Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 19
19. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd mánudagur 17. maí 2010 kl. 16:15, í Pakkhúsinu.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Gauti Árnason.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Fulltrúar ungmennaráðs koma á fundinn
Helga Rún kom á fundinn og rætt var um hlutverk og starfsemi Ungmennaráðs. Rætt um að tengja þróun á hlutverki Ungmennaráðs, þeirri starfsemi sem framundan er í Evrópu unga fólksins og að fenginn verði fulltrúi frá UMFÍ og fulltrúi frá ÍTR til að koma að mótun hlutverks ungmennaráðs. Áhersla lögð á að fulltrúar í stjórn sveitarfélagsins, starfmenn og ungt fólk komi að þessari vinnu.
3. Erindi Þorsteins Sigurbergssonar um ljósalistaverk á Vatnstanknum
Verkefnið kynnt fyrir nefndinni. Málið er til umfjöllunar hjá bæjarráði.
4. Ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði
Lagt fram til kynningar og vísað í umræðu í öðrum lið fundarins.
5. Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu
Björg segir frá fundi sem haldinn var í Reykjavík í maí á vegum Menntamálaráðuneytis.
6. Önnur mál
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands var haldinn í maí á Eiðum. Skýrsla Menningarmiðstöðvar flutt.
Undirbúningur á sýningu á Svavari sumarið 2010 kynntur.
Bókun frá Gauta og Guðrúnu, þakkar fyrir samstarfið síðustu fjögur ár. Nefndarmenn taka undir það.
Fundi slitið kl. 17:19


