Atvinnu- og menningarmálanefnd

Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 2

2. fundur

Fundur í atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn í Nýheimum, þriðjudaginn 24. ágúst 2010 og hófst hann kl. 17:00

 

Fundinn sátu:

Kristján Sigurður Guðnason, Gunnhildur Imsland, Valdimar Ingólfsson, Maríanna Jónsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Guðlaug Ósk Pétursdóttir,  

 Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

 Dagskrá:

 1.      201008039 - Síðasta fundargerð atvinnumálanefndar

Lagt fram til kynningar.

2.      200903002 - Scæðisbundið samstarf í menningarmálum

Lögð fram greinargerð dags. 7. ágúst 2010. Hjalti fór yfir greinargerðina og sagði m.a. að menningarsamningar hafi verið mikilvægir fyrir einstaklinga og félagasamtök sem standa fyrir menningarstarfi auk þess sem Menningarmiðstöð Hornafjarðar hlýtur árlegan rekstrarstyrk. Árni gerði grein fyrir tillögu sem hann lagði fram þann 12. júlí sl. í bæjarráði. Einnig gerði Árni grein fyrir viðræðum í Menningarráði Austurlands, sem hann á sæti í, um áframhaldandi samstarf.

Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að áhersla Sveitarfélagsins Hornafjarðar verði að halda fjárframlagi til rekstur Menningarmiðstöðvar auk þess að hafa aðgang að styrkfé fyrir félagasamtök og einstaklinga sem sinna menningarmálum.

3.      201008014 - Kynning á skipulagi og starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Guðlaug Pétursdóttir mætti á fundinn undir þessum lið, lagði fram árskýrslu Menningarmiðstöðvar árið 2009 og sagði frá starfssviði sínu sem felst m.a. í undirbúningi og utanumhaldi á fjölda viðburða. Sagði hún að listamenn óskuðu í meira mæli eftir því að koma til Hornafjarðar. Einnig vinnur Guðlaug mikið með félagasamtökum að fjölbreyttum verkefnum og sýningum. Þá greindi Guðlaug frá danskvöldum og danskennslu, jólamarkaði, þjóðahátíð og fleiri viðburðum sem Menningarmiðstöðin stendur fyrir. Guðlaug sagði að barnastarfið í sumar hafi gengið vel en alls var farið á níu staði. Sagði frá samstarfsverkefnum með öðrum aðilum, s.s. humarhátíð og verkefnum sem fjármögnuð eru með styrkjum, s.s. eins og Ungt fólk og lýðræði. Mánaðarlega kemur út viðburðadagatal á vegum Menningarmiðstöðvar. Þessa dagana er unnið að undirbúningi áhugaljósmyndasýninga og fleiri viðburða.

Í framhaldinu skapaðist umræða m.a. um notkun á Pakkhúsi undir tónlistarviðburði.
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur áherslu á að tónlistarviðburðir verði settir upp í samvinnu við veitingamenn á staðnum, sérstaklega yfir vetrartímann, og beinir til bæjarráðs að settar verði reglur þar um.

4.      201008042 - Staða á vinnumarkaði og atvinnuhorfur ágúst 2010

Lagt fram yfirlit um stöðu á atvinnuleysiskrá þar sem m.a. er sýnt aldursdreifing þeirra sem leita sér að atvinnu og hversu lengi fólk er á skránni. Kom fram að langtímaatvinnuleysi, þ.e. þeir sem eru búnir að leita að atvinnu í meira en ár eru samtals 2 og 1 hefur leitað að atvinnu í 39-51 viku. Kom fram að í lok júlí hafi 17 verið á skrá.

Rætt almennt um horfir á atvinnumarkaði í vetur og mikilvægi þess að halda vöku sinni. Gunnhildur ræddi um að huga verði að stöðu kynjanna á atvinnumarkaði. Benti á að þeir sem hafa leitað lengst að atvinnu séu konur og sömu úrræði henti ekki fyrir bæði kyn.

5.      201008015 - Markaðs- og kynningaráætlun fyrir sveitarfélagið

Lögð fram hugmynd um kynningar- og markaðsefni fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Maríanna benti á aðferðir annarra sveitarfélaga til að markaðssetja sig, t.d. í sjónvarpi, póstkortum og facebook.
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmönnum að halda áfram vinnu í þessum anda.

6.      200710023 - Samningur um stuðning við markaðssetn. og vöruþróun á jaðartímum ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði

Lagður fram samningur á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu um stuðning við ferðaþjónustu sem undirritaður var 4. október 2007 og rennur út 30. desember nk. Rætt um þróun í ferðaþjónustu og hugmyndir settar fram um hvernig sveitarfélagið geti áframt stutt við atvinnugreinina.
Valdimar sagði að mikilvægast væri að fjölga ferðamönnum á svæðinu og að tímabilið lengist. Sagði hann slíkt styrkja smáframleiðendur matvæla, fyrirtæki í margvíslegri þjónustu og ferðaþjónustuna.

7.      200705114 - Önnur mál

Engin framborin.


Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   18.40

 


Fundargerðir

Dag.grein
21.05.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 35
23.04.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 34
19.03.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 33
19.02.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 32
22.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 31
15.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 30
20.11.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 29
16.10.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 28
18.09.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálaefndar 27
26.06.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar 26
15.05.2012 Fundargerð Atvinnu-og menningarmálanefndar 25
02.05.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 24
07.03.2012 Fundargerð Atvinnnu- og menningarmálanefndar 23
21.02.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 22
17.01.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 21
20.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 20
14.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 19
06.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 18
15.11.2011 Fundargerð  atvinnu- og menningarmálanefndar 17
18.10.2011 Fundargerð atvinnu og menningarmálanefndar 16
22.09.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 15
23.08.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 14
27.06.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 13
17.05.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 12
26.04.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 11
15.03.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 10
23.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 9
21.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 8
14.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
20.12.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 5
09.11.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 4
21.09.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 3
24.08.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 2
29.06.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 1 
17.05.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 19
14.04.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 18
10.02.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 17
13.01.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 16
04.11.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 15
14.10.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 14
16.09.2009 Fundargerð  menningar- og tómstundanefndar 13
16.06.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 12
19.05.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 11
25.03.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 9
11.02.2009 Fundargerð menningar og tómstundarnefndar 8
09.02.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 7
21.01.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 6
10.12.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 5
12.11.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 4
08.10.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 3
10.09.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 2
11.06.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 1
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica