Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar og tómstundarnefndar 8
8. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 11. febrúar 2009, í Nýheimum.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Elín Magnúsdóttir, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Pálína Benediktsdóttir og Gauti Árnason.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
- Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir gerðar.
- Fjárhagsáætlun 2009
Fjárhagsáætlun kynnt fyrir Menningarmiðstöð og Félagsmiðstöð. Engar athugasemdir gerðar.
- Erindisbréf Ungmennaráðs
Engar athugasemdir gerðar.
- Opinn fundur menningar- og tómstundanefndar
Ákveðið að halda kynningu á menningar- og tómstundarafþreyingu í sveitarfélaginu. Stungið uppá 28. mars í Nýheimum. Allir samþykkir því.
- Önnur mál
Guðrún bendir á að stefnumótun í menningarmálum sveitarfélagsins er ekki aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Menningar- og tómstundanefnd fagnar áhuga listunnenda á verkum Svavars Guðnasonar s.b.r. frétt í Morgunblaðinu frá 11. febrúar 2009.
Rætt um útgáfu bókar um Svavar Guðnason, Björg segir frá stöðu mála.
Fundi slitið kl. 17:20


