Atvinnu- og menningarmálanefnd

Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 1 

1. fundur

Fundur haldinn    í atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar þriðjudaginn 29. júní 2009 kl. 16:15 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

 

Mætt voru:    Kristján Sigurður Guðnason formaður, Gunnhildur Imsland, Valdimar Ingólfsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Maríanna Jónsdóttir, Björn Sigfinnsson, Gunnar Örn Reynisson, Herdís Waage og Hólmfríður Þrúðmarsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, og Björg Erlingsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.

 

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 

1. Erindisbréf nefndarinnar

Hjalti og Björg gerðu grein fyrir helstu verkefnum og hlutverki nefndarinnar.  Formaður gaf orðið laust um erindisbréfið.  Árni benti á að hnykkja þyrfti á hlutverki nefndarinnar í atvinnumálum í inngangi kaflans „Hlutverk og verksvið“.  Einnig lagt til að starfsmenn fái seturétt í nefndinni.

Fundurinn vísar málinu frá sér til afgreiðslu bæjarstjórnar með þeim ábendingum.

 

2. Næstu verkefni nefndarinnar

Kristján S. Guðnason lagði fram eftirfarandi um verkefni atvinnu- og menningarmálanefndar.  Hlutverk hennar er að vinna að eflingu atvinnu- og menningarstarf með fjölbreytni að leiðarljósi.  Sveitarfélagið verður að halda áfram að skapa aðstæður til þróunar og eflingar atvinnu- og menningarstarfs og hlúa að frumkvöðlum.  Helstu verkefni nefndarinnar á yfirstandandi kjörtímabili verður:

 

  • Hlúa að atvinnu- og rannsóknasjóði og nýta hann til þróunar á fjölbreyttum atvinnutækifærum.
  • Vinna heildstæða markaðs- og kynningaráætlun fyrir sveitarfélagið sem fyrirtæki geta nýtt sér.  
  • Efla Menningarmiðstöð Hornafjarðar sem þjónustustofnun fyrir einstaklinga, atvinnulíf og félagasamtök, sem stofnun sem varðveitir menningararf og stofnun sem er leiðandi í skapandi menningarstarfi og fjölbreyttu úrvali viðburða fyrir alla aldurshópa. 
  • Efla sérstaklega lista- og menningarstarf ungs fólks með atvinnuuppbyggingu í huga. 
  • Hafin verði þróunarvinna um Hafnarvík-Heppu í samstarfi við einkaaðila.
  • Á síðustu árum hefur verið unnið að eflingu ferðaþjónustu og smáframleiðsla matvæla vaxið.  Mikilvægt er að hlúa áfram að þessum vaxtarbroddum en herja jafnframt á nýjar slóðir, s.s. skapandi greinar, orkufreka starfsemi og nýtingu náttúruauðlinda á sjálfbæran hátt.  Hér verði unnið markvisst að því að efla samstarf við fyrirtæki og stofnanir.
  • Mikilvægt er að fylgja eftir jarðhitaleitar átaki með hagnýtingu í huga.  Jafnframt er mikilvægt að kanna aðra orkuöflunarkosti eins og hagnýtingu varmadæla, vindorku og sjávarorku.
  • Að vinna markvisst að hagnýta tækifæri samfara stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Jökla- og fjallaferðaþjónusta verður lykilatriði í þessari sókn. 
  • Vakta atvinnuástand á hverjum tíma og efna til átaksverkefna í samstarfi við Vinnumálastofnum ef þörf er á. 
  • Hlúa að öflugu starfi félagasamtaka og einstaklinga á sviði menningar og lista. 
  • Nýtt Svavarssafn verður opnað árið 2011.
  • Unnið verði að flytja byggðasafnið út í sveitir og sýningar settar upp í samvinnu við íbúa og fyrirtæki í sveitum.   Vinna hefjist árið 2011.
  • Varðveita og skrá þá þekkingu, sem safnað hefur að undanförnu með varanlegum hætti
  • Hugað verði sérstaklega að þróun atvinnulífs til sveita, t.d. með áframhaldandi þróun smáframleiðslu matvæla, kornþurrkun og eflingu ferðaþjónustu.
  • Unnið verði yfirlit yfir stöðu gróðurfars og landgræðslu í héraðinu.

 

Árni lagði áherslu á að nefndin myndi halda vöku sinni um stöðu opinbers rekstrar, sérstaklega á þeim tímum þegar mikill niðurskurður blasir við. Nefndi hann sérstaklega í því samhengi mikilvægi þess að tryggja grunnþjónustu í opinberum rekstri til að tryggja jafnan aðgang allra íbúa að henni.

