Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
6. fundur
Fundur í atvinnu- og menningarmálanefnd haldinn í Nýheimum,þriðjudaginn 25. janúar 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason, Maríanna Jónsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Björg Erlingsdóttir, Björn Sigfinnsson, Hólmfríður Br Þrúðmarsdóttir,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201101044 - Nýheimar - kynning
Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari FAS, ræddi um tengsl FAS við atvinnu- og menningarmál. Sagði frá fjórum þróunarverkefni sem eru í gangi í skólanum, fjallaleiðsögn, grasrótarlist, verkefna- og rannsóknarvinnu og nám í fiskvinnslu. Nefndi sérstaklega þörf á að bæta félagslíf fólks á aldrinum 16-25 ára í samvinnu skólans og samfélagsins.
Þorvarður Árnason ræddi um Nýheima og hlutverk Háskólasetursins í þeirri heild. Sagði að setrið væri mest helgað rannsóknum en tæki jafnframt virkan þátt í öðrum verkefnum hússins, þ.e. menntun, menningu og nýsköpun. Sagði jafnframt frá samstarfsverkefnum við FAS, Vatnajökulsþjóðgarð, Ríki Vatnajökuls og Sveitarfélagið Hornafjörð. Sagði hann frá að sóknarfæri setursins liggi ekki síst í rannsóknum í ferðaþjónustu.
Tinna Arnardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Sagði frá hlutverki starfstöðvar á Hornafirði, til dæmis að stuðla að framgangi nýrra viðskiptahugmynda einstaklinga eða stofnana og fyrirtækja. Áherslusviðin eru þrjú, nýsköpun, atvinnuþróun og alþjóðleg verkefni sem eiga að færa þekkingu til og frá Íslandi. Sagði frá að hún vinni mikið í matvælaverkefnum eins og stendur sem og í handverk og hönnun. Sagði að vegna áherslu sem hefur verið á staðnum í matvælaframleiðslu leiði af sér að mörg verkefni sem unnin eru á landsvísu tengt matvælum séu unnin frá Hornafirði.
Í umræðu kom fram að áherslur Nýheima sem heildar hverfist um þrjú megin svið: ferðaþjónustu, matvæli og skapandi greinar. Þeirri hugmynd velt upp hvort ekki ætti að vinna sérstaka sóknaráætlun fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð þar sem aðilar sem koma að þróun samfélagsins stilli saman strengi sína. Kom fram að um 40 manns vinni í Nýheimum og hundruðir miljóna króna fara í gegnum húsið ár hvert.
Eyjólfi, Þorvarði og Tinnu þakkað fyrir kynninguna og umræður sem sköpuðust í kjölfarið. Véku af fundi kl. 16.50.
2. 201101045 - Menningarmiðstöð Hornafjarðar - kynning
Björg greindi frá starfi Menningarmiðstöðvar. Kom fram að innan MMH sé byggðasafn, héraðsskjalasafn, bókasafn, listasafn, náttúrugripasafn og upplýsinga- og menningarfulltrúi. Sagði hún að í stefnu kæmi fram að Menningarmiðstöð skuli vera leiðandi í uppbyggingu menningarstarfsemi í sveitarfélaginu. Kom fram að yfir 40 þúsund gestir sæki viðburði, söfn og sýningar á vegum MMH á ári.
Lagt fram minnisblað dags.12. janúar um ákvæði í lögum sem atvinnu- og menningarmálanefnd skal fylgja eftir skv. erindisbréfi og leggja skyldur á herðar sveitarfélögum.
3. 201101046 - Menningarverðlaun
Björgu falið að auglýsa tilnefningar til menningarverðlauna 2011. Frestur til tilnefninga verður til 10. febrúar og verðlaun og styrkir afhent 24. febrúar.
4. 201101047 - Auglýsing vegna styrkja úr Atvinnu- og rannsóknasjóði - áherslur
Hjalta falið að auglýsa eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð. Umsóknafrestur til 10. febrúar nk.
5. 201012077 - Styrkumsóknir 2011
Lagðar fram umsóknir um styrki til menningarmála. Maríanna velti því upp hvort styrkir til kóra ættu að hluta til að fara eftir stærð þeirra. Frestað til næsta fundar.
6. 200705114 - Önnur mál
Lagt fram minnisblað um hátíðir, dags 13. janúar 2011 um hátíðir í sveitarfélaginu Hornafirði. Rætt um samstarf sveitarfélagsins, félagasamtaka og fyrirtækja um viðburðahald. Árni ræddi um mikilvægi þess að tengja fulltrúa humarhátíðar í þessa umræðu. Vísað til starfsmanna.
Árni benti á að sóknaráætlun fyrir Ísland væri komin út og lagði til að hún yrði til umræðu á næsta fundi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


