Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 17
17. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 10. febrúar 2010 kl. 16:15, í Nýheimum.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Elín Magnúsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Gauti Árnason og Helga Vilborg Sigjónsdóttir.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir .
2. Starfsemi sumarsins og fyrirkomulag vakta, Hjalti Þór Vignisson mætir á fundinn
Hjalti mætir á fundinn og fer yfir hugmyndir að starfsemi Menningarmiðstöðvar yfir sumartímann. Jöklasýning hefur greitt Menningarmiðstöð fyrir starfsmann og mönnun á Jöklasýningu. Umræður um mönnun starfsstöðva, starfsemi Menningarmiðstöðvar til lengri og skemmri tíma, fjármögnun stöðugilda Menningarmiðstöðvar og áhrif sem breyting á samkomulagi við Jöklasýningu hefur.
3. Svavarssafn á Höfn
Teikningar frá Glámu-Kím kynntar og ánægja með tillögurnar.
4. Spurningakeppni fyrirtækja og leshringur
Sagt frá gangi mála í spurningakeppni fyrirtækja og hugmyndum um leshring. Guðrún lýsir yfir vonbrigðum yfir að spurningakeppni sem fór vel af stað í fyrra virðist ætla að falla niður á þessu ári.
5. Önnur mál
Björg kynnir drög að dagskrá fram á næsta haust.
Fundi slitið kl. 17:37


