Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 6
6. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 21. janúar 2009, í Nýheimum.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Elín Magnúsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir og Gauti Árnason.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
- Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
- Styrkveitingar
Gauti leggur fram ályktun:
Ég legg til að það fé sem ætlar er til veitinga menningarstyrkja í Sveitarfélaginu Hornafjörður verði tvöfaldaðir, eða gerið allt að 3 milljónum og veittir verði tvennskonar styrkir, annarsvegar til rekstrar á menningartengdum félögum, sbr. Kórum, leikfélögum og öðru slíku. Svo verði veittir verkefnastyrkir, þar sem sömu félög sem og einstaklingar geti sótt í ef um einstök verkefni er um að ræða.
Menningarstarf verður seint metið til fjár, en jákvæð áhrif þess á samfélagið er ómetanlegt. Eftir hefur verið tekið um allt land, hversu öflugt menningarlíf er hér á Hornafirði er þessi úthlutun styrkja sem hefur verið undan farin ár því að einhverju leiti tengd. En upphæðin sem menningarmálanefnd hefur fengið til umráða hefur svo gott sem haldist óbreytt frá 1999, svo nú er kominn tími til að efla þennan sjóð til muna. Með því er hægt að standa betur að atvinnusköpun á menningarsviðinu, og stuðla þar með að eflingu skapandi hugsunar til atvinnuuppbyggingar
Legg ég því til að þessari afgreiðslu verði frestað og menningar- og tómstundanefnd skori á bæjarráð Hornafjarðar að auka fjárveitingu til Menningarstyrkja og taka málið upp aftur fyrir lok janúar 2009
Gauti Árnason
Elín bendir á að fjárhagsáætlun er þegar afgreidd og nær að huga að þessu fyrir úthlutun næsta árs. Matthildur tekur undir þessar athugasemdir en tekur einnig undir það að styrkurinn verði hækkaður í framtíðinni. Guðrún tekur undir að styrkir verði hækkaðir en að staða mála bjóði ekki uppá hækkun. Rétt sé að huga að hækkun fyrir næsta ár.
Guðrún leggur til að umræðu um fyrirkomulag styrkja verði frestað og tekin upp á hausti 2009. Matthildur og Elín sammála, Gauti ósammála en leggur til að umræður verði teknar upp ekki seinna en á fyrsta fundi nefndarinnar í haust.
Elín situr hjá við umræður vegna styrkja til Glófaxa og Hlyns Pálmasonar.
Gauti situr hjá við umræður vegna styrkja til Kvennakórs og Karlakórs.
Gauti situr hjá við atkvæðagreiðslu vegna ráðstafana styrkja.
- Menningarverðlaun 2008
Tilnefningar til Menningarverðlauna Hornafjarðar 2008 eru:
Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson tónlistarkennari fyrir öflugt tónlistarstarf til margra ára.
Kvennakór Hornafjarðar, fyrir Landsmót kvennakóra á Höfn vorið 2008
Hlynur Pálmason, kvikmyndagerðarmaður, fyrir gerð stuttmynda, ljósmynda og hreifimyndasýningar.
Eigendur Kaupfélagshússins, vegna vel heppnaðra endurbóta á Kaupfélagshúsinu
Jóhann Morávek, fyrir óeigingjarnt starf við uppbyggingu tónlistarlífs
Eiríkur Hansson, fyrir starf sitt með Legóhópnum
Karlakór Hornafjarðar, fyrir öflugt starf í 35 ár.
Hermann Hansson, fyrir áralangt starf að menningarmálum og vel heppnaðar endurbætur á Kaupfélagshúsinu
- Erindi frá Safnaráði, vísað til Menningar- og tómstundanefndar frá bæjarráði
Bréf frá Safnaráði kynnt.
- Samstarf í menningarmálum, vera Hornfirðinga innan Menningarráðs Austurlands
Staðan kynnt, ákveðið að ræða samstarf í menningarmálum á vinnufundi 9. febrúar 2009.
- Afhending þjónustuhúsnæðis og Ungmennahúss, Hafnarbraut 40
Húsin komin í umsjón Menningarmiðstöðvar, framkvæmdir hafnar á Hafnarbraut 40.
- Önnur mál
Vinnufundur ákveðinn 9. febrúar og verður í Pakkhúsinu kl. 16:00.
Skipun í Ungmannaráð. Helga Rún Guðjónsdóttir kom á fundinn. Erindisbréfi dreift á fundinum. Mælt með að leitað verði til Júlíusar Sigfússonar með setu í ungmennaráði og að leitað verði til Sólveigar Sveinbjörnsdóttur, um fulltrúa í ungmennaráðið.
Endurskoðun á aðalskipulagi, gögnum dreift á húsinu.
Fundi slitið kl. 18:46


