Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 16
16. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 13. janúar 2010 kl. 16:15, í Nýheimum.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Elín Magnúsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Gauti Árnason og Helga Vilborg Sigjónsdóttir.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Styrkveitingar
Umræður um styrki og þau verkefni sem sótt er um til fyrir starfsárið 2010. Menningar- og tómstundanefnd saknar þess að ekki eru styrkumsóknir um afmörkuð og/eða tímabundin verkefni og beinir til listamanna og annarra sem stuðla að listsköpun á breiðum grunni að kynna sér úthlutunarreglur nefndarinnar fyrir næstu afgreiðslu styrkveitinga, sem verður að ári.
Styrkveitingar menningar- og tómstundanefndar fyrir starfsárið 2010
| Karlakórinn Jökull | 200.000 kr |
| Kvennakór Hornafjarðar | 200.000 kr |
| Samkórinn | 50.000 kr |
| Gleðigjafar | 100.000 kr |
| Leikfélag Hornafjarðar | 200.000 kr |
| Leikhópurinn Lopi | 100.000 kr |
| Magnús J. Magnússon | 100.000 kr |
| Lúðrasveit Hornafjarðar | 100.000 kr |
| Hornfirska Skemmtifélagið | 200.000 kr |
| Listvinasjóður Hornafjarðar | 250.000 kr |
Samtals 1.500.000 kr
3. Menningarverðlaun 2009
Tilnefning til Menningarverðlauna 2009:
Júlía Imsland, fyrir óeigingjarnt starf sem fréttamaður og ljósmyndari.
Halldór Halldórsson, fyrir metnaðarfulla útgáfu matreiðslubókarinnar Réttir úr ríki Vatnajökuls.
Kristín Jónsdóttir fyrir ljóðabókina Bréf til næturinnar, sem fengið hefur einstaka dóma.
Útreiðarfélagið Glófaxi, fyrir útgáfu geisladisks og mikla kynning á héraðinu í fjölmiðlum.
Gísli Eysteinn Aðalsteinsson, fyrir blýantsteikningar.
Helgi Björnsson, fyrir bókina Jöklar á Íslandi
Kristín Guðnadóttir, fyrir bókina Svavar Guðnason
Menningarverðlaun 2009 hlýtur
4. Á 485. fundi bæjarráðs Hornafjarðar 23. nóvember s.l. voru reglur um úthlutun styrkja til menningarmála sem samþykktar voru í menningar- og tómstundanefnd 4. nóvember s.l. til afgreiðslu og var eftirfarandi bókað:
„Mikil umræða skapaðist um úthlutun styrkja frá sveitarfélaginu. Rætt um að tengja styrki betur við rekstur og viðburði á vegum félagasamtaka en ekki eingöngu hefðbundið starf þeirra. Bæjarráð vísar til menningar- og tómstundarnefndar að undirbúa úthlutun næsta árs með góðum fyrirvara með það fyrir augum að kalla eftir ítarlegri áætlunum um starfsemi og sérstök verkefni á vegum félagasamtaka.
Framlög drög samþykkt.“
5. Evrópa unga fólksins
Sagt frá undirbúningsvinnu sem er í gangi vegna verkefnisins.
6. Önnur mál
Áhersla lögð á að efla listvinasjóð með því að safna fleiri styrktaraðilum og kynna sjóðinn og starfsemi hans.
Fundi slitið kl. 17:45


