Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 18
18. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 14. apríl 2010 kl. 16:15, í Nýheimum.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Gauti Árnason og Helga Vilborg Sigjónsdóttir.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir gerðar
2. Fulltrúar úr ungmennaráði mæta á fundinn.
Ráðið hefur boðað til eins fundar sem féll niður vegna lélegrar mætingar. Ráðið hefur ekki mótaðar sérstakar hugmyndir um framhaldið. Ákveðið að ráðið fundi einu sinni í vor, farið verði yfir framhaldið og komið með tillögur um framtíð ungmennaráðs. Menningar- og tómstundanefnd leggur áherslu á að starfsmaður Miðgarðs hafi frumkvæði að og haldi utanum starf ungmennaráðs.
3. Staða fjármála, Menningarmiðstöð og Miðgarður
Engar athugasemdir gerðar.
4. Verkefni framundan og fjármögnun þeirra
Verkefnalisti kynntur.
Sýning í Gömlubúð: Setja upp sýningu um uppbyggingu Hafnar – gæti orðið grunnur að stærri sýningu í framtíðinni. Sýningin verður sett upp á fyrstu hæð í Gömlubúð og notast við skilti sem gerð voru 2007, íbúar hvattir til að merkja hús sín, gamlar ljósmyndir og fréttamyndir af svæðinu. Reynt að dreifa sýningunni á sem flesta staði.
Svavarssýning: undirbúin Svavarssýning fyrir sumarið, gert ráð fyrir verkum úr eigu MMH auk fræðsluefnis um Svavar og Ástu. Skipting verður gróflega: líf og starfs Svavars og Ástu, æskuverk og í þriðja rýminu yfirlit yfir verk Svavars.
Framtíðarsýning á vegum Byggðasafns, fyrirkomulag og framkvæmd. Farið verði í að lýsa þeim hugmyndum sem uppi eru innan Menningarmiðstöðvar um framtíðar skipulag sýninga Byggðasafns og fyrirkomulag, þá möguleika sem fyrir hendi eru. Hvernig hægt er að samþætta ólíka hluta, sögur, ljósmyndir, gamlar myndir, muni, frásagnir og annað sem til er á svæðinu og búa til heildstæða sýningu. Gert ráð fyrir að sýningin verði í sveitum og eins á Höfn.
Evrópa unga fólksins; undirbúningur/framkvæmd verkefnisins og undirbúningur fleiri verkefna.
Gert er ráð fyrir að styrkir verði nýttir í þessi verkefni
5. Svavarssafn
Sagt frá bréfi sem barst formanni bæjarráðs frá Karli Ómari.
6. Önnur mál
Guðrún leggur til að unnin verði skilti með upplýsingum um sögu skólahalds í Nesjum, skiltunum verði komið fyrir í trjáreitnum fyrir neðan skólabygginguna. Menningarmiðstöð falið að hafa þetta með í framtíðar skipulagi sýninga á sögu svæðisins.
Fundi slitið kl. 18:00


