Atvinnu- og menningarmálanefnd

Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 5

5. fundur

 

Fundur í atvinnu- og menningarmálanefnd haldinn í Nýheimum, mánudaginn 20. desember 2010 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Kristján Sigurður Guðnason, Gunnhildur Imsland, Valdimar Ingólfsson, Maríanna Jónsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV),  

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

 Dagskrá:

 1.    201012005 - Pakkhús leiga- útboðslýsing

Árni Rúnar Þorvaldsson vék af fundi undir þessum lið. Áður en hann vék af fundi lýsti hann því yfir að hann teldi að vanda þurfi vel til verka í þessu máli.
Lögð fram drög að útboðslýsingu vegna leigu á Pakkhúsi.
Spurt hvort gera þurfi breytingar í húsinu til að það standi kröfur heilbrigðiseftirlts sem veitingastaður og samkomuhús. Einnig rætt um að félagasamtök hafi notað húsið.
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur áherslu á að sú starfsemi sem fram fer í húsinu standist allar kröfur sem til hennar eru gerðar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir framlögð gögn og vísar þeim til bæjarráðs.

2.    200804074 - Mikligarður - framtíð hans og bryggjuhúss

Lagt fram erindi frá áhugafélaginu Bryggjunni til Sveitarfélagsins Hornafjarðar um framtíð, nýtingu og rekstur Bryggjuhússins dags. 7. desember 2010.
Kristján gerði grein fyrir fundi með hópnum fimmtudaginn 16. desember.
Þá gerði Kristján grein fyrir fundum með einstaklingi um nýtingu á Miklagarði og Bryggjuhúsi.
Valdimar ræddi um mikilvægi þess að gæta jafnræðis þegar kæmi að nýtingu á húsnæðinu.
Árni velti því upp hvort ekki væri rétt að byrja á því að kanna markað fyrir húsin og hvort áhugi væri hjá einstaklingum að kaupa þau. Tók undir orð Valdimars um jafnræði.
Kristján sagði að áhugi væri sannanlega fyrir hendi hjá einstaklingum að hefja þarna atvinnustarfsemi en spurning um leiðir í uppbyggingu.
Lagðir fram útreikningar er sýna áætlaða fjárþörf í endurbyggingu Miklagarðs og Graðalofts, lánareikni og rekstur húsnæðis.
Rætt um leiðir til uppbyggingar, þ.e. að selja húsin, leita leiða til að sett verði á laggirnar fasteignafélag til að standa að uppbyggingu eða að sveitarfélagið standi sjálft að þessu. Kom fram í máli fundarmanna að ef sveitarfélagið ætli sér að standa að þessu sjálft sé eðlilegt að bjóða rýmin út.
Kristján lagði áherslu á að nýta þann áhuga sem vaknað hefur á svæðinu.

3.    200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður - endurskoðun á samþykktum

Lögð fram drög að nýjum samþykktum.
Árni talaði um 2. gr. um að hinir sérfróðu aðilar yrðu hlutlausir. Þá sagði hann um 7. gr. er varðar framlög í sjóðinn að mikilvægt væri að þau væru ekki háð skilyrðum. Eins ræddi um hæfisreglur og hvort nefndarmenn yrðu vanhæfir almennt til að fjalla um úthlutun úr sjóðnum ef þeir yrðu vanhæfir gagnvart einni umsókn.
Maríanna lagði áherslu á mikilvægi þess að nefndin gæti vel að rökstuðningi fyrir ákvörðun um synjun eða styrkveitingu.
Atvinnu- og menningarmálanefnd vísar samþykktum frá sér með áorðnum breytingum.

4.    200808058 - Gagnaver

Sveinbjörn Imsland mætti á fundinn undir þessum lið og sagði frá hugmyndum um uppbyggingu gagnavers á Hornafirði. Sveinbirni þakkað fyrir áhugaverða kynningu og honum og öðrum aðstandendum óskað velfarnaðar í framhaldinu.

5.    201012004 - Efling kornræktar

Lagt fram minnisblað um eflingu kornræktar þann 12. desember 2010. Hjalti greindi frá fundi með kornbændum um málið. Valdimar sagði að kornbændur vantaði aðstöðu til kornþurrkunar. Sagði hann að repja væri í sjálfu sér ekki erfið til ræktunar en vandinn væri að finna rétta afbrigðið til ræktunar hér um slóðir.
Árni Rúnar sagðist ekki geta stutt að verkefninu verði vísað til fjárhagsáætlunar að svo komnu máli, taldi að málið þyrfti meiri umræðu og formlega umsókn frá kornbændum. Sagði að sveitarfélagið hefði nýlega veitt 24 m.kr. til atvinnumála og fyrstu viðbrögð sín væru að verkefnið ætti heima undir atvinnu- og rannsóknasjóði.
Valdimar benti á að betra væri að fá formlega umsókn, þar sem útlistað væri hvernig samstarfi við landbúnaðarháskólann væri háttað og verkefnið skilgreint. Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur undir þau orð.

200705114 - Önnur mál

Hjalti gerði grein fyrir fundi um vinnumarkaðsúrræði.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   

Fundargerðir

Dag.grein
21.05.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 35
23.04.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 34
19.03.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 33
19.02.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 32
22.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 31
15.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 30
20.11.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 29
16.10.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 28
18.09.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálaefndar 27
26.06.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar 26
15.05.2012 Fundargerð Atvinnu-og menningarmálanefndar 25
02.05.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 24
07.03.2012 Fundargerð Atvinnnu- og menningarmálanefndar 23
21.02.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 22
17.01.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 21
20.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 20
14.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 19
06.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 18
15.11.2011 Fundargerð  atvinnu- og menningarmálanefndar 17
18.10.2011 Fundargerð atvinnu og menningarmálanefndar 16
22.09.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 15
23.08.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 14
27.06.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 13
17.05.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 12
26.04.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 11
15.03.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 10
23.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 9
21.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 8
14.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
20.12.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 5
09.11.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 4
21.09.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 3
24.08.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 2
29.06.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 1 
17.05.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 19
14.04.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 18
10.02.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 17
13.01.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 16
04.11.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 15
14.10.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 14
16.09.2009 Fundargerð  menningar- og tómstundanefndar 13
16.06.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 12
19.05.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 11
25.03.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 9
11.02.2009 Fundargerð menningar og tómstundarnefndar 8
09.02.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 7
21.01.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 6
10.12.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 5
12.11.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 4
08.10.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 3
10.09.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 2
11.06.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 1
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica