Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 4
4. fundur
Fundur í atvinnu- og menningarmálanefnd haldinn í Nýheimum,þriðjudaginn 9. nóvember 2010 og hófst hann kl. 16:00.Fundinn sátu:
Kristján Sigurður Guðnason, Gunnhildur Imsland, Valdimar Ingólfsson, Maríanna Jónsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Björg Erlingsdóttir,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson og Björg Erlingsdóttir, bæjarstjóri og forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá:
1. 201010043 - Kynning á íslensku safnastarfi
Björg gerði grein fyrir erindi FÍSOS, félagi íslenskra safnamanna.
2. 201009095 - Hreindýr í vanda vegna ónýtra girðinga
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Rætt um fjölda dýra á svæðum í sveitarfélaginu. Atvinnu- og menningarmálanefnd telur mikilvægt að byggt verði upp góð samvinna við Umhverfisstofnun í málefnum hreindýra, sérstaklega hvað varðar talningar og útgefin kvóta.
3. 201010037 - Refaveiðar uppgjörstímab. 2010-2011
Valdimar ræddi um mikilvægi minkaveiði og að ekki megi hætta veiðum. Ræddi einnig um fjölgun refs og velti því upp hvort svæði sem einstakir veiðimenn sinni séu of stór. Hvatti til þess að stefna í þessum málum yrði endurskoðuð. Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir áhyggjum sínum yfir niðurskurði ríkisins á greiðslum fyrir refa- og minkaveiðar.
4. 201010070 - Samkeppni um titilinn Norrænt orkusveitarfélag 2011
Til kynningar.
5. 201011019 - Gagnaver - umsóknir um styrki
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir að veita 150 þúsund króna styrk fyrir árið 2010 sem verður tekið af öðru verkefni umsækjanda. Atvinnu- og menningarmálanefnd vísar umsókninni til næstu úthlutunar atvinnu- og rannsóknasjóðs.
6. 201011002 - Sjávarútvegsmál - minnisblað um skýrslu um fiskveiðistjórnun
Hjalti gerði grein fyrir minnisblaðinu. Árni sagði að ýmis sjónarmið væru uppi og ekki ljóst hvernig málið endaði. Lagði áherslu á að þarfir og hagsmunir byggðanna væru höfð að leiðarljósi.
Valdimar sagði að kvótakerfið hafi verið sett á til að vernda fiskistofnanna. Rakti hann að fyrir nokkrum árum hafi margar útgerðir verið á þessu svæði en tekist hafi að halda að stærstum hluta kvótans í byggðarlaginu. Hafði áhyggjur af ákvörðunum sem lamað gætu sjávarútveginn. Sagði einnig að ójafnræði væri í því fólgið að færa kvóta aftur til þeirra sem höfðu selt kvótann frá sér.
Atvinnu- og menningarmálanefnd er sammála um að sjávarútvegur er grundvöllur byggðar víða um land, stöðugleiki í greininni væri mikilvægur og engar ákvarðanir ætti að taka sem ógna rekstrargrundvelli fyrirtækja.
7. 201011007 - Minnisblað um fundi í menntamálaráðuneyti í okt. 2010 - Endurnýjun samninga um menningarmál
Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi á Austurlandi og Dorthee Lubecki menningarfulltrúi Suðurlands sátu fundinn undir þessum lið. Signý rakti samstarf í menningarmálum á Austurlandi. Sagði hún að í farvatninu væru töluverðar breytingar á samningum. Dórótea sagði frá samstarfi sveitarfélaga á Suðurlandi í menningarmálum. Greindi hún frá viðræðum við ráðuneytið um menningarmiðstöðvar.
Hjalti gerði grein fyrir fundi í ráðuneytinu í okt 2010 og hvar málið væri statt.
8. 200709059 - Íbúaþing - endurskoðun á aðalskipulagi
Kynnt drög að íbúaþingi. Árni lagði áherslu á að íbúaþingið yrði kynnt vel til að mæting yrði góð. Atvinnu- og menningarmálanefnd telur mikilvægt að íbúaþing skili grunni að stefnu í atvinnu- og menningarmálum í héraðinu.
9. 200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmönnum að gera tillögur að auglýsingu og áherslum sjóðsins fyrir árið 2011 og leggja fyrir næsta fund.
10. 201011023 - Matarhátíð í Ríki Vatnajökuls
Björg gerði grein fyrir málinu og hugmyndafræði "slow food". Sagði að á hátíðinni yrði gert ráð fyrir 30 - 40 framleiðendum. Sagði að hátíðin yrði unnin á vegum grasrótarsamtaka sem stofnuð hafi verið á Hornafirði. Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar hugmyndinni og hvetur að áframhaldandi þróun og undirbúningi.
11. 201009045 - Evrópa unga fólksins
Björg fór yfir stöðu verkefnisins. Sagði að töluverð vinna hafi átt sér stað með ungu fólki í héraðinu en markmiðið væri að ná saman 30 manna hópi, 10 einstaklingum frá 14-18 ára, 10 frá 18-25 ára og 10 frá 25-30 ára. Upplýsti að fulltrúar frá verkefninu á landsvísu kæmu til að fylgjast með verkefninu. Gunnhildur velti fyrir sér hvernig einstaklingarnir væru valdir. Björg sagði að samvinna væri um málið á milli menningarmiðstöðvar, félagsmiðstöðvar og grunnskólans. Árni spurði um kynningu á meðal unga fólksins um verkefnið þannig að allir vissu um möguleika á að taka þátt í því.
12. 200705114 - Önnur mál
Björg sagði frá athafnaviku sem fram fer 15. - 21. nóvember nk.
Kristján spurði um stöðu á atvinnuleysisskrá. Sagt frá að 20 voru á skrá, 10 konur og 10 karlar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.00


