á grunni framlagðra gagna. |
| |
|
|
| 7. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Engin. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.