Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 15
15. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 04. nóvember 2009 kl. 16:15, í Nýheimum. Fulltrúar Ungmennaráðs komu á fundinn ásamt starfsmanni Miðgarðs.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Elín Magnúsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Helga Vilborg Sigjónsdóttir.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
- Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
- Fundur með ungmennaráði
Fundarmenn kynna sig. Ungmennaráð kynnir áherslupunkta sína: Ungmennaráð vill sækjast eftir auknu lýðræði og sækja um í Evrópu Ungafólksins, styrk til að efla þátttöku ungs fólks í samfélaginu. Ungmennaráð leggur áherslu á að bíóaðstaða verði nýtt, aðstaða fyrir myndlistafólk verði efld, efla danskennslu, klifurveggur settur upp og starf björgunarsveitarinnar eflt. Þá leggja þau áherslu á að göngustígur út í Nes verði lagaður og gerður nothæfur fyrir hjólafólk, hlaupandi og aðra vegfarendur. Þá benda þau á að laga þarf gólfið í íþróttahúsinu. Tónleikaaðstaða, Sindrabær er of stór og þarf að vera aðstaða fyrir smærri tónleika. Ákveðið að næsti fundur Ungmennaráðs og menningar- og tómstundanefndar verði á fyrsta fundi menningar- og tómstundanefndar eftir áramótin.
- Fjárhagsáætlun 2010
Félagsmiðstöð, engar athugasemdir gerðar.
Menningarmiðstöð, engar athugasemdir gerðar.
- Samningur við NOVA vegna fjarskiptabúnaðar
Björn Ingi bendir á að samningurinn sé borinn saman við fyrirvara í sambærilegum samningum.
- Uppkast að reglum vegna úthlutunar styrkja
Reglurnar samþykktar og vísað til bæjarráðs.
- Viðburðir framundan
Viðburðir framundan kynntir.
- Önnur mál
Forvarnir og hlutverk Miðgarðs kynnt og hugmyndir um skiptingu milli aðila innan stjórnsýslunnar.
Fundi slitið kl. 18:10