 

Kristján lýsti því yfir að listinn væri ekki tæmandi og yrði áfram til umræðu.

 

3.Skipulag og starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

(Sigurður Hannesson, skjalavörður mætti á fundinn undir þessum lið).  Björg kynnti skipulag og starfsemi á Menningarmiðstöð Hornafjarðar.  Upplýsti m.a. að fá sveitarfélög reki sína menningarstarfsemi á þann hátt sem gert er hér, það er undir einum hatti. 

 

Sigurður gerði grein fyrir starfsemi skjalasafnsins.  Sagði frá skilaskyldu á skjölum á vegum hins opinbera og samstarfi við Þjóðskjalasafnið. Einnig ræddi hann um ljósmyndasafn sem hann héldi utan um og einnig um útgáfu á Skaftfellingi.  Upplýsti hann um fjárstuðning til rekstur skjalasafnsins frá Þjóðskjalasafni.

 

Fundarmenn þökkuðu fyrir kynninguna.  Töldu áhugavert að fá aðra starfsmenn á Menningarmiðstöð til að kynna sitt verksvið.

 

4.Markaðs- og kynningaráætlun fyrir sveitarfélagið.

Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum um fyrstu skref í vinnu við markaðs- og kynningaráætlun. Árni lagði til að leitað yrði til fleiri en eins aðila í hugmyndavinnunni.

Miklar umræður sköpuðust.

Hjalta falið að skrifa fréttatilkynningu þar sem fjallað er um málið og áhugasamir hvattir til að gefa sig fram.

 

Herdís vék af fundi kl. 16.45.

 

5. Listasafn Svavars Guðnasonar

Björg kynnti hugmyndir arkitekta að sýningarsal í gömlu Slökkvistöðinni.  Sagði Björg að margt gæfist með þessu, m.a. að fara í markvisst samstarf við Listasafn Íslands.  Fundarmenn lýstu yfir ánægju með framkomnar tillögur.  

 

Gunnhildur Imsland spurði um hvort ástæða væri að staðsetja upplýsingamiðstöð ferðamála í ráðhúsi í tengslum við þessar breytingar. Taldi mikilvægt að finna henni varanlegan stað.  Nefndin telur mikilvægt að það verði kannað hvort ekki verði hægt að koma fyrir rekkum fyrir bæklinga og vegg fyrir upplýsingar um ferðaþjónustu í fyrirhugaðri móttöku í ráðhúsi.

 

Maríanna Jónsdóttir vék af fundi kl. 17.00

 

6. Önnur mál.

  • Árni spurði um hvort búið væri að skrifa undir samning við Vatnajökulsþjóðgarð um Jöklasýningu eins og bæjarráð væri búið að ákveða. Hjalti upplýsti að svo væri ekki en stæði til á næstu vikum.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  17.30

 


Fundargerðir

Dag.grein
21.05.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 35
23.04.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 34
19.03.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 33
19.02.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 32
22.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 31
15.01.2013 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 30
20.11.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 29
16.10.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 28
18.09.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálaefndar 27
26.06.2012 Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar 26
15.05.2012 Fundargerð Atvinnu-og menningarmálanefndar 25
02.05.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 24
07.03.2012 Fundargerð Atvinnnu- og menningarmálanefndar 23
21.02.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 22
17.01.2012 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 21
20.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 20
14.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 19
06.12.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 18
15.11.2011 Fundargerð  atvinnu- og menningarmálanefndar 17
18.10.2011 Fundargerð atvinnu og menningarmálanefndar 16
22.09.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 15
23.08.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 14
27.06.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 13
17.05.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 12
26.04.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 11
15.03.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 10
23.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 9
21.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 8
14.02.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
25.01.2011 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 6
20.12.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 5
09.11.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 4
21.09.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 3
24.08.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 2
29.06.2010 Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 1 
17.05.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 19
14.04.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 18
10.02.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 17
13.01.2010 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 16
04.11.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 15
14.10.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 14
16.09.2009 Fundargerð  menningar- og tómstundanefndar 13
16.06.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 12
19.05.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 11
25.03.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 9
11.02.2009 Fundargerð menningar og tómstundarnefndar 8
09.02.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 7
21.01.2009 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 6
10.12.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 5
12.11.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 4
08.10.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 3
10.09.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 2
11.06.2008 Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 1
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica